Tíminn - 29.01.1978, Síða 14
14 Sunnudagur 29. janúar 1978.
„Hallærisplaniö”, einn af samkomustööum unglinganna.
— Hvað eruð þið að
gera hér? Eitthvað á þá
leið voru spurningar og
viðbrögð unglinga gagn-
vart starfsmönnum svo-
nefndrar útideildar,
þegar þeir fóru að vinna
meðal barna og ungl-
inga á aldrinum 12-18
ára, þar sem þau safn-
ast saman i hópa á göt-
um úti og annars staðar
á almannafæri. — Siðan
komust á kreik sögur
um að útideildarfólkið
væri útsendarar lög-
reglu, foreldra eða
verzlanaeigenda. Fljót-
lega töldu unglingarnir
þó návist þessa fólks
sjálfsagða og eðlilega —
Reynsla okkar af þessu
starfi er jákvæð. Við
finnum það á þvi,
hvernig unglingarnir
taka okkur. Þeir hafa
mikla þörf fyrir að um-
gangast fullorðið fólk og
vilja nota okkur sem
verkfæri til að bæta að-
stöðu sina. — Ungling-
arnir sýna okkur trúnað
og við bregðumst ekki
trausti þeirra, þvi við
gerum ekkert, sem þeir
ekki samþykkja.
Svo fórust þeim Skiila J.
Björnssyni og Eiriki Ragnarssyni
félagsraögjafa nýlegaoröi viötali
viö Timann, en þeir eru báöir
starfsmenn CtideUdar.
Skúli er einn af ellefu körlum og
konum, sem ganga vaktir fyrir
Otideild aöfaranætur laugardaga
og sunnudaga og stundum aörar
nætur. Eirikur er annar tveggja
ráðgjafa deildarinnar, en hinn er
Siguröur Ragnarsson sálfræðing-
ur.
Fólkiö, sem starfar fyrir tJti-
deild vinnur flest meö börnum og
unglingum eða fyrir þau. Þaö
varð þess vart að nokkur hópur
barna og unglinga leitar ekki til
þeirra stofnana, sem til þess eru
ætlaðar að veita þeim aðstoö þeg-
ar vandamál ber aö höndum. Sú
hugmynd vaknaði þvl að breyta
vinnutilhöguninni, færa' starfs-
mennina burtaf skrifstofunum Ut
á meðal barnanna og ungling-
anna á þær slóðir þar sem þau
halda sig i tómstundum.
Sú mikla umræða um börn og
unglinga i aldursflokknum 12-18
ára, sem hafði verið meðal al-
mennings, varð einnig til
að hieypa þessu af staö. Enn er
mikiö talað um hátterni þessa
aldursflokks og oft er afstaða
manna til hans neikvæö. En þessi
hópur er einmitt sá, sem erfiðast
er að ná til eftir venjulegum leið-
um.
Úr varð að mánuðina
mai-september 1976 hófst til-
raunastarfsemi tJtideildar i
Breiðholti, og að henni lokinni
gáfu starfsmennirnir félagsmála-
ráði og æskulýðsráði Reykjvikur-
borgar skýrslu, en þessir aðilar
reka deildina. Niðurstaðan var
sú, að starfsemik þótti hafa tek-
iztvel, fjárveiting fékkst, og Úti-
deild tók á ný til starfa i mai 1977
og hefur verið starfrækt óslitiö
siðan.
Markmið Útideildar er starf
fyrir börn og unglinga I þvi um-
hverfi, þar sem þau dveljast
hverju sinni, með það fyrir aug-
um að skapa gagnkvæmt traust,
sem hægt er að beita til að efla
sjálfsvirðingu, sjálfstraust og fé-
lagsþroska þeirra draga úr hættu
á aðþau leiðist út I aðgerðarleysi,
óreglu og afbrot og stuðla að þvi
aö óskum þeirra og þörfum veröi
betur fullnægt.
Starfsemi útideildar er tvi-
skipt, Breiðholtsdeild og Miðbæj-
ardeild-' Annars vegar er starfs-
vettvangurinn Breiðholt 1, 2 og 3,
Arbær og Fossvogur, og hins veg-
ar Miðbærinn og næstu hverfi.
Hafið þér gert áætlun
Bandalag ísl.
listamanna:
Stjórnvöld
varðveiti Bern-
Bernhöfts-
torfuna
um viðhald á húsinu yðar?
Við aðstoðum
Önnumst hverskonar viðgeröir
Endurnýjum gler og gluggakarma
Viðgerðir - Nýsmíði
Kristján Ásgeirsson,
húsasmíðameistari Sími 53121
FI — A fundi stjórnar Bandalags
islenzkra listamanna 25. janúar
1978 var samþykkt ályktun þess
efnis að stjórn Bandalags isl.
listamanna hvetti stjórnvöld ein-
dregið til þess að taka endanlega
ákvörðun um varðveizlu Bern-
höftstorfunnar svo loks linni leiðu
þófi i mikilvægu menningarmáli.
—29-555—
Opið virka daga frá kl. 9 — 21
og um helgar frá 13—17
Höfum kaupanda
landmikilli jörð innan 300 km fráReykja-
vik
Einnig myndi koma til greina kaup á hús-
eign með einhverju landrými i næsta ná-
grenni Reykjavikur.
Æskilegt væri að útihús væru i nothæfu á-
sigkomulagi, þó ekki skilyrði.
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (viS Stjörnubíó) Síml 2 95 55
SÖLUM.: Hjörtur Gunnarsson, Lárus Helgason, Sigrún Kröyer.
LÖGM.: Svanut Þór Vilhjálmsson hdl.