Fréttablaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 2
2 16. september 2006 LAUGARDAGUR
SPURNING DAGSINS
Grímur, finnst konunni þinni
þetta peninganna virði?
„Já, hún hefur sýnt þessu skilning.
Við erum löngu byrjuð og eigum nú
þegar fjögur.“
Grímur Atlason er nýráðinn bæjarstjóri á
Bolungarvík. Hann fær bónus sem nemur
einum mánaðarlaunum fjölgi íbúum
staðarins úr 907 í 960 á næstu árum.
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur
maður var í fyrradag dæmdur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
fyrir húsbrot og líkamsárás.
Hann hafði í febrúar ruðst í
heimildarleysi inn í íbúð á Dalvík.
Þar veittist hann að manni sem
svaf í rúmi sínu og barði hann
með járnröri með ásoðnum vinkli.
Sá hlaut högg á höfuð og líkama,
skurðsár fyrir ofan enni og bólgu
og skafsár á baki.
Árásarmaðurinn var dæmdur í
sex mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið, svo og til að greiða
sakarkostnað. - jss
Skilorðsbundin refsing:
Barði mann
með járnröri
VARNARLIÐIÐ Starfi björgunarþyrlna Varnarliðs-
ins á Miðnesheiði lauk í gær. Frá og með degin-
um í dag sjá því björgunarþyrlur Landhelgis-
gæslunnar einar um björgunarstarf á og við
Ísland ef þörf krefur.
Nýjar þyrlur bætast við þyrluflota Land-
helgisgæslunnar á næstu vikum. Þjálfun áhafna
hefur staðið yfir síðan í sumar og er á áætlun.
Búist er við að áhafnirnar verði tilbúnar til
starfa þegar nýjar þyrlur koma til landsins.
Í gær voru sex mánuðir liðnir síðan tilkynnt
var um lokun herstöðvarinnar á Miðnesheiði.
Frá þeim tíma hefur verið unnið að því að und-
irbúa Landhelgisgæsluna undir að taka við
þeim verkefnum sem þyrlubjörgunarsveitin á
Miðnesheiði hefur sinnt.
Í 35 ára langri sögu hennar hefur sveitin
bjargað yfir 300 mannslífum.
Þyrlurnar sem teknar hafa verið á leigu frá
Noregi, og koma til landsins bráðlega, eru sömu
tegundar og þær sem fyrir eru. Leiguþyrlurnar
fylla skarðið í flugflota gæslunnar þangað til
fundin verður varanleg lausn.
Í undirbúningi eru kaup á fullkomnum
þyrlum en það ferli er tímafrekt. Norsku
þyrlurnar hafa því verið leigðar til ársins 2008
og mögulegt er að þær verði leigðar töluvert
lengur.
Ásgrímur L. Ásgrímsson, staðgengill fram-
kvæmdastjóra aðgerðasviðs Lanhdhelgisgæsl-
unnar, segir að báðar þyrlurnar séu í góðu lagi
og tilbúnar.
TF-LÍF hafi verið í skoðun í þrjá daga í vik-
unni sem olli því að TF-SIF hefur verið notuð í
þau verkefni sem fallið hafa til undanfarið.
- shá
Björgunarþyrlur Varnarliðsins á Miðnesheiði ekki lengur til taks:
Síðustu þyrluvakt Varnarliðsins lokið
SAMGÖNGUVIKA Opnun samgöngu-
vikunnar verður í dag kl 16.00 við
Ráðhúsið í Reykjavík. Samgöngu-
vikunni er ætlað að vekja fólk til
umhugsunar um hvernig það geti
minnkað gróðurhúsaáhrif. Við
Ráðhúsið í dag verða bílaumboðin
með sýningu á vistvænum bílum
og hjóla- og göngustígakortum
verður dreift.
Í dag er sérstakur hjóladagur í
tengslum við samgönguvikuna en
hjólagestir munu leggja af stað úr
úthverfum og ljúka ferð sinni í
Hljómskálagarðinum. Þar verður
boðið upp á fjölbreytta dagskrá
þar sem ofurhugar munu m.a.
leika listir sínar á BMX-fjalla-
hjólum. - hs
Samgönguvikan hafin:
Hjólað úr út-
hverfunum
GAMALL BÍLL Sýning verður á vistvæn-
um bílum við opnun samgönguvikunnar.
LANDBÚNAÐUR Það vakti furðu
meðal smalamanna í Borgarfirði
eystri þegar þriggja daga lamb
fannst í fyrradag við smölun en
eins og flestir vita er sauðburður á
vorin. Talið er víst að lambið sé í
eigu Ásgeirs Arngrímssonar í
Brekkubæ, föður Magna sem gert
hefur garðinn frægan í Los
Angeles að undanförnu. Fréttavef-
urinn austurlandid.is greinir frá
því að Ásgeir hafi gefið lambinu
nafnið Supernova. Hann átti að
vera gangnastjóri en vegna þeirra
anna í kringum soninn gat hann
ekki gegnt því hlutverki þetta
árið. - kdk
Heimtur í Borgarfirði eystri:
Heimalningur-
inn Supernova
UMFERÐ Talsmaður umferðar-
deildar lögreglunnar í Reykjavík
segir að vonir séu bundnar við
að átak Umferðarstofu sé að
skila sér. Svo virðist sem dregið
hafi úr ofsaakstri þó í mörgu sé
að snúast innan deildarinnar. Af
84 bókunum lögreglunnar
síðasta sólarhring voru 64 þeirra
um umferðarmál. Tólf ökumenn
voru teknir fyrir of hraðan
akstur en vakthafandi lögreglu-
þjónn sagði að athygli vekti að
sem betur fer hafi aðeins fjórir
þeirra verið á yfir hundrað
kílómetra hraða. Einn var
sviptur ökuréttindum fyrir að
aka of hratt í götu þar sem
hámarksharði er 30 km og fjöldi
barna fer um. - kdk
Vona að dregið hafi úr hraða:
Færri teknir á ofsaakstri
UMFERÐ Þung umferð út úr bænum.
LÓÐAMÁL Allt að tuttugu lóðum í
Úlfarsárdal í Reykjavík hefur
verið skilað til borgaryfirvalda
þar sem lóðarhafarnir eru ekki
sáttir við skipulagið. Unnið er að
því að breyta skipulaginu til að
koma til móts við lóðarhafana og
auka líkurnar á því að lausar lóðir
gangi út.
Skipulagið í Úlfarsárdal þykir
sérstakt að því leyti að lóðirnar
liggja afar þétt. Um fjögur hundr-
uð lóðum var úthlutað á sínum
tíma og hefur nú næstum tuttugu
lóðum verið skilað. Margir lóðar-
hafar hafa auk þess gert athuga-
semdir við skipulagið sem þykir
of þétt.
Reglurnar voru þannig að
borga þurfti 250 þúsund krónur í
staðfestingargjald eftir úthlutun-
ina til að koma í veg fyrir lóða-
brask og fékkst gjaldið ekki end-
urgreitt. Það má því búast við að
nokkrir hafi ekki skilað inn lóðum
þó að þeir hafi hugsanlega gert
athugasemdir.
Eftir að lóðunum var úthlutað
kom í ljós að ekki var hægt að hafa
glugga á öllum útveggjum vegna
brunavarnareglugerða. Hrólfur
Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda-
sviðs, segir að við þetta hafi sumir
lóðarhafanna verið ósáttir. Fleiri
athugasemdir hafi einnig verið
gerðar.
Bjarni Þór Jónsson, forstöðu-
maður á fjármála- og rekstrar-
sviði borgarinnar, segir að regl-
urnar um gluggalausan eldvegg
gildi um einbýlishús á lóðum þar
sem fjarlægð frá lóðarmörkum sé
innan ákveðinna marka. Þetta
gildi um hús við tvo botnlanga í
Úlfarsárdal. Í reglugerðinni felist
ákveðin ósanngirni, því að standi
til dæmis tvö hús á sömu lóðinni
gildi þessar reglur ekki. Reglu-
gerðin sé því um margt meingöll-
uð.
Unnið er að lagfæringu á skipu-
laginu. „Það kom fram sú ósk að
færa til byggingareiti og rýmka til
á byggingareitum,“ segir Bjarni.
„Sá sem vinnur þetta hjá skipu-
lagsfulltrúanum er að skoða hvort
það sé mögulegt að koma til móts
við óskir og færa húsin til á lóðun-
um.
Það gæti þýtt að við myndum
úthluta færri lóðum. Við myndum
tvímælalaust sleppa því að úthluta
einni eða tveimur lóðum ef það
væri til bóta.“ ghs@frettabladid.is
Tuttugu lóðum skil-
að út af gluggaleysi
Lóðarhafar eru ósáttir við of þétta byggð í tveimur botnlöngum í Úlfarsárdal.
Um tuttugu lóðum hefur verið skilað þar sem ekki er hægt að hafa glugga á
öllum göflum húsanna. Borgaryfirvöld ætla að koma til móts við lóðarhafana.
LÓÐUM SKILAÐ Lóðir við tvo botnlanga í Úlfarsárdal þykja liggja of þétt og geta íbú-
arnir ekki haft glugga á öllum göflum húsanna vegna þess. Unnið er að því að koma
til móts við óskir íbúanna hjá borginni.
KVEÐJUSTUND Starfi
björgunarþyrlna
Varnarliðsins lauk í
gær. Þyrlurnar verða
nú teknar í sundur og
fluttar til Bretlands.
Með þeim fara um
20 varnarliðsmenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LITLA LAMBIÐ Óvanalegt er að kindur
beri að haustlagi.
LÖGREGLUMÁL Ökumaður var
stöðvaður á 105 kílómetra hraða
í Hvalfjarðargöngunum í
fyrrinótt. Lögreglan á Akranesi
segir þetta mikinn hraða í
göngunum en hámarkshraði þar
er 70 kílómetrar á klukkustund.
Í Borgarnesi var maður á
þrítugsaldri dæmdur til 270.000
króna sektar auk ökuleyfissvipt-
ingar í þrjú og hálft ár. Hann
hafði í apríl síðastliðnum gert
tilraun til þess að stinga lögregl-
una af á um 150 kílómetra hraða
á klukkustund.
Sá eltingarleikur endaði utan
vegar og reyndist ökumaðurinn
vera ölvaður. - þsj
Hraðakstur í Hvalfirði:
Tekinn á 105 í
göngunum
Vonda stjúpmóðirin
Kona sem neyddi stjúpbörn sín til að
troða í sig mat og drykk, kasta matn-
um upp, velta sér upp úr ælunni og
síðan leggja sér hana til munns á nýjan
leik, var á miðvikudaginn dæmd í
tveggja til sex ára fangelsi í Virginíuríki.
BANDARÍKIN
UMFERÐ
Góð þátttaka
Um miðjan dag í gær höfðu rúmlega
13.500 manns ritað nafn sitt undir
yfirlýsingu á síðunni www.stopp.is. Á
síðunni er skorað á Íslendinga að segja
stopp við banaslysum í umferðinni.
FJÖLMIÐLAR „Engar ákvarðanir
hafa verið teknar um róttækar
breytingar í rekstri 365 og því get
ég hvorki útilokað að eitthvað
verði lagt niður né að eitthvað
verði byggt upp,“ segir Ari
Edwald, forstjóri 365 miðla.
Í frétt Blaðsins í gær segir að
lokun NFS sé í undirbúningi og að
til standi að leggja niður blöðin
Sirkus, Hér og nú, Veggfóður og
Birtu. Þá sé óvíst hvort útgáfu
DV verði haldið áfram.
Ari segist ekki sjá að það sem
komi fram í frétt Blaðsins sé
í neinum tengslum við raunveru-
leikann og að tímaritaútgáfa
fyrirtækisins sé í góðum farvegi.
„Þarna er blandað saman hreinni
ímyndun við sjálfsagða hluti, sem
allir geta gefið sér að hljóti að
vera til skoðunar út frá opinber-
um upplýsingum. Það hefur
komið fram að við sem stjórnum
fyrirtækinu teljum ekki að
rekstrarárangurinn sé í ásættan-
legu horfi í ár og að við hyggj-
umst ná meiri árangri á næsta
ári. Því er augljóst að við þurfum
að taka til í okkar rekstri.“
Ari segir blasa við að NFS sé
kostnaðarsamur þáttur í starf-
seminni og því verði ekki komist
hjá því að skoða hvort hægt sé að
gera hlutina með hagkvæmari
hætti þar. „Auðvitað er bagalegt
að það skapist einhver óvissa um
starfsemina sumpart vegna
glannalegrar umræðu annarra
fjölmiðla. En við munum reyna að
skýra það eins fljótt og unnt er
hvaða stefnu málin munu taka.“
- sdg
Engar ákvarðanir hafa verið teknar um reksturinn:
Glannaleg umræða
ARI EDWALD Segir blasað við að NFS sé
kostnaðarasamur þáttur í starfsemi 365.