Fréttablaðið - 12.07.2006, Síða 62

Fréttablaðið - 12.07.2006, Síða 62
 12. júlí 2006 MIÐVIKUDAGUR34 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Karolos Papoulias. 2 TVMK Tallin. 3 Eddie Murphy. LÁRÉTT 2 illt umtal 6 frá 8 keyra 9 ar 11 í röð 12 væla 14 tónstigi 16 bardagi 17 hár 18 niður 20 bor 21 ögn. LÓÐRÉTT 1 þungi 3 samtök 4 smjaðra 5 hald 7 a 10 fúsk 13 efni 15 slæma 16 flana 19 tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2 last, 6 af, 8 aka, 9 ryk, 11 jk, 12 gráta, 14 skali, 16 at, 17 ull, 18 suð, 20 al, 21 arða. LÓÐRÉTT: 1 farg, 3 aa, 4 skjalla, 5 tak, 7 fyrstur, 10 kák, 13 tau, 15 illa, 16 asa, 19 ðð. FRÉTTIR AF FÓLKI Fríður hópur fólks mun birtast í hestaþættinum Kóngur um stund næsta mánudagskvöld í Ríkissjónvarp- inu. Þá leiðir Einar Bollason í Íshestum þjóðþekkta Íslendinga í hestaferð um Suður-Þingeyjarsýslur. Gestir í þættinum eru Unnur Steinsson, Pálmi Gestsson leikari, Ari Edwald, forstjóri 365, Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu og Magnús Kjartansson tónlistarmaður. Eitt af eftirminnilegri atrið- um þáttarins mun vera þegar Agnes Bragadóttir flaug á bólakaf í Skjálfanda- fljótið en gerði sér lítið fyrir og vatt mestu bleytuna úr fötunum, fór í þau aftur og reið áfram. Talsverð eftirvænting er meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn vegna opnunar á nýjum stað Friðriks Weiss- happel og félaga þar í borg. Fréttablaðið hefur greint frá staðnum, sem verður systurstað- ur hins vinsæla Laundromat Café á Norðurbrú. Framkvæmdir við nýja staðinn hafa tekið lengri tíma en upphaflega var áætlað en nú hafa Friðrik og félagar hans ákveðið opn- unardaginn, 1. ágúst næst- komandi. Miðar á úrslitaleik HM í knattspyrnu gengu kaupum og sölum fyrir háar fjárhæðir síðustu dagana fyrir leikinn. Einhverjir Íslendingar voru svo heppnir að komast á leikinn og meðal þeirra var athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson. Hann var þó ekki einn á ferð því með í för voru nokkrir af lykilstarfsmönn- um Straums- Burðaráss. Björgólfur bauð starfsfólkinu út og ferjaði þau í einkaþotu sinni við mikinn fögnuð starfs- fólksins. - hdm ÞRÍR SPURÐIR ÁSTÆÐA UPPHLAUPS ZIDANES Í ÚRSLITALEIK HM Hvað sagði Materazzi við Zidane? Ásthildur Helga- dóttir, verkfræðing- ur og landliðsfyrir- liði: „Ég get ekki ímyndað mér hvað hann hefur sagt við Zidane og finnst engu skipta hvað það var. Viðbrögð Zidanes voru fárán- leg. Hann býr yfir það mikilli reynslu að svona lagað á ekki að gerast.“ Auðun Helgason knatt- spyrnumaður: „Það er erfitt að ímynda sér hvaða ónotum Materazzi hefur hreytt í Zidane en ef eitthvað mark er takandi á því sem stendur í blöðunum þá sneri það sennilega að einhverju í tengslum við uppruna hans. Annars er alvanalegt að svona eigi sér stað, sérstaklega á stærri leikjum. Sjálfur hef ég oft lent í svona aðstæðum, núna síðast á landsleiknum á móti Svíum í haust. Ég læt hins vegar ekki uppi hvaða fúkyrðum ég þurfti að taka á móti.“ Guðjón Guðmundsson íþróttafrétta- maður: „Það er alveg ljóst að um kyn- þáttafordóma var að ræða. Hann stígur nú heldur ekki beint í vitið hann Materazzi.“ Felix Bergsson og Gunnar Helga- son, þekktir sem Gunni og Felix af börnum landsins, eru nú að gefa út sinn 28. geisladisk. „Við gerðum 21 disk um hundana Traust og Trygg og svo höfum við gert jóladisk og hitt og þetta fyrir börnin. Okkur finnst svo gaman að vinna saman,“ segir Felix, en samvinna þeirra félaga hófst árið 1993 þegar þeir tóku við Stundinni okkar. Nýi diskurinn, sem kemur í búðir 20. júlí, heitir Lögin hans Jóns míns, en lögin eru öll eftir Jón Ólafsson. „Þetta eru lög sem hann hefur samið fyrir okkur í gegnum tíðina. Við erum mjög sáttir við þetta sam- starf,“ segir Felix. Gunnar og Felix skrifa báðir textana, en texti lagsins Hættu að eyðileggja Ísland! vekur athygli. „Þetta er lag frá 1997 og á þeim tíma voru menn ekki komnir á bólakaf í umhverfisumræðunni. Það fjallar fyrst og fremst um umgengni okkar um landið. Það hefur aðra og dýpri merkingu í dag og það er bara skemmtilegt,“ segir Felix. - rsg Hafa gefið út 28 geisladiska GUNNI OG FELIX Tvíeykið fer um allt land í sumar og skemmtir börnum og öðrum sem eru ungir i anda. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Glæpasmásagan Þjóðvegur eitt eftir Sigurlín Bjarneyju Gísladótt- ur, rúmlega þrítugan skrifstofu- starfsmann úr Kópavogi, bar sigur úr býtum í Gaddakylfunni, árlegri glæpasmásagnakeppni tímaritsins Mannlífs og Hins íslenska glæpa- félags. Úrslitin voru kunngjörð við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær og afhenti Geir Jón Þórisson Sigurlín verðlaunin, forláta gaddakylfu sem listakonan Kogga hannaði fyrir keppnina. Verk eftir Sigurlín hafa verið birt í Lesbók Morgunblaðsins og í fyrra vann hún fyrstu verðlaun í örsögukeppni Tímarits máls og menningar í fyrra en Þjóðvegur eitt er hennar fyrsta glæpasaga. „Sagan fjallar um orðljótan vöru- bílstjóra, sem grunur leikur á að hafi framið einhvers konar glæp en það kemur ekki í ljós fyrr en undir lokin hvað gerðist.“ Dómnefndin var skipuð þremur konum, Kolbrúnu Bergþórsdóttur, Helgu Dís Björgúlfsdóttur og Ingi- björgu Dögg Kjartansdóttur, en að sögn Reynis Traustasonar, rit- stjóra Mannlífs, bar þeim öllum saman um að Þjóðvegur eitt væri „mögnuð saga“. „Til marks um það hversu vel henni tekst upp í per- sónusköpuninni, að þá voru þær allar sannfærðar um að höfundur- inn hlyti að vera karl,“ segir Reyn- ir, sem útbýtti nafnlausum hand- ritum til dómnefndarinnar. Sjálf segist Sigurlín trúa því að rithöf- undar eigi að vera óhræddir við að setja sig í spor hvers sem er. Jón Hallur Stefánsson sigraði í síðustu glæpasagnakeppni og í fyrra kom bók hans Krosstré út, sem er sérlega vel heppnaður reyf- ari. Sigurlín segist vera með hand- rit í vinnslu og vonast til að geta gefið það út á bók á næsta ári. Tvær aðrar sögur voru einnig verðlaunaðar á Gaddakylfunni: Ekki fyrir viðkvæma eftir Lýð Árnason, lækni á Flateyri, en hann hafnaði einnig í öðru sæti í síðustu keppni sem var þá um hrollvekjur, og í þriðja sæti varð sagan Mál- verk eftir Ásdísi Herborgu Ólafs- dóttir, húsmóður í Stafangri í Nor- egi. Í tilefni keppninnar hafa fimm úrvalssögur úr henni auk glæpa- smásagna eftir Þráin Bertelsson, Súsönnu Svavarsdóttur og Stellu Blómkvist, verið settar saman í kilju sem ber heitið Morð og fylgir júlíhefti Mannlífs sem kemur út í dag. bergsteinn@frettabladid.is SIGURLÍN BJARNEY GÍSLADÓTTIR: SIGRAÐI Í GADDAKYLFUNNI Nýtt nafn í glæpaheiminum SIGURLÍN BJARNEY GÍSLADÓTTIR Sigraði í keppninni með sögu um orðljótan vörubílstjóra sem grunur leikur á að hafi óhreint mjöl í poka- horninu. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN HRÓSIÐ ...fá Zeno og Jose fyrir að bjóða Íslendingum og útlendingum upp á óhefðbundið pöbbarölt í Reykjavík. *Gallup Október 2005 Mest lesna tímaritið * opið alla laugardaga 11-14 Á GRILLIÐ! NÝR HUMAR, LÚÐA, VILLTUR LAX, SKÖTUSELUR og KEILA Á grillið! Nýr humar, lúða, sólþurrkaður saltfi skur, skötuselur og keila.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.