Fréttablaðið - 12.07.2006, Page 54

Fréttablaðið - 12.07.2006, Page 54
 12. júlí 2006 MIÐVIKUDAGUR26 Robbie Williams hefur verið einn þekktasti popptónlistamaður Bretlands frá því að hann sagði skilið við strákasveitina Take That í upphafi tíunda áratugarins. Ástarlíf hans hefur lengi verið fjölmiðlamatur enda hefur söngvarinn átt ófáar ástkon- ur í gegnum tíðina. Frægast er samband hans við Nicole Appleton, fyrr- um söngkonu All Saints, en þau voru trúlofuð um tíma. Það fékk mikið á Williams þegar Appleton upplýsti að hún hefði farið í fóstur- eyðingu því söngvar- inn hafði margoft lýst því yfir að hann vildi eignast fjölskyldu. Williams hefur ekki verið við eina fjölina felldur og var um tíma með Kryddpí- unni Geri Halliwell. Í ævisögu sinni sagðist Robbie seinna meir hafa sofið hjá öllum Kryddpíunum en þær hafa aldrei viljað staðfesta þá sögu. Meðal annarra ást- kvenna Williams má nefna fyr- irsætuna Rachel Hunter sem Robbie kolféll fyrir auk leik- konunnar Nicole Kidman en sögusagnir um samband þeirra fengust þó aldrei staðfestar. Þá var söngvarinn um tíma með Nip / Tuck leikkonunni Valerie Cruz en hætti með henni til að byrja með „feimnu“ dóttur Ozzy Osbourne, Aimee. Heimspressan birti einnig fréttir af „meintu“ ástar- sambandi popp-kóngsins og fyrirsætunnar Naomi Campbell sem þau stað- festu fyrst en Campbell dró síðan sína frásögn til baka og sagðist aldrei hafa átt vingott við kappann. Isabella Trump var einnig um tíma kær- asta söngvarans en hún er dóttir auðkýf- ingsins Donald Trump. Williams var með sjónvarps- konunni vinsælu, Samantha Mumba, auk þess sem hann átti nokkur stefnumót með plötusnúðnum Eriku North. Nýlega bárust fréttir af því að hin þokkafulla Shakira væri nýjasta heitkona söngvarans en þau neit- uðu bæði þeim orðrómi og komu með hina sígildu yfirlýsingu fræga fólks- ins að „þau væru bara vinir“. Sjálfur hefur Robbie alltaf sagt að hann hefði aldrei kom- ist yfir æskuástina sína, Rachel Gilson, og nýverið gaf Williams í skyn að hann væri hættur að stunda kyn- líf, vildi heldur bara lesa góða bók. Williams hefur einnig tjáð sig um það í viðtölum að hann hafi aldrei orðið ástfang- in. „Ég er hættur þessu pipar- sveinalífi og ætla bara að finna ástina í lífi mínu,“ sagði Robbie ekki margt fyrir löngu og nú er bara að bíða, vona og sjá hvað gerist í þeim málum hjá Íslandsvininum Robbie Williams. - fgg Leitar að ástinni RACHEL HUNTER Robbie kolféll fyrir fyrirsætunni en Hunter olli honum mikilli ástarsorg þegar hún sagði skilið við hann. GERI HALLIWELL Var kærasta Robbie í þó nokkurn tíma en það slettist heldur betur uppá vinskapinn þegar söngvarinn gerði grín að þyngd hennar. NAOMI CAMPBELL Var sögð ástkona Robbie í eitt ár og parið staðfesti þessa sögu. Fyr- irsætan dró seinna meir sína frásögn til baka og sagðist aldrei hafa átt vingott við söngvarann. SHAKIRA Kólumbíska söngkonan er trúlofuð en það breytti ekki þeirri staðreynd að sögusagnir um ástar- samband hennar við Robbie Williams fóru á kreik. Þau neituðu þessum orðrómi bæði. SAMANTHA MUMBA Lét undan þrýstingi frá Robbie Williams og fór á nokkur stefnumót með söngvar- anum. „Ég get staðfest að þetta er rétt en þetta er prívat mál milli mín og hans,“ segir Snædís Guðnadóttir, vinkona hins heimsfræga söngv- ara Robbie Williams. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær gerðu danskir fjölmiðlar mikið úr meintu sambandi Snædísar og Robbie en hann hélt tónleika í Parken í Kaup- mannahöfn á fimmtudaginn var. Á tónleikunum, sem tæplega 50 þús- und manns sóttu, lýsti Robbie aðdáun sinni á rauðhærðri stúlku sem hann hafði kynnst meðan á dvöl hans í Danmörku stóð. „Rauðhærða stúlkan sem ég hitti á barnum var virkilega góð,“ sagði Robbie á tónleikunum og átti þar við Snædísi. Þau hittust á barn- um á Skt. Petris hótelinu sem söngvarinn dvaldi á daginn fyrir tónleikana. Snædís hefur verið hund- elt af dönskum fjölmiðlum og prýddi meðal annars for- síður Ekstra-blaðsins og BT. Í blöðunum hefur hún meðal annars verið kölluð Rauðhettan hans Robbie. Snædís hefur reynt af fremsta megni að forðast fjölmiðla og vill lítið sem ekkert ræða við þá. Hún var þó til- búin að ræða í stutta stund við Fréttablað- ið þar sem hún ber taugar til Íslands. „Við Robbie töluðum aðeins um Ísland og hann var ekki hrifinn af land- inu,“ sagði Snædís hlæjandi þegar Frétta- blaðið ræddi við hana. Eins og kunnugt er hélt Robbie tónleika hér á landi fyrir nokkrum árum og tók því heldur illa þegar plastflösku var fleygt upp á sviðið. Eftir að tónleikunum lauk rauk hann af landi brott í fússi. Íslenskir aðdáendur hans hafa hingað til talið að hann myndi ekki koma aftur en nú gæti orðið breyting á, þökk sé Snædísi. „Ég sagði honum meira frá landi og þjóð og hann er að pæla að fara þangað aftur,“ sagði vinkona söngvarans. Snædís flutti til Kaup- mannahafnar þegar hún var eins árs. Þótt langt sé liðið frá því að hún flutti út talar hún fína íslensku en með dönskum hreim. „Ég kem stundum heim til Íslands til að heimsækja fjölskylduna,“ segir Snædís sem starfar sem fjármála- ráðgjafi hjá stofnuninni Catinet Analyse, auk þess sem hún er að ljúka háskólanámi. Snædís vildi ekki gefa upp hvort þau Robbie héldu enn sam- bandi, nú þegar söngvarinn heims- frægi heldur tónleikaför sinni áfram. „Þetta er milli mín og hans og svoleiðis á það að vera,“ segir Snædís Guðnadóttir, vinkona Robbie Williams. kristjan@frettabladid.is Sannfærði Robbie um að koma aftur til Íslands ROBBIE WILLIAMS Söngvaran- um heimsfræga virðist hafa snúist hugur og er að íhuga að heimsækja Ísland á ný. SNÆDÍS GUÐNADÓTTIR Íslenska stúlkan sem kynntist Robbie þegar hann var á tónleikaferðalagi í Danmörku. Pink Floyd-goðsögnin Syd Barrett lést á heimili sínu í Cambridgeshire um helgina af völdum sykursýki. Barrett fæddist 6. janúar árið 1946 og var því nýorðinn sextugur. Hann hafði lengi verið heilsulítill, bæði andlega og líkamlega. Syd Barrett var aðeins 19 ára gamall þegar hann stofnaði Pink Floyd árið 1965. Árið 1967 kom platan Piper at the Gates of Dawn. Hún náði 6. sæti breska vinsælda- listans og stækkaði aðdáendahóp- urinn ört. Fljótlega fór álagið að gera vart við sig og á sama tíma fór hann að nota ofskynjunarlyf á borð við LSD. Í kjölfar eiturlyfjaneyslu fóru geðræn vandamál að segja til sín og varð hegðun hans ófyrirsjá- anleg. Eftir misheppnaða tónleikaferð um Bandaríkin neyddist hljóm- sveitin til þess að ráða David Gilmour við hlið Barretts. Innkoma Gilmour gerði illt verra fyrir Barr- ett því næstu tónleika sá Gilmour alfarið um gítarleikinn á meðan Barret ráfaði um sviðið. Platan A Saucerful of Secrets kom út árið 1968 og reyndist hún vera síðasta platan sem Barrett tók upp með Pink Floyd, því í marsmánuði sama ár hætti hann í sveitinni. Á árunum 1970-1972 komu út sólóplöturnar The Madcap Laughs og Barrett. Skiptar skoðanir eru um plöturnar en flestir eru þó sam- mála um að þær endurspegli brott- hætt andlegt ástand vel. Þrátt fyrir að hafa hætt í hljómsveitinni sáu félagar hans Roger Waters og David Gilmour um upptökustjórn á plötunum tveimur. Syd Barrett hélt aðeins eina tónleika á þessum stutta sólóferli, þeir fóru fram þann 6. júní árið 1970 í London. Tónleikarn- ir voru algjörlega misheppnaðir og eftir aðeins fjögur lög gekk Barrett af sviðinu. Eftir misheppnaða dvöl í hljóðveri árið 1974 pakkaði Barr- ett saman og flutti á hótel í London. Þar bjó hann uns peningana þraut en þá flutti hann aftur inn til móður sinnar í Cambridge, þar sem hann bjó til dauðadags og hafði lífsviður- væri af höfundalaunum og stef- gjöldum. Síðustu æviárin helgaði Barrett sig myndlist, auk þess sem hann tók skírnarnafnið Roger upp aftur. Rosemary systir hans var eina manneskjan sem hélt sambandi við hann til dauðadags og á endanum var það sykursýki sem dró Barrett til dauða. Þrátt fyrir að hafa ekki komið opinberlega fram í 30 ár hefur frægðarsól hans ekkert dvín- að. Aðdáendur sátu um heimili hans allt til síðasta dags. - vör Syd Barrett allur SYD BARRETT Stofnmeðlimur Pink Floyd, Syd Barrett, lést um helgina. Hann hafði ekki komið opinberlega fram í 30 ár. LCI-830, 102x122sm kr. 29.800,- Goddi.is S. 5445550. Þær eru komnar vinsælu, ódýru kerrurnar okkar LCI-850, 122x244sm kr. 48.800,- LCI-745, 128x158sm kr. 51.200,- LCI-958, 152x244sm kr. 84.500,- LCI-880, 392x134sm kr. 65.100 LCI-887, 548x170sm kr.115.600

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.