Tíminn - 29.01.1978, Side 36

Tíminn - 29.01.1978, Side 36
 f ' ______—. . Jjjlj " Wmmmw »18-300 HREVFILL fSöj' 2"'“ Pp i Auglýsingadeild Tímans. A HÚftGiÖGilf Sunnudagur 29. janúar 1978. Sfmi 8 55 22 TRÉSMIDJAN MEIDUR í: \\ SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 V Allt máist og eyðist — jafnvel harður steinninn Grjótið er eyöingu undirorpið eins og annað, og það a ekki sizt við uin íslenzkt grjót, sem mestan part er grágrýti og þolir veðrun mikiu verr en granitið i grann- löndum okkar. Frost, regn og vindar vinna sitt verk hægt og bit- andi. Þó að árin séu stutt, eru aidirnar langar. Og steinninn tærist jafnt og þctt, enda þótt hann sýnist hinn sami i ár og hann var i fyrra. Hér á landi er allmargt virðu- legra húsa, sem reist voru úr höggnu grjóti, steinlimdu, áður en steinsteypan vann úrslitasigur á þess konar vinnubrögðum. Sum þessara húsa eru enn meðal fal- legustu bygginga i landinu, enda gerö að fyrirsögn hinna færustu húsameistara á Norðurlöndum og handbragð iðnaðarmannanna, sem lagt hafa hönd að verki, ekki neitt trys. Engum getur dulizt, hversu óskapleg vinna hefur, verið að höggva allt þetta grjót til á þann hátt, er bezt fór á, og fella það sfð- an i veggina, svo að allt færi sem bezt. En nú er langt siðan menn tóku eftir þvi, að augu voru farin að myndast i steinana og flisar að flagna úr þeim, allt eftir þvi hverrar gerðar grjótið var, og nú skagar steinlimið i samskeytun- um, sem upphaflega var ná- kvæmlega jafnt steinunum, viða út úr veggjunum, en hefur kvarn- azt annars staðar og dottið úr glufunum. Erlendis hefur mengun i borgunum viða flýtt hörnun gam- alla bygginga, svo að þær hafa látið meira á sjá á fáum siðustu áratugunum heldur en áður á heilli öld. Þessu er ekki til að dreifa hér, sizt af öllu, svo að verulegu muni. En það veðurlag, sem við búum við, er þá aftur þeim mun drjúgvirkara, auk þess sem islenzka grjótið, sem okkur finnst samt svo hart viðkomu, er ekki veðurþolið eins og áður var sagt. Einn góðviðrisdaginn brá ljós- myndari Timans fyrir sig betri fætinum og myndaði nokkrar gerðir veggja úr höggnu grjóti með glöggum merkjum eyðingar, sem þeir hafa orðið fyrir á sem næst einni öld. Átti huldufólk- ið myndavélina í Dimmu- borgum? Þessi mynd á dálitið sérkennilega sögu. Hún er af filmu úr mynda- vél, sem fannst i Dimmuborgum i Mývatnssveit um mánaöamótin júni og júli i sumar. Ekki hefur tekizt að finna eiganda að gripn- um. Stina, sem fann myndavélina, vill samt endilega, að hún komist til skila, og þess vegna hefur hún beðið Timann að birta myndina þá arna, þvi aö eigandinn hlýtur að geta glöggvaö sig á henni, eða að öðrum kosti sá, sem myndina tók, ef hann er ekki sjálfur eigandinn. Sá, sem telur sig vera að endur- heimta það, er týndi, getur hringt I sima 91-12236 eða 52272 og fært sönnur á eignarrétt sinn. Nema þá komi upp úr kafinu, að þetta sé myndavél huldufólks, sem hefur ekki neinn sima. Hegningarhúsið við Skólavöröustig: er orðiö harla óslétt. Harðir eitlar i grjótinu standast veðrunina betur, svo að yfirboröiö Timamynd: Róbert. Alþingishúsið: Hvelazt hefur og flisazt úr steinunum, og á stöku staðiðsmáaugu. Gamla lögieglustöðin viö Pósthússtræti: Grjótið af svipaöri gerö og i þinghúsinu, en yfirboröið öllu meira máð og sorfið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.