Tíminn - 29.01.1978, Síða 5

Tíminn - 29.01.1978, Síða 5
Sunnudagur 29. janúar 1978. 5 Fólksfækkun yfirvofandi í Svíþjóð Nú er svo komið i Sviþjóð að meðaltal barnsfæðinga á hverja konu á þvi æviskeiði er hún getur aliö barn, er aðeins 1,66. Þetta þýðir, ef svo fer fram sem nú er að árið 2025 verður tala Svia komín niður i 6.700 þúsund eins og var árið 1946. Meö svona lágri tiðni fæðinga hlýtur fólki að fækka og þó eru sumar Evrópuþjóðir aðrar enn verr á vegi staddar, þar sem til- svarandi tölur þar eru komnar niður i 1,5. Þótt barnsfæðingar yrðu 1,8 á konu þýddi þaö einungis 7.700 þúsund ibúa árið 2025, en 2,1 aftur á móti 8.700 þúsund sem væri fimm hundruð þUsunda aukning frá þvi sem nú er. Arið 1977 fæddust 25% færri börn iSviþjóð en sú kynslóð sem nU er á barneignaraldri þarf sér til viöhalds. Samtlmis og þetta gerist fjölgar öldruðu fólki og háöldruðu jafnt og þétt og verður það áberandi mikili fjöldi gamalmenna sem hinir fámennu árgangar er nU fæðast verða að sjá fyrir á sinum tima. Sé til kennarastéttarinnar lit- ið þá verða um fimmtiu þúsund þeirra sem nú fást við kennslu enn á starfsaldri áriö 2000 en þá veröur aðeins þörf á níu eða tíu þúsund til viðbótar, ef ekki verður breyting á barnsfæðing- um til fjölgunar innan skamms tima. Enn vekur það athygli,að ibU- um helztu stórborganna i Svi- þjóð fer nU heldur fækkandi. Siðasta ár fækkaði Stokkhólms- bUum um 2.500 I Gautaborg fækkaði um 2.000 og Málmey 1.600. Þótt þetta sé ekki mikil breyting, gætir samt sýnilegrar tilhneigingar hjá fólki til þess að leita út Ur borgunum og er sú breyting meiri en hún kann að virðast i fljótu bragði þar eö fólksfjölgun hefur orðiö I þeim til skamms tíma. Veigamesta ástæðan er vafa- laust sú að borgarllfið þykir oröið þungt i vöfum, fyrir- hafnarsamt og þreytandi. Þetta er sænskt iþróttafólk, frægur hlaupari og kappi á knattspyrnuvelli. En I hjónarúminu hefur árangurinn ekki oröið meiri en sjá má hér á myndinni. Og eitt barn nægir ekki til viðhalds. Sfærri - Kraftmeirí - Betri 1978 Undrabíllinn SUBARU 1600 er til afgreiðslu strax. Allur endurbættur Breiðari, stærri' vél, rýmra milli sæta/ minni snún- ingsradíus/ gjörbreytt mælaborð/ nýir litir o. fl. o. fl. Það er ekki hægt að lýsa Subaru þú verður að sjá hann og reyna hitnTnTiM \ JmtVhk'M* letter mark is an extra cost option. Sýningarbilar á staðnum Greiðsluskilmálar þeir hagstæðustu sem völ er á í dag Kaupið bíiinn strax í dag því þá getið þér sparað aiit að 5-10 þús. á vikur því gengið sígur svo ört. INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1 Guöni Kristinsson, bóndi og hreppstjóri, Skarði Landssveit segir í viðtaii um Subaru: „Það segir kannske bezt hvernig mér hefir líkað við Subaru að ég er að kaupa 1978 árgerðina. Sá gamli hefir þjónað okkur vel, við höfum farið allt á honum sem við höfum þurft að fara og sparneytni Subaru er næsta ótrúleg."

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.