Fréttablaðið - 12.07.2006, Síða 47
MIÐVIKUDAGUR 12. júlí 2006 19
Greiningardeild KB banka gerir
ráð fyrir að hagnaður þeirra sextán
félaga, sem hún spáir fyrir, verði
um 23,5 milljarðar króna á öðrum
ársfjórðungi. Er reiknað með að
hagnaður fjármálafyrirtækja drag-
ist saman um þriðjung frá sama
tímabili í fyrra vegna tapreksturs
Straums-Burðaráss og TM.
Af einstökum félögum hagnast
Glitnir mest á öðrum ársfjórðungi
eða um 8,1 milljarð króna en Lands-
bankinn fylgir fast á hæla hans
með um 7,4 milljarða. Bankinn
spáir ekki fyrir eigin afkomu.
Hagnaður Avion Group er áætl-
aður 5,9 miljarðar og þá er búist
við að hagnaður Actavis og Bakka-
varar fari vel yfir tvo milljarða
króna.
Fyrir árið í heild reiknar KB
banki með að heildarhagnaður
þeirra félaga, sem hann hefur til
skoðunar, verði 134 milljarðar
króna.
Í afkomuspánni kemur fram sá
spádómur að Úrvalsvísitalan muni
enda í 6.500 stigum í árslok sem er
fimm hundruð stigum minni en
fyrri spá hljóðaði upp á. Gangi
þetta eftir hækkar vísitalan um
21,6 prósent frá síðasta gildi. - eþa
Spá yfir 23 milljarða hagnaðiKAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]ICEX-15 5.344 +0,17% Fjöldi viðskipta: 244
Velta: 2.134 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 62,90 -0,16% ... Alfesca 4,10 +2,76% ... Atlantic
Petroleum 568,00 +0,53% ... Atorka 6,15 +0,49% ... Avion 32,00 +0,31% ... Bakkavör 44,70
+1,59% ... Dagsbrún 5,65 +0,71% ... FL Group 16,90 +0,00% ... ... Glitnir 16,60 -1,19% ...
KB banki 732,00 +0,27% ... Landsbankinn 19,80 +0,00% ... Marel 70,20 +0,00% ... Mosaic
Fashions 15,50 +1,31% ... Straumur-Burðarás 16,30 +0,00% ... Össur 108,50 +1,40%
MESTA HÆKKUN
Alfesca +2,76%
Flaga +2,30%
Bakkavör +1,59%
MESTA LÆKKUN
Glitnir banki -1,19%
Actavis -0,16%
Umsjón: nánar á visir.is
Sænski ríkislífeyrissjóðurinn AP3
hefur til skoðunar að selja öll hluta-
bréf sín í Yahoo, alls þrjú hundruð
þúsund hluti, vegna grunsemda um
að Yahoo hafi framið mannréttinda-
brot. Bandaríska félagið er sakað
um að hafa komið gögnum til kín-
verskra stjórnvalda er áttu þátt í
því að andófsmaðurinn, Shi Tao, var
dæmdur til tíu ára tukthúsvistar.
Tao notaði Yahoo-pósthólf til að
senda viðkvæmar upplýsingar um
kínversk stjórnvöld til Bandaríkj-
anna.
AP3 vinnur eftir siðareglum þar
sem leitast er við að stunda ábyrgar
fjárfestingar. Ber samkvæmt þeim
að forðast fjárfestingar í félögum
sem virða ekki þær reglur. Stjórn-
endur AP3 hafa sent bréf til Yahoo
og óskað eftir skýringum. Yahoo á
enn eftir að svara. - eþa
AP3 íhugar
sölu í Yahoo
SPÁ AÐ VÍSITALAN VERÐI Í 6.500 STIGUM Í LOK ÁRS Annar ársfjórðungur lítur ágætlega út
fyrir fyrirtæki í Kauphöll að mati KB banka.
GLITNIR BANKI Greiningardeild Glitnis
hefur eftir skýrslu OECD að beinar fjárfest-
ingar hér hafi aukist um 296 prósent á milli
áranna 2004 og 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Beinar fjárfestingar erlendra aðila
hér á landi námu 153 milljörðum
króna í fyrra og jukust um 296 pró-
sent frá árinu á undan. Um met er
að ræða.
Að sögn greiningardeildar Glitn-
is er þetta margfalt meiri vöxtur í
erlendri fjárfestingu en mældist á
sama tíma í OECD-löndunum. Vöxt-
ur erlendra fjárfestinga í öðrum
löndum var engu að síður sögulegur
en hann nam 46.800 milljörðum
króna á síðasta ári sem er 27 pró-
senta aukning á milli ára.
Beinar fjárfestingar erlendra
aðila voru mestar í Bretlandi á síð-
asta ári miðað við önnur OECD-
lönd. Þær námu rúmum 12.400
milljörðum íslenskra króna og
tengjast fjárhagslegri endurskipu-
lagningu alþjóðra fyrirtækja á borð
við Shell þar í landi auk þess sem
hlutur skrifast á reikning milli-
ríkjasameininga og -yfirtöku á fyr-
irtækjum, að sögn greiningardeild-
arinnar. - jab
Erlend fjárfest-
ing aldrei meiri
Pantanir á flugvélum hjá evrópsku
flugvélasmiðjunum Airbus hafa
dregist mikið saman á milli ára. Á
fyrstu sex mánuðum ársins voru
pantaðar 117 nýjar flugvélar sem
er 159 flugvélum færra en á sama
tíma í fyrra.
Þessu er öfugt farið hjá Boeing,
helsta keppinauti Airbus. Flugfélög
víða um heim hafa á fyrstu sex
mánuðum ársins tryggt sér 487
Boeing-vélar, sem er 48 vélum fleiri
en á sama tíma fyrir ári. - jab
Engin pöntun
á risaþotu
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
Saab
Það er klassi yfir Saab 9-3 bílunum, enda á Saab sér áratugalanga sögu
og er einn öruggasti bíll sem völ er á. Saab 9-3 er margverðlaunuð
nýjung í klassíska Saab stílnum þar sem öryggi og mýkt í akstri er í
fyrirrúmi. Stórkostleg hönnun, öflug vél og ríkulegur staðalbúnaður
gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum.
*Og verðið er algert einsdæmi fyrir lúxusbíl í þessum gæðaflokki!
Klassík á viðráðanlegu verði*
2.590.000 kr.
Klassi, öryggi, stíll!
Verðið miðast við beinskiptan 1.8 lítra, 125 hestafla bíl.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
18
8
8