Fréttablaðið - 16.09.2006, Page 8

Fréttablaðið - 16.09.2006, Page 8
8 16. september 2006 LAUGARDAGUR TRÚMÁL Næstu sex þriðjudags- kvöld verður boðið upp á sam- veru í Laugarneskirkju undir yfirskriftinni: Af hverju lækkar trúin kvíða? Bjarni Karlsson sóknarprest- ur kirkjunnar segir hugmyndina að þessum samverustundum hafa sprottið af þeirri staðreynd að kvíði sé orðinn „norm“ í vest- rænu samfélagi. „Hin undirliggj- andi sannfæring okkar er sú að þegar öllu er á botninn hvolft er manneskjan ein og að hver sé sjálfum sér næstur.“ Fyrir skömmu heyrði Bjarni fjármálaráðgjafa leggja til að fólk fjárfesti ekki með maka sínum vegna þess í hve skamman tíma hjónabönd vara almennt. „Með þessu er verið að boða van- traust á hjónabandið og þetta þýðir einnig að við erum líka ein í hjónabandinu.“ Bjarni segir kristna trú ganga út á að við séum aldrei ein og til að sýna þetta hafi guð fæðst sem einn af okkur. „Við vitum að ekkert er öruggt í þessum heimi en það er jafn- framt gott að vita að örlög okkar eru í hendi guðs sem elskar okkur. Guðsþekking er hagnýt og boðskapur kristninnar á erindi við aðstæður okkar í samtíman- um.“ Samveran byrjar kl. átta á þriðjudagkvöldum með söng og klukkan 20.30 býður séra Bjarni upp á trúfræðslu. - hs Séra Bjarni býður upp á samveru undir yfirskriftinni af hverju lækkar trú kvíða: Guðsþekking er hagnýt BJARNI KARLS- SON Segir guðsþekkingu hagnýta og að boðskapur kristninnar eigi erindi við aðstæður okkar í samtímanum. BANDARÍKIN Djúpur ágreiningur er í bandaríska Repúblikanaflokkn- um, flokki Bush forseta, um her- dómstólana sem eiga að fjalla um mál fanganna í Guantanamo á Kúbu. Meðal þeirra repúblikana sem stigið hafa fram gegn forsetanum í þessu máli eru þungavigtarmenn á borð við John McCain, sem talinn er líklegur til að verða forseta- frambjðandi flokksins árið 2008, og Colin Powell, fyrrverandi utan- ríkisráðherra í stjórn Bush. Deilurnar snúast einkum um ákvæði í frumvarpi um herdóm- stólana, sem Bush lagði fram fyrr í mánuðinum, þar sem meðal annars bann Genfarsamninganna við pynt- ingum og annarri slæmri meðferð á föngum er túlkað sem svo að heimilt verði að niðurlægja og van- virða fanga án þess að það teljist brot gegn Genfarsamningunum. Þessi „endurskilgreining“ myndi meðal annars gera herdómstólun- um heimilt að nota vitnisburð frá föngum sem fenginn er með slík- um aðferðum. Einnig er deilt um það hvort skylt verði að sýna föngum þau gögn sem notuð yrðu gegn þeim við réttarhöldin. Forsetinn vill að heimilt verði að halda gögnum leyndum fyrir föngunum sjálfum, en í mildari útgáfu frumvarpsins er það ekki heimilað. Hermálanefndir þingsins, bæði hermálanefnd fulltrúadeildarinnar og hermálanefnd öldungadeildar- innar, afgreiddu frumvarpið nú í vikunni. Fulltrúadeildarnefndin féllst á þá útgáfu frumvarpsins sem Bush lagði fram en Öldungadeildar- nefndin hafnaði henni og sam- þykkti þess í stað aðra og mildari útgáfu af frumvarpinu þar sem réttindi fanganna eru tryggð í fullu samræmi við Genfarsáttmálana. Bush forseti segist ætla að beita neitunarvaldi sínu, fari svo að þingið samþykki á endanum þessa mildari útgáfu af frumvarpinu. Hann segir að verði frumvarpið að lögum verði Bandaríkjamönnum ekki lengur stætt á því að halda áfram yfirheyrslum á vegum CIA yfir grunuðum hryðjuverkamönn- um. Powell segir hins vegar að allar hugmyndir um að „endurskil- greina“ Genfarsamningana geri ekki annað en að grafa undan „sið- ferðilegum grundvelli baráttu okkar gegn hryðjuverkum“ og „stofna okkar eigin hermönnum í hættu“. gudsteinn@frettabladid.is STANDA SAMAN GEGN LEIÐTOGA SÍNUM John Warner, formaður hermálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, og John McCain, sem þykir líklegur forsetaframbjóð- andi repúblikana árið 2008, ásamt fleiri nefndarmönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Repúblikanar deila hart við forsetann Ósætti er um herdómstólana. Colin Powell skerst í leikinn og snýst gegn fyrrum samherjum sínum. Bush vill nýja bandaríska túlkun á Genfarsamningnum. STJÓRNMÁL Mikil sókn er í viðtöl við borgarstjóra, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Samkvæmt upplýs- ingum úr Ráðhúsinu áttu 97 pantað viðtal við borgarstjóra síðdegis í gær. Borgarstjóri hefur viðtalstíma tvisvar í viku, tvo tíma í senn og skipta þeir tugum sem þegar hafa fengið viðtal. Að sögn Jóns Kristins Snæhólm, aðstoðarmanns borgarstjóra, eru erindin sem borgararnir bera upp við borgarstjóra af margvíslegu tagi, til dæmis um húsnæðismál, umhverfismál og umferðarmál. Þá vilji margir kynna borgarstjóran- um hugmyndir af ýmsum toga og jafnvel leita liðsinnis við að hrinda þeim í framkvæmd. - bþs Annir í viðtalstímum: Biðraðir hjá borgarstjóra FÉLAGSMÁL „Fíkniefnavandi fer vaxandi meðal ungs fólks,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, en hann kynnti gær forvarnardaginn sem halda á 28. september. Ólafur Ragnar benti á að fíkniefnasalar gerðust sífellt útsjónarsamari í því að koma efnum sínum til ungmenna. Við því þyrfti að bregðast og væri forvarnardagurinn liður í því. Markmiðið er að kynna ráð sem talin eru geta forðað börnum og unglingum frá því að verða fórnarlömb fíkniefna. Ráðin eru byggð á niðurstöð- um rannsókna vísindamanna við Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Þær hafa sýnt að þeir unglingar sem verja að minnsta kosti klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru virkir í æskulýðs- starfi og byrja seint að drekka áfengi eru ólíklegri til að verða fíkniefnum að bráð. Það var Ólafur Ragnar Grímsson sem átti frumkvæðið að þessum degi en í samstarfi við hann eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ung- mennafélag Íslands, skátahreyfingin, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar. Fulltrúar íþróttahreyfinga ætla að heimsækja alla 9. bekki landsins og staðið verður fyrir ráð- stefnu 25. september þar sem fjallað verður um skipulag og ábyrgð íþrótta- og æskulýðshreyfingar í forvörnum. Sagðist forsetinn binda vonir við að þessi dagur yrði að árlegum viðburði og hvatti foreldra til að kynna sér ráð forvarnardagsins. - kdk Forvarnardagur gegn vímuefnavanda haldinn að frumkvæði forseta Íslands: Barist gegn fíkniefnavanda ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Kynnti í gær forvarnardaginn sem haldinn verður 28. september og forsetinn vonar að verði haldinn ár hvert. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM A›alfundur 2006 D A G S K R Á 1. Sk‡rsla stjórnar um starfsemi félagsins á li›nu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir li›i› starfsár lag›ur fram til samflykktar ásamt sk‡ringum endursko›anda. 3. fióknun til stjórnar ákve›in. 4. Kosning stjórnar félagsins. 5. Kosning endursko›enda félagsins. 6. Umræ›ur og atkvæ›agrei›slur um önnur mál sem löglega kunna a› ver›a lög› fyrir fundinn e›a fundurinn samflykkir a› taka til me›fer›ar. A›alfundur 2006 A›alfundur Alfesca hf. ver›ur haldinn flri›judaginn 19. september 2006 kl. 17.00 í Gullteigi á Grand Hótel Reykjavík. Fundurinn fer fram á ensku. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á a›alfundinum, skulu hafa borist stjórninni eigi sí›ar en sjö dögum fyrir a›alfundinn. Dagskrá a›alfundarins, ársreikningur félagsins og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til s‡nis, sjö dögum fyrir a›alfundinn. Atkvæ›ase›lar og fundargögn ver›a afhent vi› innganginn og á skrifstofu félagsins a› Fornubú›um 5, Hafnarfir›i, á fundardaginn. Hafnarfir›i 1. september 2006 Stjórn Alfesca hf. 1 Hver er einn í kjöri til emb- ættis formanns ungra jafnaðar- manna? 2 Til hvaða borgar er íslenski tónlistarmaðurinn Hermigervill að flytja? 3 Hjá hvaða knattspyrnufélagi í Reykjavík sagði Atli Eðvalds- son nýlega upp störfum? Flaggaði röngu skírteini Lögreglan í Reykjavík stöðvaði mann í fyrrinótt við venjubundið eftirlit. Hann sýndi lögregluþjónum öku- skírteini sem hann hélt fram að væri í sinni eigu en svo óheppilega vildi til að annar lögregluþjónanna sem stöðvuðu hann þekkti til mannsins sem ökuskírteinið átti réttilega. Upp komst um lygar ökumannsins og í ljós kom að hann hafði áður verið sviptur sínum ökuréttindum. LÖGREGLUFRÉTTIR Mál tekið fyrir Mál Öryrkjabandalags Íslands gegn íslenska ríkinu var í gær tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Aðalmeð- ferð í málinu fer fram 6.október næst- komandi. Aðalkröfu ÖBÍ var vísað frá dómi en varakrafan verður tekin til efnismeðferðar. DÓMSMÁL VEISTU SVARIÐ? STJÓRNMÁL Kristján Pálsson, fyrrverandi alþingismaður, gefur kost á sér í annað sæti á lista Sjálfstæðisflokks- ins í Suðurkjördæmi. Kristján sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokk- inn en sagði sig úr honum fyrir síðustu kosningar og bauð fram sér. Hann náði ekki kjöri en gekk á ný í flokkinn skömmu síðar. Drífa Hjartardóttir alþingis- maður hefur lýst yfir að hún gefi kost á sér í annað sætið. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra stefnir, enn sem komið er, einn á fyrsta sætið. - bþs Kristján Pálsson: Sækist eftir öðru sætinu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.