Fréttablaðið - 16.09.2006, Page 18
16. september 2006 LAUGARDAGUR18
Umræðan
Þingflokksformanni Fram-
sóknarflokksins svarað
Hjálmar Árnason, formaður þingflokks framsóknarmanna,
skrifar nokkuð óvenjulega grein í
Fréttablaðið sl. miðvikudag. Grein-
inni er bersýnilega ætlað að vera
eins konar vörn fyrir málstað
Framsóknarflokksins. Í yfirskrift
hennar er vísað í „pólitísk
hryðjuverk“. Við lestur
greinarinnar kemur í ljós
að hryðjuverkamennirnir
eru undirritaður og for-
maður Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs,
Steingrímur J. Sigfússon.
Við erum kallaðir lygarar,
menn sem „sannleikurinn
virðist engu skipta“ því
„tilgangurinn helgi meðal-
ið“. Hjálmar telur að jafn-
harðan og flett sé ofan af lygum
okkar séum við komnir fram með
ný ósannindi. „Í stað þess að
skammast sín fyrir lygarnar og
ásakanirnar búa þeir til nýtt leikrit
sem hefst á því að Ögmundur geng-
ur af fundi iðnaðarnefndar og
baðar út öllum öngum í fjölmiðlum.
Nú er það leynd Landsvirkjunar
sem er glæpurinn...“
Ekki ætla ég mér að reyna að
hafa áhrif á hvernig formaður
þingflokks Framsóknarflokksins
hagar málflutningi sínum, hvaða
orð hann notar og hvernig. Það er
hans mál.
Lesendum til glöggvunar vil ég
hins vegar fara örfáum orðum um
tilefni skrifa Hjálmars Árnasonar.
Nýlega kom fram í fjölmiðlum
Grímur Björnsson, virtur vísinda-
maður á sviði jarðvísinda. Í frétta-
viðtölum við hann var til umfjöll-
unar greinargerð sem hann sendi
stjórnvöldum í febrúar árið 2002.
Þessi greinargerð hefur öðlast
aukna þýðingu í ljósi þess að
stöðugt eru að koma fram nýjar
upplýsingar jarðfræðilegs eðlis um
Kárahnjúkasvæðið sem orðið hafa
þess valdandi að Landsvirkjun
hefur þurft að breyta framkvæmd-
um á ýmsa lund. Varnaðarorð
Gríms lúta að því sem síðar hefur
komið í ljós og þá ekki síður hinu að
hann telur rannsóknum mjög ábóta-
vant. Í bréfi sínu til stjórnvalda
segir Grímur Björnsson í upphafs-
orðum: „Nú í dag, 14. febrúar 2002,
stendur svo til að leggja fyrir
Alþingi frumvarp um virkjunina
og fá leyfi þingsins til að mann-
virkið verði reist. Sökum þess hve
undirrituðum finnst þetta verkefni
illa undirbúið og alls ekki tækt til
ákvarðanatöku, er þessi greinar-
gerð sett saman …“.
Hér er engum blöðum um það
að fletta að vísindamaðurinn er að
leitast við að koma á framfæri upp-
lýsingum til þeirra sem taka
ákvörðun um virkjunarfram-
kvæmdina. Valgerður Sverrisdóttir,
fyrrverandi iðnaðarráðherra, hefur
hins vegar sagt í umæðu um þetta
mál að Alþingi hafi fengið allar
þær upplýsingar sem skiptu máli!
Það eru þá væntanlega Valgerður
sjálf, orkumálastjóri og Lands-
virkjunarmenn sem eiga að ákveða
hvað skiptir Alþingi máli.
Hjálmar nefnir að vísað hafi
verið í þessa skýrslu á Alþingi á
árinu 2003. Það sem máli skiptir í
mínum huga er hvað með
greinargerðina var gert
þegar hún kom fram, á
þeim tíma sem ákvörðun
var tekin. Það er á þess-
ari forsendu sem við
höfum kallað eftir pólit-
ískri ábyrgð í þessu máli,
nokkuð sem fyrrverandi
iðnaðarráðherra hefur
neitað að ræða.
Nú vill svo til að á
Alþingi voru þingmenn
sem sjálfir vildu fara í saumana á
málum og einnig bera álitamál
undir sérfróða aðila sem þeir
treystu. Í mínum huga er það alger-
lega óásættanlegt að upplýsingum
af þessu tagi skuli hafa verið haldið
frá þingmönnum og skrifast
ábyrgðin að sjálfsögðu á þann ráð-
herra sem fór með málaflokkinn og
ríkisstjórnina í heild sinni.
Þá er komið að „leikritinu“ sem
Hjálmar nefnir svo. Það var þegar
undirritaður mótmælti því að þing-
menn væru krafnir um að þegja
yfir upplýsingum um efnahagsfor-
sendur virkjunarinnar. Formaður
iðnaðarnefndar Alþingis, Birkir J.
Jónsson, tók undir þessa kröfu
Landsvirkjunarmanna og sagði að
fráleitt væri að gera slíkar upplýs-
ingakröfur á hendur fyrirtæki „úti
í bæ“ og vísaði hann þar til Lands-
virkjunar.
Enda þótt Framsóknarflokkur-
inn vilji einkavæða raforkukerfið
er formaður iðnaðarnefndar eitt-
hvað kominn fram úr sjálfum sér
með þessum yfirlýsingum því enn
er Landsvirkjun í almannaeign.
Það er líka staðreynd að allar fram-
kvæmdir Landsvirkjunar eru á
ábyrgð skattborgaranna og þar
með þjóðarinnar. Er virkilega svo
illa komið fyrir Framsóknarflokkn-
um að honum finnist það til marks
um sýndarmennsku að krefjast
þess að kjörnir fulltrúar þjóðarinn-
ar fái óheftan aðgang að öllum upp-
lýsingum um þessa stærstu fram-
kvæmd Íslandssögunnar og að
umræða um hana eigi að vera opin
og lýðræðisleg? Hvað gæti réttlætt
þetta leynimakk með álrisanum?
Telur Framsóknarflokkurinn sig
hafa ríkari skuldbindingum að
gegna gagnvart Alcoa en gagnvart
íslensku þjóðinni?
Það verður fróðlegt að sjá hvort
þjóðin veitir Framsóknarflokknum
áfram brautargengi til þess að
gæta hagsmuna sinna.
Höfundur er þingflokksformaður
Vinstri-grænna.
Málstaður Hjálm-
ars Árnasonar
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
MS-félag Íslands
Fræðslufundur verður í dag laugadaginn
16.sept. kl.14:00 í húsi félagsins Sléttuvegi 5.
Á fundinum fl ytur Pétur Hauksson læknir
fyrirlestur um Hugræna atferlis meðferð.
Athugið að þetta er fyrsti fundurinn sem
sendur verður beint út og hægt verður fyrir
þa sem ekki komasr á fundinn að sjá hann á
heimasíðu félagsins msfelag.is.
Fyrirspurnir. Mætum öll.
Stjórnin
Kvikmyndin Börn
sem er samstarfs-
verkefni leikhóps-
ins sem kennir sig
við Vesturport og
leikstjórans Ragn-
ars Bragasonar var
frumsýnd í gær.
Nokkrar forsýn-
ingar eru þó að
baki og myndin
hefur spurst ákaf-
lega vel út og virð-
ist almennt falla
áhorfendum og
gagnrýnendum vel
í geð.
Ragnar hefur
fest sig í sessi sem
einn efnilegasti
leikstjóri landsins
á undanförnum
árum en hann á að
baki kvikmyndina
Fíaskó og hefur
einnig leikstýrt
hinum vinsælu
sjónvarpsgaman-
þáttum Fóstbræðr-
um og Stelpunum.
Þá var hann einn
fjögurra leikstjóra
Villiljóss.
Fíaskó hlaut
sérstök dómnefnd-
arverðlaun á
Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í
Kaíró 2000 og var
tilnefnd til Menn-
ingarverðlauna DV
það sama ár. Ragn-
ar hefur fengið
nokkrar tilnefning-
ar til Edduverð-
launa og hlaut þau
árið 2001 fyrir
fimmtu Fóst-
bræðraseríuna. Þá
var Villiljós tilnefnd sem besta
myndin á Eddunni 2001 og Orms-
tunga-ástarsaga fékk tilnefningu
sem besta sjónavarpsefnið 2003.
Ragnar er einnig margverð-
launaður leikstjóri auglýsinga og
tónlistarmyndbanda og vakti
mikla athygli fyrir leikna heimild-
armynd sína Hver er Barði? um
tónlistarmannin Barða Jóhanns-
son.
Ragnar er fæddur á Súðavík
árið 1971 og hélt upp á 35 ára
afmæli sitt í gær. Hann ólst upp í
Súðavík til tíu ára aldurs en þá
fluttist hann með fjölskyldu sinni í
Mosfellsveit. Föðurætt Ragnars
er öll frá Vestfjörðum og sjálfur
segist hann kominn af vestfirsk-
um galdramönnum.
Ragnar er sonur hjónanna
Braga Ragnarssonar og Bryndísar
Jóhannsdóttur og á tvo yngri
bræður og eina hálfsystur. Eigin-
kona Ragnars er Helga Rós
Hannam og saman eiga þau sjö ára
gamla tvíburabræður.
„Hann er sannkallaður lands-
byggðardrengur sem er mikill
kostur ef maður ber hann saman
við aðra leikstjóra í sama geira,“
segir einn vinnufélaga Ragnars.
„Sjóndeildarhringur hans er víð-
ari fyrir vikið og hann er mjög
fjölhæfur. Hann er líka ekkert
hræddur við að taka að sér mark-
aðstengd verkefni og er ekkert að
deyja úr listrænum metnaði eins
og sumir sem eru uppteknir af því
að vera listamenn. Raggi hefur
þetta verkamannseðli í sér og
nálgast starfið á þeim forsendum
og hikar ekki við að
ganga í hin ýmsu
verk. Það er afskap-
lega þægilegt að
vinna með honum
og hann er fínn
húmoristi, svolítið
sérstakur samt og
það er ekki hægt að
segja að hann sé
neinn herra Grín.“
Ragnar var hug-
myndaríkt barn og
fékk fljótt áhuga á
kvikmyndum en
þegar hann var átta
ára gamall byrjaði
hann að selja inn á
kvikmyndasýning-
ar á heimili sínu á
Súðavík. Þar sýndi
hann myndir á
Super 8 sýningarvél
og bauð upp á popp
og appelsínur.
Hann ætlaði sér
ungur að verða rit-
höfundur og þykir í
eðli sínu minna um
margt á föðurafa
sinn Ragnar Helga-
son sem var hag-
mæltur mjög og orti
fjöldann allan af
ljóðum en eftir hann
liggja tvær útgefn-
ar ljóðabækur.
„Ragnar er
alþýðupiltur og
alveg ótrúlegur
hugsjónamaður.
Hann sekkur sér á
kaf í það sem hann
er að gera og hefur
mikla þekkingu á
gerð kvikmynda-
handrita þannig að
þeir eru margir sem
hafa leitað til hans
eftir ráðleggingum,“ segir kunn-
ingi Ragnars. „Hann er fram úr
hófi hjálpsamur og getur eytt heilu
dögunum ef ekki mánuðunum í að
liggja yfir handritum með vinum
sínum, endurskrifa og hjálpa til.
Þetta gerir hann allt í sjálfboða-
vinnu og hann verður sennilega
seint ríkur á því sem hann er að
gera. Hugsjónin keyrir hann
áfram og ég held að þessi þáttur í
fari hans geri honum kleift að
hrífa leikara með sér en fólk sæk-
ist eftir því að vinna með honum
jafnvel fyrir lítil sem engin laun.
Hann er gull af manni og ræt-
urnar í sveitinni hafa haft mótandi
áhrif á persónuleika hans. Hann er
samt orðinn alger miðbæjarrotta í
101 en það er samt aldrei langt í
sveitapiltinn.“
MAÐUR VIKUNNAR
Afskaplega ljúfur afkomandi
vestfirskra galdrakarla
RAGNAR BRAGASON
LEIKSTJÓRI
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Sögurnar, tölurnar, fólki›.