Tíminn - 29.01.1978, Qupperneq 1
SÍMI 28866
■-
GISTING
MORGUNVERÐUR
25. tölublað— Sunnudagur 29. janúar 1978 — 62. árgangur
Litlu bátarnir biöa þess aðdag lengi og vetrarveðrin fari hjá. Vélarnar i þeim verða ræstar þegar
út á kemur. — Timamynd: Gunnar
Landbúnaðurinn 1977
og horfurnar framundan
Grein eftir Halldór E. Sigurðsson, landbúnaðar-
ráðherra - Bls. 10-11-12
„Enginn andvaka
í svona ferðum”
— sagði Guðmundur Sigvaldason um skíðaferð
sexmenninganna þvert um hálendi og jökla
— Ætli við leggjum ekki upp i
marzmánuði sagði Guðmundur
Sigvaldason jarðfræðingur við
Tfmann i gær. Hann ætlar á
skiðum við sjötta mann frá
Svartárkoti í Bárðardal suður
Dyngjufjaiiadal um Kverkfjöll og
Vatnajökui suður á Breiða-
merkursand.
— Félagar minir eru Magnús
Hallgrimsson verkfræðingur,
.Leifur Jónsson læknir, Halldór
Ölafsson rennismiður, Stefán
Bjarnason trésmiður og Helgi
Agústsson múrari. Við erum allir
á milli fertugs og fimmtugs, eng-
inn okkar neinn sérstakur afreks-
maður á sklðum. En við höfum
samt dálitla reynslu af svona
ferðum þvi að við þessir sex fór-
um i aprilmánuði i hitteðfyrra á
skiðum norður yfir — lögöum af
staðfrá Gullfossi um Bláfellsháls
og Kerlingarháls og þvert yfir
Hofsjökul þar sem hann erhæstur
og fórum noröur af um Laugar-
feli. Sú ferð tók okkúr átta daga
og þar af vorum við tvo um kyrrt.
Við gerum ráð fyrir að verða um
viku suður yfir núna.
— Viö höfum með okkur tvö
tjöld sagði Guðmundur enn frem-
ur,fjögurra manna jöklatjald,sem
á að þola öll veður og tveggja
manna tjald. Farangurinn drög-
um við á sleða og i fyrri
leiöangrinum voru það sjötiu og
fjögur pund fyrir utan föt. Mat
höfum við sem einfaldast —
hangikjöt, flatkökur og steik.
Þetta er auövitað talsvert erfitt
— menn veröa fegnir aðdeggjast
fyrir á kvöldin og enginn verður
andvaka. Annarshafa sumir okk-
ar talsverða æfingu þvi að þeir
eru i flugbjörgunarsveit.
Svona ferð sætir auðvitað ekki
neinum stórtiðindum. Um svipaö
leyti og viö fórum norður i hitteð-
fyrra fóru menn úr flug-
björgunarsveit um hálendið endi-
langt frá austri og vestur i
Borgarfjörð og ég held að sá
hópur ætli sér að fara núna þvert
yfir hálendið.
BIBLÍURIT Á
1.603 TUNGUM
— íslenzka var hið 23. í röðinni
Bibiiudagurinn 1978 er i dag,
og mun þá biskup landsins
Sigurbjörn Einarsson sem jafn-
framt er forseti Hins islenzka
bibiiufélags predika I dómkirkj-
unni i Reykjavík og er tilefnið
tvöfalt: Bibiiudagurinn og
fimmtiu ára afmæli Slysa-
varnafélags Islands. En slysa-
varnir á sjó tengjast nafni
tveggja presta séra Jóns Stein-
grimssonar eldklerks, sem
fyrstur ritaði um þau mál og
séra Odds V. Gislasonar i
Grindavík sem fyrstur hóf raun-
verulegar slysavarnir.
1 tilefni af bibliudeginum er
það frásagnarvert, aö biblían i
heild eða einstök rit úr bibliunni
hafa nú verið gefin út á 1.603
tungumálum. Enn eftirtektar-
verðara er, hversu snemma
Nýja testamentið var prentað á
islenzku. býðing Odds Gott-
skálkssonar á þvi var hið 23. i
timaröð þessara rúmlega sex-
tán hundruð tungumála en það
kom út sem kunnugt er árið
1603.
Fróðir menn telja að það hafi
ef til vill orðið Islenzkri tungu til
bjargar hversu snemma var
hafizt handa um bibliuþýðingar
á islenzku þar sem þess vegna
var aldrei haldið að Islending-
um dönskum biblium, eins og til
dæmis Norömönnum sem glöt-
uðu tungu sinni og Færeyingum,
sem nú búa við tungu er mun
meira hefur fjarlægzt uppruna
sinn heldur en islenzka.
Llkanið skoðað.T.f.v. Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor, Haraldur
Sigurðsson bókavörður, Geir Hallgrimsson forsætisráðherra, Finnbogi
Guðmundsson landsbókavörður og Vilhjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra.
Þjóðarbókhlaðan mun
rúma tæpa 1. millj.bóka
SJ —t gærmorgun tók Viihjálmur
Hjálmarsson menntamálaráö-
herra fyrstu skófiustunguna að
þjóðarbókhiööu sem risa á við
Birkimei i Reykjavik. A blaöa-
mannafundi sem haidinn var við
það tækifæri kom fram, aö
væntanleg þjóðarbókhlaöa mun
rúma tæpa eina milljón bóka, en
Landsbókasafn og Háskólabókas-
safn rúma nú samanlagt hátt
sjötta hundrað þúsund bækur.
Þjóðarbókhlaða veröur á fjór-
um hæðum aukkjallaraog veröur
samt. 12.773 fermetrar aö stærö.
Samkvæmt framkvæmdarkostn-
aðaráætlun frá s.l. voru mun bók-
hlaöan kosta 2 þúsund og 90
milljónir króna fullbyggð. Arki-
tektar eru Manfreð Vilhjálmsson
og Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Vilhjálmur Hjálmarsson mennta málaráöherra tekur fyrstu
skóflustunguna aö þjóðarbók hlöðu i gærmorgun. — Tima-
myndir Róbert
f