Tíminn - 29.01.1978, Page 13

Tíminn - 29.01.1978, Page 13
Sunnudagur 29. janúar 1978. 13 Hallgrímur Jónasson: N áttúrudj ásn í hættu I dagblaðinu Timanum 20. jan. sl. er grein ásamt mynd, sem ber svolátandi yfirskrift: „Höfum viö efni á að friöa Fjail- foss?” Svo virðist sem einhver voldugstjórn rafvæðingar sé að bera viur i fegursta foss Vestur- lands. I greininni segir m.a., að náttúruverndarsamtök á Vest- fjörðum og Náttúruverndarráð lýsi sig andvig virkjun Dynj- andiár og er sú afstaða gleðileg og þakkarverð. Þjórsárver voru einu sinni i hættu fyrir sömu aðilum: gott ef ekki Gull- foss líka. Fossinn Dynjandi i Arnarfirði er sem náttúrugersemi það sama fyrir Vesturland og Gull- foss er Suðurlandi og Selja- landsfoss og Skógafoss eru Eyjafjallasveitunum. Vestur- land á sitt fegursta og tignarleg- asta djásn þar sem Dynjandi er. Langt utan af Arnarfirði blasir hann við. Á hann skyggir ekkert gil né gljúfur. Og niður hans heyrist lengra en frá nokkrum öðrum fossi á íslandi. Neðar i ánni eru 5 smærri fossar hver með sinu nafni. Eflaust gæti afl Dynjandi framleitt raforku en með dreif- ingu orkulina um landið sem eru fyrirhugaðar virðist sem Vest- firðinga ætti ekki að skorta raf- orku. Dynjandi er gimsteinn i náttúruriki iandsins sem óhæfa er að eyðileggja. En fyrst þessi smágrein Tim- ans gaf tilefni til þessara orða minna langar mig til að fræðast um það hjá Vestfirðingum, hvenær og hverjir breyttu um nafn fossins og fóru að kalla hann Fjallfoss. Þegar ég var barn sá ég fyrst mynd af þessu vatnsfalli. Þá hét það Dynjandi. Við þetta nafn hans var áin kennd, Dynjandiá, heiðin ofan fjallsbrúnarinnar Dynjandi- heiði, dalurinn norðan árinnar Dynjandidalur og vogurinn inn i ströndina Dynjandivogur. öll þessi örnefni eru dreginaf heiti fossins. Og ekki nóg með. Bær- inn sunnan árinnar hét llka eftir fossinum. Bærinn Dynjandi er nú afmáður en heiti hans lifir áfram. Ahrif fossins voru svo máttug að þau leiddu af sér öll þessi umhverfisheiti. Ekkert vatnsfall landsins hefir reynzt sterkara i áhrifum á heiti um- hverfisins. Fyrirhvaðhefir hinn gullfagri foss og máttugi verið skírður upp og nefndur heiti sem hann ekki bar, svo ég viti til? Það langar mig til að sýna nánar. I islenzkum sóknalýsingum frá árinu 1839 sem séra Sigurður Jónsson á Hrafnseyri faðir Jóns forseta ritaði fyrir Jónas Hall- grfmsson og samnefndarmenn hans i Kaupmannahöfn, stendur þetta m.a. um margnefndan stað og foss: „Þegar komið er inn með þessu fjalli (sennilega Urðarhlið) er komið inn i hinn vestari botn fjarðarins aö þeim bæ sem heitir Dynjandi hver eð tekur nafn af stórum fjall- fossi árinnar sem rennur hjá bænum.” Hér er fullyrt að bærinn Dynj- andi taki nafn af heiti fossins, þ.e. heiti eftir honum. Það þýðir aðfossnafnið er eldra en bæjar- nafnið. Orðið fjallfoss i lýsingu klerksins er ekki sérheiti enda ritað með litlum stafÞað merk- ireinungis foss, sem fellur fram af fjallsbrún, likt og nafn eins og sjávarfossmerkirfosserfellur i sjó hliðarfoss, sem fellur niður hlið o.s.frv. Nú er hugsanlegt að þessi fagri foss, Dynjandi hafi verið ski'rður upp, likt og er um ein- staka bæi, þótt mér þyki það ósennilegt svo fallegt sem upp- runalegaheitið er og svo margir staðir sem við þaö eru tengdir. En sé svo langar mig til að biðja fróða Vestfirðinga að fræða mig um hvenær þessi nafnbreyting tók gildi eða festist i máli. Mér er sem sé sárt um Dynjandi- nafnið, þaðfelstsvo mikið i þvi. Eitt fegursta fossnafn á Islandi. Megi svo Vestfirðingar — og þjóðin öll — njóta ávallt fegurðar og áhrifa þessa næstum óv iðjaf na nlega náttúrufýrirbæris, sem Dynj- andi i Arnarfirði er. statí on 1. rj| öryrkJ3 - Bensin- H irrKurv,ó\í og h'"a' ii — VerKí*ra FIAT EINKAUMBOD A ISlANDI Davíð Sigurðsson h.f. Siðumúla 35 Simar 38845 — 85855 Okkar árlega hljómplötudtsala hefst mánudaginn 30. jan. Hljóðfærahús Reykjavík Laugavegi 96

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.