Tíminn - 29.01.1978, Qupperneq 12

Tíminn - 29.01.1978, Qupperneq 12
12 Sunnudagur 29. janúar 1978. bótum. Drátturinn 1976 stafaöi af þvi, aö áætlunin um greiöslur út- flutningsbóta var mun lægri heldur en raunin varö á um greiösluþörfina. Þetta geröi þaö aö verkum, aö meö þvi aö áætla vissa greiöslu á mánuöi, var rikissjóður alltaf langt á eftir meö greiðslur sinar til útflutningsbót- anna. Að visu hjálpaöi þaö til við greiðslustööu, að Seölabankinn lét eiga sig aö innheimta þá tryggingu, sem hann hafði i þeim vörum sem út voru seldar, þang- að til undir áramótin þegar úr málinu hafði rætzt aö fullu. Úr þessu máli rættist ekki áriö 1976 fyrr en siöustu dagana i des- ember, og þá var greitt nærri 1/3 hluti af útflutningsbótunum, og það segir sig sjálft, aö þetta hefur haft veruleg greiðsluáhrif á þvi ári. Þaö sama endurtók sig áriö 1977, þó ekki i eins rikum mæli og árið áður, en þrátt fyrir þá breyt- ingu sem gerð haföi verið á greiðsluáætlun útflutningsbóta, reyndist þörfin mun meiri heldur en ætlað hafði verið á fjárlögum fyrir áriö 1977, og þaö svo, aö 10% — ákvæðin nægðu ekki til þess að fullnægja útflutningsbótaþörf- inni. Astæðan fyrir þessu var sú, að tregða hafði verið á sölu hér innanlands, sérstaklega hafði mjólkursalan minnkað, en það hefur hún gert á siðustu árum svo sem kunnugt er. Og menn óttuö- ust um tima, að varla myndi verða hægt að koma út þeim vör- um sem selja þurfti úr landi, og það var reyndar ekki hægt meö smjörið, svo sem kunnugt er. Ég tel einnig, að þær miklu framkvæmdir sem verið hafa á sviði landbúnaöar siöustu árin hafi haft sin áhrif til þess að draga úr góðri afkomu bænda. Er það hvort tveggja i senn, að þeir hafa sjálfir staðiö i stórfram- kvæmdum, eins og áöur hefur verið frá skýrt i þessari grein, en það hefur aukið vaxtakostnaö þeirra. Og auðvitað hafa þeir ekki fengiö lánað nema hluta þess fjár sem til framkvæmdanna þurfti. T.d. eru stofnlán úr stofnlána- deild ca. 50—60% af bygginga- kostnaöi. Mismuninn hafa þeir orðiö að taka af eigin fé eða stofna til lausaskulda. Auk þess er þaö svo, að lánskjörin hafa versnaö, þar sem ekki hefur veriö hægt að fá hér innanlands fjármagn aö láni til Stofnlánadeildarinar nema verðtryggt. Að öðru leyti hefur deildin veriö fjármögnuö umfram eigin tekjur með erlendu lánsfé, sem er gengistryggt. Þetta hefur að sjálfsögðu komið fram i búrekstri bænda, enda hefur verið frá þvi skýrt að um fjárhagskostnaö þeirra hafi verið deilt i sambandi viö verðlags- grundvöllinn, og ekki tekið full- komlega tillit til þess, hver hann er orðinn og hver kostnaðurinn er af þvi fjármagni, sem þeir fá aö láni og þar af leiðandi hafa áhrif- in komið fram i afkomu þeirra. Þessu til viöbótar er svo það, að mjög mikið hefur verið unnið aö uppbyggingu vinnslustöðva land búnaðarins. Þær eru sem kunnugt er sameign bænda i gegnum félagslega eign þeirra, og þaö leiðir af sjálfu sér, aö nýju slátur- húsin sem byggð hafa verið á þessum siðustu árum, krefjast mikils fjár til afskrifta, og fjár- magnskostnaðurinn sem i þeim liggur hefur haft þau áhrif, aö sláturkostnaðurinn hefur vaxið verulega á þessum siðustu árum. Sama verður þegar mjólkurbú þau sem nú eru i byggingu koma til starfrækslu, en nú er verið að byggja þrjú stór mjólkurbú, þá mun það hafa áhrif á kostnaðinn við mjólkurvinnsluna. Ég tel samt, að hér hafi verið rétt aö staðið, og ég tel að búið sé að vinna á þessu sviöi mikið nauðsynjaverk, sem hefur verið stutt fjarhagslega, þ.e. slátur- húsabyggingarnar, með nokkru fé úr framleiðnisjóði land- búnaðarins. En hitt er jafn vist, aö slikar fjárfestingar hafa áhrif á greiðslu afurðanna fyrstu árin, þegar afskriftirnar koma með fullum þunga, en þetta á eftir að jafna sig. Til dæmis er nú oröið svo i Mjólkurbúi Flóamanna, sem er liklega eitt bezt rekna fyrirtæki landsins, að það framkvæmir ein- göngu fryrir afskriftafé og getur greitt bændum vexti af innlegginu frá 20. mánaðarins eftir að inn er lagt. 1 framhaldi af þessu vil ég geta þess, að eitt af þvi sem land- búnaðarráöuneytið er að láta vinna að er athugun á afkomu ný- liða i landbúnaði. Erindreki Stéttarsambands bænda, Arni Jónasson, hefur unnið mikiö starf i þessa átt, en hefur hins vegar ekki tekizt enn að ljúka þvi. Þeg- ar hann verður búinn að safna gögnum þar um, er ætlunin að með honum veröi þeir menn, sem unnu að þessum málum viö sið- asta uppgjör á lausaskuldum þeirra bænda, sem ekki gátu not- ið þeirra kjara, sem reglur lausaskuldalána á þeim tima mörkuðu,það er núverandi ráðu- neytisstjóri i landbúnaðarráðu- neytinu, Sveinbjörn Dagfinnsson, og Siguröur Lindal, bóndi á Lækjarmóti. Þessir menn munu svo fara yfir skýrslusöfnun Arna og meta stöðu bænda með miklar lausaskuldir og gera tillögur um lausn á vanda þeirra. Söluskattur Þá vil ég vikja að söluskatts- málum. Þau hafa áöur verið rædd.enmestá þessu ári. Astæö- an til þess að málið er meira til umræðu nú, þ.e. söluskattur á dilkakjöti og kjötvörum, heldur en áður var, er m.a. vegna þess hve hár söluskattur er orðinn. Ég hef áður greint frá þvi, aö þegar ég var fjármálaráðherra, hafði ég hugsað mér að fella niður sölu- skatt af kjöti og kjötvörum. En satt bezt að segja þá gafst ég upp við það af ótta við, að ég væri með þvi móti að gera möguleg ennþá meiri undanbrögð i skattamálum en áður höföu verið. Það er ómögulegt aö fordæma undan- brögð i skattamálum og stuðla jafnframt aö þeim. Slikt fer ekki saman. Söluskattsmálið hefur verið leyst meö þvi að auka niður- greiðslurnar eins og gert var á sl. sumri. Um niðurgreiðslurnar er það að segja, að kostir þeirra liggja m.a. i þvi, að þá er hægt að mismuna eöa stjórna, á hvern hátt sjórnvöld og framleiðendur vilja hafa áhrif á einstaka vöru- tegundir. Þess vegna hafa niður- greiðslurnar fyrst og fremst verið á mjólk og mjólkurvörum og dilkakjöti. Ef söluskattur væri niöur felldur og niðurgreiðslur einnig, færi svo að allar kjötvörur stæðu jafnfætis á innlendum markaöi. Ég er ekki viss um að bændur kysu það. A.m.k. er það svo, aö islenzk stjórnvöld, og ég tel þaö hafa veriö i samráði viö bændur, hafa tekið dilkakjötið fram yfir aðrar kjötvörur til niöurgreiðslu. Enda er það sú tegund kjöts, sem almenningur i landinu notar mest og er þvi hag- kvæmast fyrir alla, aö dilkakjötið njóti niðurgreiðslnanna umfram aðrar kjöttegundir. Með niður- greiöslunum má þvi mismuna þeim vörutegundum, sem á inn- lendum markaði eru og fram- leiddar eru innanlands, bæöi eftir þvi hvað framleiðslunni i landinu hentar bezt og einnig hvað neyt- endum kemur að beztum notum. Ég hef ekki nema takmarkaða trú á þvi, að hvort tveggja væri hægt að framkvæma, að halda i niður- greiðslur og fella niður söluskatt, þvi tekjur rikissjóðs hafa ekki, a.m.k. siðustu árin, leyft að svo yrði gert, og hefur ekki verið sið- an söluskattur var upp tekinn. Mestu vandkvæöin sem af sölu- skattinum leiðir eru fólgin i þvi, að þegar verðlagsbreytingar verða, eins og nú hefur átt sér stað hjá okkur til hækkunar á 3ja mánaða fresti, þá eykst sölu- skatturinn sem álag vegna þess að stofninn er meiri. 1 þessu máli finnst mér vera leið til sem skoða veröi. Hún er sú, aö I stað- inn fyrir að rikissjóður nyti allra þeirra auknu tekna sem leiðir af verðhækkunum, þá yröi hluti af auknum söluskatti notaöur til aukinna niðurgreiðslna. Ég er sannfærður um, að þessi leið er farsælli, hún er áhættulaus i sam- bandi við undanbrögð i söluskatti og hún hefur á sér réttmæti vegna þess aö meö þvi móti væri hægt að draga úr hækkun verölagsins i hvert sinn meö þvi að auka niöur- greiðslur með þeim tekjum sem verða til við hækkunina. Þetta er eitt þeirra atriða sem ég vil láta athuga i sambandi við efnahags- aðgerðir nú. Enda þótt vandamálin séu mik- il, má ekki mikla þau fyrir sér. Ég treysti bændastéttinni til að taka á vandamálum sinum meö festu, skilningi og áræði, én ekki neinum skyndiákvörðunum. Ég vil minna á það, að árið 1971 var hægt að selja fiskblokkina til Bandarikjanna fyrir 21 sent, en nú fyrir einn dollar og 21 sent. A sama tima hefur landbúnaðurinn orðið að búa við það, að markaðir hans erlendis hafa versnað og þess vegna finnst mér, þegar á þetta er litið, að menn megi gjarnan hugleiöa það, hvernig hefur þó tekizt aö ráða fram úr vandamálum landbúnaöarins á margvislegan hátt, þegar sjávar- útvegurinn og fiskvinnslan i land- inu eiga i miklum erfiðleikum þrátt fyrir þessa gifurlegu verö- hækkun, sem oröið hefur á þess- um fáu árum. úrbætur Þá kemur næst að þvi, hvernig taka skuli á þeim vandamálum sem við er að fást i landbúnaðin- um. Fyrsta og veigamesta verk- efnið er markaðsmálin, bæði innanlands og utan. Ég tel, að nokkuð hafi verið gert i þessum málum, t.d. með auknum niður- greiðslum á sl. sumri og einnig nú i sambandi við smjöriö, og ullina i haust. En fleira þarf að gera, og það þarf að athuga þessi mál bet- ur. Ég tel að jafnframt þessu þurfi að fylgjast með innlenda markaðinum, hvernig hann kann að vera að breytast og hvernig hægt er að snúast til varnar eða sóknar i sambandi við breyting- arnar. Ég tel t.d. að Osta- og smjörsalan hafi með breyttum umbúöum og breyttri vinnslu á smjöri náð verulegum árangri. Sama tel ég að átt hafi sér stað i sambandi við ostagerð i landinu. Þar hefur með breyttum vinnu- brögðum og nýjum ostategundum náðst verulegur árangur, enda jókst ostasalan hjá okkur á sl. ári. Ég tel aö minna hafi verið gert i sambandi við þetta með dilkakjöt og kjötframleiðsluna i landinu og að þvi þurfi að vinna. Hafa þarf augun opin fyrir, hvernig fólk er fariö að meta fitu á dilkakjöti öðruvisi en áður var. Leggja verður mikla vinnu i markaðsöfl- un erlendis, og mér er það full- komlega ljóst, að það er ekki auðunnið verk. En i þvi sam- bandi minni ég á, að eitt sinn bjuggum við við sauðaútflutning og hann féll siðan niður. Næst seldum við saltkjöt og þaö var eini útflutningurinn á kjöti á vegum landbúnaöarins. Sá mark- aöur lokaðist einnig. Þá var far- ið inn á sölu á frystu kjöti og höfum við unnið þvi markaði, þó að þeir séu ekki nógu hagstæðir. Viö höfum flutt út verulegt magn af kjöti á erlenda markaði og fengum betra verö meðan verð- lag hér innanlands var i meira samræmi við verölag sem gerist hjá öðrum þjóðum en á seinni ár um hefur það oröið óhagstæöara vegna þess að þær þjóðir sem keypt hafa af okkur, t.d. Norö- menn, hafa búiö viö verðbólgu og greitt niöur eigið dilkakjöt og aðr- ar kjötvörur, til þess að búa betur aö framleiðslu sinni og þess höf- um við goldið. Þetta allt er rétt aö hata í huga þegar viö litum á möguleika okk- ar til markaðsaukningar, nýrra markaöa og breyttra fram- leiðsluhátta. Ég held að þörf sé á að kynna hangikjötið okkar er- lendis i von um nýja markaði, einnig þarf að huga að frágangi kindakjöts i neytendaumbúðir, eins og gert hefur verið með fisk- afurðir okkar meö miklum árangri. 1 nefnd þeirri sem skipuð hefur verið til að vinna að sölumálum, eru menn sem eiga að kunna til verka og þekkja til þessara mála, og ég vona að árangur verði af starfi hennar. Allt þetta eru stór mál og við skulum gera okkur ljóst, að viö verðum aö halda áfram að flytja landbúnaðarvör- ur úr landi. Ég tel lika jafnaug- ljóst, að við verðum að halda áfram að nota útflutningsbætur i framtiðinni, þó að ég geti ekki sagt i hve rikum mæli það verður. Það er blekking að halda, að við getum fellt þær niður. Enda mundi það þýða, að hér yrði skortur á landbúnaðarvörum á vissum timabilum og kannski oft- ast. Ég er ekki talsmaður sérstakr- ar samdráttarstefnu i landbún- aði, þó aö ég vilji að öll mál séu skoðuð út frá heilbrigðri skyn- semi og hagkvæmni fyrir bænda- stéttina og þjóðfélagið. Ég vil jafnframtminna á i sambandi við landbúnaöarvörur okkar, að þær eru verulegur hráefnisgjafi fyrir iðnaðinn I landinu, og það riöur á að reyna að halda verðlaginu á ullini og gærunum innan þess ramma, að verksmiðjur okkar, prjóna- og saumastofur i sam- bandi við klæðaiðnaðinn, geti haldið starfsemi sinni áfram, þvi starfsemi þeirra er einn af þýðingarmeiri þáttum byggöa- stefnunnar og uppbyggingar i landinu. Þetta ber að hafa i huga við mat á gildi landbúnaðar. Ég sé ástæðu til aö benda á fregnir, sem nú hafa komið fram um það, að við séum að flytja út hálfunið hráefni og látum erlendum þjóðum eftir að nota vinnu okkar, sem hefur verið lögð i módel-uppbyggingu og form á prjónavörum, og leggjum þeim til islenzku ullina til aö keppa við okkur á niöursettu veröi og eyði- leggja ef til vill þannig þennan mikilvæga iðnað fyrir okkur. Hér verðum við að hafa vakandi auga á, og fer sem fyrr, að saman fara hagsmunir bænda, framleiðenda og neytenda sem vinnuþiggjenda og neytenda i sambandi viö land- búnaðarframleiöslu. Mættu menn hugsa þaö mál meir og oftar en gert hefur veriö. A ég þá við þeg- ar fjallaö er um verðlagsmál bændastéttarinnar og áróður gegn bændastéttinni, sem ég nefndi fyrr i grein minni. Ég hef eftir áramótin setiö fund með forráðamönnum landbún- aðarins vegna verölagsmálanna og hef ásamt ráðuneytisstjóran- um rætt við þá hugmyndir um, hvort ekki sé hægt að nýta fé, sem varið er i útflutningsbætur og niðurgreiðslur, betur en gert hefur verið. T.d. með þvi aö nýta hluta útflutningsbótanna til þess aö auka neyzlu innanlands. 1 þvi sambandi hefur verið beöiö um athugun á niöurgreiöslu á frum- stigi framleiðslunnar, niður- greiðslu i heildsölu og annað er gæti orðið til þess að hagnýta þetta fé á sem hagkvæmastan hátt. Ég held aö nauðsyn beri til að allt það fjármagn, sem frá rikinu fer til landbúnaðarins, verði skoðað i samhengi, þannig að metið sé gildi þess fyrir at- vinnugreinina i heild, og svo geti farið, að gera verði vissar breytingar frá þvi sem áður var um notkun þess, en það er ekki óeölilegt, einkum ef það hefur lengi verið i sama formi. Ég treysti forráðamönnum bænda- stéttarinnar til að taka þetta til gaumgæfilegrar athugunar, og landbúnaðarráðuneytið mun vinna að þessu máli með þeim eins og frekast er unnt. Ef til vill kæmi til greina á ein- hverju stigi i þessu máli sú leið að greiða hluta þessa fjár beint til bænda, en út i einstaka þætti þess ætla ég ekki að fara, þvi að ósk min er sú, að það verði athugað. Skoðun mín er sú, eigi að stjórna þróun landbúnaðarins, þá eigi að gera það á frumstigi með stofnlánum, og er það reyndar staðfest i lögum um Stofnlána- deild landbúnaðarins. Fleiri atriði þarfnast athug- unar, eins og það, að hve miklu leyti rikið á að framleiða til að keppa við bændur þegar markað- ur þrengist og útflutningsbætur duga ekki til þess að bændur nái sinum venjulegu tekjum. Sama er að segja um þá, sem hafa slika framleiðslu sem tómstundagam- an, eins og á sér stað um marga menn i þettbýli sem hafa gaman að þvi að eiga kindur en þurfa ekki tekna sinna vegna að vera að sinna slikum störfum. Þetta finnst mér að eigi allt að athuga og meta i rólegheitum, en upp- hrópanir eigi hér sem annars staðar ekki við. Ég geri mér grein fyrir að framundan geta verið erfiðleikar, sérstaklega i sölumálum. Ég mun ekki hafa þessa grein mina öllu lengri. Þetta hefur að mestu leyti verið yfirlit um land- búnaöarmálin eins og þau horfa viö frá sjónarmiöi landbúnaðar- ráðuneytisins og skv. þeim gögn- um, sem landbúnaöarráöuneytið hefur fengið i hendur frá þeim að- ilum, sem um þau hafa fjallaö og þeim stofnunum sem athugað hafa þjóðmálin frá sjónarhóli efnahagsmálanna i heild. Ég veit aö á þeim er hægt að byggja og þess vegna eru þær notaðar á þann veg sem ég hef gert i þessari grein minni. Ég vil svo enda þessa grein mina meö þvi að vitna til upp- hafsins og minna á, aö þjóö sem ætlar að lifa farsællega i landi sinu, veröur aö kunna að meta land sitt og nýta gæði þess. Ég vil lika segja, að við megum ekki láta erfiðleikana vaxa okkur i augum, þeir fylgja ætiö ein- staklingum, atvinnugreinum og þjóðum, að visu i mismunandi rikum mæli, en hjá þeim verður ekki komizt, enda er það spurning um þroska manna, hvernig þeir bregðast við þeim. Skáldið og Klettafjallabóndinn Stefpah G., sem ekki lifði við tækni nútimans i sinum búskap, hafði til brunns að bera þá framsýni að segja eftirfarandi við þjóðina sem fæddi hann og fóstraði til full- orðinsára, en gerði þó ekki meira fyrir hann: ,,AB hugsa ekki i árum, en öldum að alheimta ei daglaun að kvöldum, þvi svo lengist mannsævin mest.” Ég veit að i kröfupólitik nútim- ans eru orð Klettafjallaskáldsins hjáróma. En þó er það svo að á þessum siðustu árum, höfum við lagt grunninn að mörgum góöum framkvæmdum, sem standa munu um áratugi og e.t.v. aldir. I islenzkri bændastétt, þeirri stétt sem haft hefur forystu á sviöi félagsmála og margra annarra mála frá upphafi vega, þarf að vera og er fyrir hendi festa til aö fást við eigin vandamál og þjóð- félagsins i heild. Að lokum árna ég islenzkri bændastétt gæfu og gengis á nýbyrjuðu ári. Halldór E. Sigurösson Cr hinni nýju kjötiönaöarstöð SIS.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.