Fréttablaðið - 12.07.2006, Side 53

Fréttablaðið - 12.07.2006, Side 53
MIÐVIKUDAGUR 12. júlí 2006 25 Skrif bandaríska leikstjórans og háðfuglsins Woody Allen um meinta matreiðslubók þýska heimspekingsins Friedrich Nietzsche hafa vakið sterk við- brögð lesenda en grein hans sem birtist í júlíhefti tímaritsins The New Yorker ferðast eins og eldur í sinu um óravíddir netsins. Í grein sinni, „Svo át Zaraþústra“ kveðst Allen hafa rambað á upp- skriftabók sem kennd er við spekinginn þegar hann var á ferð í Heidelberg og birtir í framhaldinu brot úr þessu merka riti og þar á meðal nokkrar upp- skriftir, til dæmis af hentugri samsetningu á morgunverði. Allen reifar heimspekisöguna út frá sjónarhóli matgæðingsins í pistli sínum og minnist til dæmis á það þjóðþrifaverk René Decartes sem aðskildi efni og anda en af því leiðir að líkaminn getur gúffað í sig að vild á meðan hugurinn er stikkfrír í vissu sinni að óhófið komi sér ekkert við. Leikstjórinn fleytir kellingar á nokkrum af stærstu spurning- um heimspekinnar og kinkar ítrekað kolli til skrifa Nietzsches á sinn óborganlegan hátt. Stærstu spurningunni er þó ósvarað: „Ef lífið er merkingar- laust – hvaða þýðingu hefur þá stafasúpa?“ - khh Megrunarráð Nietzsches Í nýjustu bókinni um heimspeking- inn spurula Einar Áskel eftir Gun- illu Bergström er fjallað um kynni hans af nýrri fjölskyldu sem kemur langt að. Einar Áskell eignast nýjan vin en faðir vinarins er fyrrver- andi hermaður sem vill ekki ræða um stríðið þrátt fyrir forvitni strákanna. En einu sinni segir hann þeim sögu úr stríðinu og þá hlusta strákarnir vel og vandlega. Faðir Hamdi er skemmtilegur kall og hjálpar þeim líka að búa til fót- boltamark og skipuleggur æfingar fyrir krakkana í hverfinu. Einar Áskell og stríðspabbinn er tuttugasta og önnur bókin sem út kemur á Íslandi um kappann. Þýðandi er Sigrún Árnadóttir en útgefandi er Mál og menning. -khh Þögli stríðspabbinn EINAR ÁSKELL Snáðinn er alltaf að læra eitthvað nýtt. SPAUGARINN WOODY ALLEN Hver eru tengsl heilbrigðs mataræðis og snilligáfu? MYND/GETTY HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JÚLÍ 9 10 11 12 13 14 15 Miðvikudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  12.00 HLjómsveitirnar Loftvarnir og Reykjavík Drum Corporation skemmta gestum Sundhallarinnar við Barónsstíg. Hóparnir vinna skapandi sumarstarf á vegum Hins hússins og Reykjavíkurborgar og troða upp á óvenjulegum stöðum.  20.00 Jazzkvartettinn Tepoki held- ur tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur.  21.30 Kvartett Eriks Qvick leikur á Gamla Bauk á Húsavík. Með trommaranum geðþekka leika Thomas Markusson, Haukur Gröndal og Ásgeir Ásgeirsson. ■ ■ LEIKLIST  10.00 Brúðubíllinn sýnir leikþáttinn Týnda eggið í Safamýri kl. 10 og við Rauðalæk kl. 14 ■ ■ OPNANIR  17.00 Joris Rademaker opnar sýningu í DaLí Gallery í tilefni af Listasumri á Akureyri. Sýningin stendur til 26. ágúst.  Sýning á vatnslitamyndum Kamillu Talbot opnar í gallerí Klaustri á Skriðuklaustri. Sýning hennar stendur til 3. ágúst og er opin alla daga kl. 10-18. ■ ■ SKEMMTANIR  21.00 Hljómsveitirnar Sprengju- höllin og Hjaltalín leika á barnum Barnum á Laugavegi 22. Fjörið hefst upp úr kl. 21. ■ ■ SÝNINGAR  13.00 Listhópurinn Distill sýnir verk í Listasafni Reykjanesbæjar á samsýningunni Tíminn tvinnaður. Fjölbreytt efnistök og ólíkir miðlar með verkum eftir Ann Chuchvara, Hrafnhildi Sigurðardóttur, Jaeha Yoo, Julie Poitras Santos, Patricia Tinajero Baker og Tsehai Johnson.  13.00 Sumarsýning Hafnarborgar ber heitið Hin blíðu hraun. Listfræðingurinn velur verk sem vísa til hraunsins sem umlykur Hafnarfjarðarbæ. Ólíkar birtingar- myndir hraunsins í íslenskri sam- tímalist. Sýningin stendur til 28. ágúst.  14.00 Bandaríska myndlistarkonan Joan Backes sýnir ný málverk og skúlptúra í Safni við Laugaveg. Einnig eru til sýnis verk úr eigu safnsins. Opið er mið-fös kl. 14-18 og lau-sun kl. 14-17. ■ ■ UPPÁKOMUR  14.00 Stuttmyndasýningar í Rósenborg í tilefni af Listasumri á Akureyri. Sýndar verða mynd- irnar Japansferð eftir Vilhjálm G. Vilhjálmsson, Mótmæli í Gallaudet eftir Jerome Cain frá Svíþjóð og Hreindýraveiðar eftir Ragnar Veer frá Svíþjóð. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.