Fréttablaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 32
[ ]
Citroën C1 er lítill og snagg-
aralegur bíll sem hannaður er
með sparneytni og innanbæj-
arakstur í huga. Sem slíkur er
hann fremstur meðal jafningja
en aðeins meðal jafningja.
C1 er afrakstur PSA-samstarfsins
en að því standa Toyota, Peugeot og
Citroën. Útkoman er Peugeot 107,
Toyota Aygo og Citroën C1 sem allir
eru í raun sami bíllinn með örlitlum
útlitsbreytingum. Innviðir eru hinir
sömu, vélar allar eins og flestallur
staðalbúnaður sá sami. Bílarnir eru
meira að segja allir framleiddir á
sama stað, í borginni Kolin í Tékk-
landi. Breytingarnar felast aðallega
í ytra útliti og þar hefur C1 vinning-
inn.
Bíllinn er mjög lítill og léttur,
rétt tæplega 900 kíló, og það skilar
sér í snerpu. Vélin er ekki stór en
hún skilar því sem þarf. Bíllinn er
framleiddur með annars vegar 68
hestafla 1 lítra bensínvél, og hins
vegar 1,4 lítra dísilvél sem ekki er
fáanleg hér á landi. Gírkassinn er 5
gíra og beinskiptur, frekar stífur og
maður fær það á tilfinninguna að
þeir hafi notað ódýrari týpuna.
Innviðir bílsins státa af nýstár-
legri hönnun, en það sama er uppi á
teningnum þar og í gírkassanum.
Fyrst og fremst er hugsað um hag-
kvæmni og plastið í mælaborðinu
segir einfaldlega: „Ég er ódýr.“
Þetta á sérstaklega við um miðstöð-
ina og ég vona að ég hafi rangt fyrir
mér en hún virkar allt annað en
traustvekjandi.
Ástæðan fyrir því að allt í bílnum
virkar ódýrt er einföld. C1 er ódýr
bíll. Nýr þriggja dyra C1 kostar
1.395.000 krónur og fimm dyra kost-
ar hann 1.435.000 krónur. Það er lítið
fyrir nýjan bíl og hér kemur besti
parturinn: Það er gaman að keyra
hann. Vélin er spræk, bíllinn lipur
og hann lætur vel að stjórn. Í mið-
bænum á annatíma leið mér eins og
á þjóðvegi eitt. Allar þröngu göturn-
ar urðu skyndilega breiðstræti og
litlu lausu plássin breyttust í bíla-
stæði. Þarna á C1 heima og honum
líður vel heima hjá sér.
C1 er góður borgarbíll. Þegar
hann kemur út á þjóðveginn er hann
lítið spennandi, verður frekar mús á
fílaslóð. Á stofnleiðum og þröngum
götum hinsvegar er C1 sparneytinn,
eyðir aðeins 4,6 á hundraðið að með-
altali, hann er snöggur og snarpur
og algjörlega á heimavelli.
tryggvi@frettabladid.is
Innanbæjarbíll í snattið
Skottið er ekki rúmgott, en með því að fella sætin niður má koma fyrir slatta af dóti.
C1 lítur betur út en bræður hans Toyota
Aygo og Peugeot 107.
Miðstöðin skilar sínu en hún er einfald-
lega ljót.
Vélin skilar 68 hestöflum, sem er meira en nóg fyrir tæplega 800 kíló.
C1 er mjög lítill bíll og hentar því vel á þröngar götur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYNSLUAKSTUR
Eðalvagn. Einn flottasti bíll heims heitir Bugatti og hefur verið
framleiddur af Volkswagen síðan 1998. Fyrsta eintakið frá Volkswagen ber
nafnið Veyron 16,4 (þar sem hann er með 16 strokka vél) og kemst upp í
heila 407 km hraða á klukkustund. Hann kom á göturnar í mars á þessu ári.
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
Eigum fyrirliggjandi
aukahluti á Ameríska bíla.
Til afgreiðslu strax.
23
97
/T
A
KT
ÍK
/
1
1.
9.
´0
6
USA
AUKAHLUTIR
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið
CITROËN C1
Vél: 998 cl 68 hestöfl / 93 Nm
Meðaleyðsla: 4,6 l/100 km
Þyngd: 880 kg
Plús
Lítill og léttur
Sparneytinn
Gott að aka
Mínus
Lítill og nettur
Stífur gírkassi
Ódýr innrétting
Verð frá: 1.395.000
Verð prufubíls: 1.435.00