Fréttablaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 16.09.2006, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 16. september 2006 Litlar sem engar takmarkanir eru á því hvernig bíla sextán ára ökunemar mega nota í æfingaakstur. Æfingaakstur er tilvalinn til að venja nýja ökumenn við umferð- ina og tryggja að þeir séu betur undir ökunámið og ökuprófið búnir. Í reglum um æfingaakstur er ekki kveðið á um neinar takmark- anir sem lúta að ökutækinu, öðru en að það sé innan þeirra marka sem ökuskírteini í viðkomandi flokki veitir réttindi á. Hjá Frumherja fengust þær upplýsingar að reglurnar leyfðu sextán ára ökunemum að aka sjálfskiptum bíl í æfingaakstri, þó að ökukennsla fari fram á bein- skiptum bíl, og fullbreyttum fjallajeppum, þó svo að akstur slíkra bíla krefjist sérlega mikill- ar varúðar. „Menn eru náttúrulega ekki á eitt sáttir varðandi þetta. Breyttir bílar eru með talsvert breyttum aksturseiginleikum og varúðar- miða sem settur er í mælaborðið til að vara við því að bílnum hafi verið breytt frá því að verksmiðj- an smíðaði hann og hann hafi ekki sömu aksturseiginleika og upp- haflega,“ segir Svanberg Sigur- geirsson, ábyrgðarmaður öku- prófa hjá Frumherja. „Ég hef samt ekki heyrt af neinni umræðu um hvort þessu eigi að breyta. Það eru engar tak- markanir á bílunum nema að þeir mega ekki vera meira en 3.500 kg að heildarþyngd,“ segir Svan- berg. Í umferðarlögum er kveðið sérstaklega á um að leiðbeinandi sem fylgi ökunema í æfingaakstri verði að vera minnst 24 ára að aldri, hafa minnst fimm ára reynslu af stjórnun ökutækis á borð við það sem notað er og hafi ekki verið án ökuskírteinis síð- ustu tólf mánuði. einareli@frettabladid.is Mega aka breyttum bíl- um við æfingaakstur Breyttir jeppar henta vel á fjöll, en eru þeir jafn hentugir í æfingaakstur? FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ræsir hf. stendur á tíma- mótum. Nýlega var gerður samningur við Robert Bosch auk þess sem framundan er flutningar í nýtt húsnæði. Ræsir hefur gengið til liðs við Bosch Car Service til þess að efla þjónustu sína við bifreiðaeigendur og stefnir á að komast í fremstu röð bifreiðaverkstæða á Íslandi. Bosch er þekkt merki, flestir þekkja verk- færi þeirra en færri vita að þeir eru leiðandi í framleiðslu á bílavara- hlutum fyrir fjölmarga bifreiða- framleiðendur. Ræsir er viðurkenndur þjón- ustuaðili á Íslandi fyrir Mercedes- Benz, Chrysler, Dodge, Jeep, Mazda og Mantra 4x4, en vonir standa til að bifreiðaverkstæði þeirra geti í framtíðinni þjónustað fleiri bíla sem Bosch hannar varahluti fyrir. Ræsir hafði áður umboð fyrir Mercedes Benz og Mazda. Af ýmsum ástæðum eru umboðin komin annað en Ræsir heldur hins vegar áfram að flytja inn og selja bíla. Ákvörðunin um samvinnu við Bosch var tekin samfara byggingu nýs húsnæðis Ræsis að Krókhálsi 11 sem væntanlega verður tekið í notkun um áramótin. Ræsir hefur þegar hafið innflutning á varahlut- um frá Bosch og verður sá innflutn- ingur stór-aukinn þegar flutt verð- ur í nýja húsnæðið. Einn af kostum þess að vera í samstarfi við Bosch Car Service er að Bosch rekur stóran gagnagrunn yfir alla þá hluti sem lang flestir bílar heimsins eru samansettir úr. Unnið er að því að tengja Ræsi við gagngrunninn sem mun með tíman- um auðvelda bilanagreiningu og leit að varahlutum. - sgi Breytingar hjá Ræsi Glæsileg bygging rís nú á Krókhálsi. Þar verður Ræsir með fullkomið bifreiðaverk- stæði Hallgrímur Gunnarsson kynnir hið nýja fyrirkomulag á blaðamannafundi FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nýr VW jepp- lingur BYGGÐUR Í WOLFSBURG Á SÖMU GRUNNPLÖTU OG GOLF. Nýi jepplingurinn frá Volkswagen sem myndaður var með mikilli leynd hér á landi síðastliðinn vetur og sýndur sem hugmyndabíll á bílasýningunni í Genf skömmu síðar hefur fengið nafn eða gerðarheiti. Heitið er Tiguan og var nafnið valið eftir að skoðanakönn- un hafði farið fram meðal 350 þúsund bílaáhugamanna í Evrópu. Önnur nöfn sem til greina komu voru Nanuk, Namib, Rockton og Samun. Bíllinn verður framleiddur í Wolfsburg og kemur á markað- inn árið 2008. Tiguan er hugsaður sem eins konar litli bróðir VW Touareg. Hann er byggður á grunnplötu VW Golf og er með sítengdu fjór- hjóladrifi. Tiguan verður svipaður að stærð og Toyota RAV-4 og aðrir sambærilegir jepplingar, enda er hugmynd ráðamanna Volkswagen að tefla honum fram á markaði gegn þeim. Tiguan var sýndur í Genf undir vinnuheitinu Concept A. Hann vakti þar mikla athygli og fékk góðar móttökur bæði blaðamanna og almennra sýningargesta. Sýn- ingarbílarnir þar voru með fjórum hurðum á hliðum og opnuðust þær aftari á lömum að aftanverðu. Slíkar afturhurðir voru algengar á bílum fram á sjötta áratug síðustu aldar og kallast meðal bílamanna sjálfsmorðsdyr (Sucide-door). Samkvæmt frétt Der Spiegel er ekki talið líklegt að slíkar dyr verði á fjöldaframleiddum Tiguan jepplingum þegar þeir koma á markað 2008, heldur hefðbundn- ar með lömum á framanverðum afturhurðunum. (www.billinn.is) Tiguan var það, heillin. Ók sama bílnum 1,6 milljón kílómetra á 17 árum. Englendingur, Peter Gilbert að nafni, hreifst svo mjög af sænska rallkappanum Erik Carlsson sem sigraði í Monte Carlo rallinu árið 1963 á Saab 96 með afllítilli þriggja strokka tvígengisvél að hans fyrsti bíll varð samskonar og sá sem Erik Carlsson var svo sig- ursæll á í fjöldamargri rallkeppni á árunum 1955-1970. Gilbert eignaðist sinn fyrsta Saab árið 1966 og hefur æ síðan átt Saab bíla. Hann fluttist til Bandaríkjanna og eignaðist þar sinn núverandi bíl sem er grár Saab 900 árgerð 1989 sem hann keypti nýjan á því herrans ári. Á þeim 17 árum sem Peter hefur átt bílinn hefur hann ekið honum milljón mílur eða 1,6 milljón kíló- metra. Bíllinn er allur upprunalegur og óupptekinn, en eigandinn segir að galdurinn við að kreista þenn- an ótrúlega kílómetrafjölda út úr bíl sé sá að fylgjast vel með honum og endurnýja reglulega ýmsa slit- hluti í stað þess að bíða eftir því að þeir bili, smyrja og skipta reglulega og oft um allar olíur og síur. Bílasafn í nágrenni við heimili Gilberts hefur falast eftir bílnum og lofað eigandanum því að hann megi heimsækja sinn gamla félaga eins oft og hann lystir. (www.fib.is) Milljón mílna Saab Saab 900, árgerð 1989, er ekki fallegasti bíllinn á götunni en sennilega með þeim endingabetri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.