Fréttablaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 48
■■■■ { nýir bílar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Á GÖTUNNI >>Á GÖTUNNI >>
8
Talsvert mikið er lagt upp úr því að
sameina kosti innanbæjarbíls og
utanbæjarjeppa með hinum nýja
Jeep Grand Cherokee Limited. Leður-
áklæðin, stereógræjurnar og lúgan
gera bílinn ríkmannlegan að innan,
en bíllinn er þó fyrst og fremst jeppi
sem kemur manni nánast hvert sem
er.
Quadra drive II, skynvæna
sídrifið, er tölvustýrt og sér til þess
að bíllinn eigi ekki í nokkrum vand-
ræðum með að keyra á ólíku undir-
lagi, auk þess sem hann er búinn
spólvörn og stöðugleikakerfi. Í bíln-
um er 218 hestafla 3,0 l Mercedes-
Benz dísilvél.
Undirvagn bílsins er vel varinn
með góðum hlífum. Rými í aftursæti
er gott, auðvelt er að koma börnum
þar fyrir í bílstól og sjá þau vel út.
Bíllinn er útbúinn skriðstilli, sem
hentar sérstaklega vel þegar ekið er
út fyrir bæinn. Afar auðvelt er að
nota það í akstri og léttir það mjög
á bensínfætinum þegar ekið er eftir
löngum vegi án þess að stoppa.
Fyrir jeppa af þessari stærð er Jeep
Grand Cherokee Limited á sanngjörnu
verði. Hann er öruggur og þægilegur
jaxl sem nýtist við ólíkar aðstæður og
hentar bæði einstaklingum og fjöl-
skyldufólki vel.
Öruggur og þægilegur jaxl
Jeep Grand Cherokee er ríkmannlega búinn en er fyrst og fremst góður jeppi.
Nýjasta litla störnuskotið í Evrópu
er að koma til Íslands, Peugeot 207
verður frumsýndur á Íslandi um
næstu mánaðarmót, bíllinn sem
Auto Express kallaði „mikilvægasta
nýja bílinn á árinu“.
Nýi Peugeot 207 fylgir í fótspor
205 og 206 sem báðir voru mynd-
gervingar sinna bílakynslóða.
Frá upphafi hefur 200 línan
frá Peugeot þótt fram-
úrskarandi fyrir hönnun
og aksturseiginleika.
Nýjasta afurðin er
stærri, rúmbetri,
stællegri og
öruggari, með
fimm stjörnur
frá NCA. Aksturs-
gleði hefur allt-
af verið í fyrsta
sæti hjá Peugeot
og blaðamenn
hafa ekki sparað stóru orðin. „Ein-
faldlega framúrskarandi aksturs-
eiginleikar“, „gneistar af aksturs-
ánægju“, „unaðslegur akstur“, „án
efa best smíðaði Peugeot hingað til,
maður hefur trú á að hann sé jafn
vel smíðaður og Mercedes-Benz A-
class“.
Val er um fjórar vélar, tvær
sprækar 1,4 l og 1,6 l bensínvél-
ar og einstaklega sparneytnar 1,4
og 1,6 dísilvélar. Áköf orka geisl-
ar frá sterkum og kraftmiklum
ytri línunum og tilfinning
um yfirburði í þægindum
og öryggi umlykja öku-
mann og farþega. Með
dýnamískri og öfl-
ugri aksturshæfni í
samræmi við óað-
finnanlegt veggrip
skapar Peugeot
207 nýja gerð af
bíl, sem þú elskar
að keyra og átt af
ástríðu.
Áætlað verð á frum-
sýningardegi 207 er
frá 1.599.000 kr.
Mikilvægasti nýi bíllinn á árinu
Peugeot 207 fær góða dóma í erlendum blöðum.
Vélar (B): 2,7 l/173 hö
Vélar (D): 2,2 l/125 hö
Skiptingar: bsk/ssk
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 774-1.582 l
Árekstrarpúðar: 6
ESP og TSC
Umboð: B&L
Verð frá: 3.460.000
Hyundai Santa Fe
Vélar (B): 3,0 l/306 hö
Vélar (D): 3,0 l/286 hö
Skiptingar: bsk/ssk
4 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 460 l
Árekstrarpúðar: 6
Fjölþætt DSC kerfi
Umboð: B&L
Verð frá: 5.620.000 (i), 5.830.000 (d)
BMW 335d / 335i
Vélar (D): 2,0 l/140 hö
Skiptingar: 6 g (bsk), 7 g (ssk)
4-5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 546 / 565-1.660 l
Árekstrarpúðar: 6
ESP/ASR/EDL/ABS/EBD
Umboð: Hekla
Verð frá: 4.450.000
Audi A6 2,0 TDI
Vélar (B): 2,0 l/160 hö
Skiptingar: 6 g (bsk)
2 dyra / 2 sæta
Farangursrými: 150 l
Árekstrarpúðar: 6
Stöðugleikastýring
Umboð: Brimborg
Verð frá: 3.170.000
Mazda MX-5
Vélar (D): 2,7 l / 165 hö
Skiptingar: 5 g (ssk)
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 625-1.222 l
Árekstrarpúðar: 2
TOD, ESP, ABS og EBD
Umboð: Bílabúð Benna
Verð frá: 4.590.000
Ssang Yong Rexton
RX270Sxi
Vélar (B): 2,0 l/146 hö
Skiptingar: 5 g (bsk), 4 g (ssk)
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 270-1.045 l
Árekstrarpúðar: 4 + gardínur
ABS/EBD, ESP-valbúnaður
Umboð: Suzuki bílar
Verð frá: 2.290.000 (ssk)
Suzuki SX4
Stærri
en þig grunar! Krókhálsi 16
Sími 588 2600
www.velaver.is