Fréttablaðið - 16.09.2006, Page 30
16. september 2006 LAUGARDAGUR30
Mami Ohdori er tvítugur skiptistúd-
ent frá Japan. Hún segir áhuga sinn
á Íslandi hafa kviknað þegar íslensk
stelpa var með henni í bekk í grunn-
skóla í Japan. „Ég fattaði nú ekkert
að spyrja hana neitt um Ísland þá en
þegar ég fór að leita mér að landi til
að læra í sá ég að hægt var að verða
skiptistúdent á Íslandi. Ég varð
strax mjög spennt fyrir því enda
langaði mig til að fara til lands sem
væri öðruvísi,“ segir Mami.
Hún fór þá að afla sér heimilda
um Ísland og íslenska náttúru og þá
jókst áhugi hennar á landi og þjóð
enn frekar. „Ég er nýbyrjuð að læra
íslensku í skólanum og mér finnst
hún mjög erfið. Við erum enn bara
búin að fara í grunnatriði tungu-
málsins en samt er ég þegar farin
að eiga í erfiðleikum með það.“
Mami ætlar að vera hér á landi
fram í maí og sér fram á erfiðan
vetur. „Ég hef heyrt að það sé mjög
dimmt hér yfir vetrartímann og
verulega kalt. Það finnst mér ekki
hljóma vel,“ segir hún og bætir því
við að henni finnist Ísland allt öðru-
vísi en Japan.
Fjölskylda Mami og vinir vissu
ekki neitt um Ísland þegar hún
ákvað að koma hingað. „Þau vissu
varla einu sinni að það væri til og
margir rugluðu því saman við
Írland. Það voru allir voðalega
hissa þegar ég sagðist vera að fara
til Íslands og foreldrar mínir urðu
mjög áhyggjufullir. Þær áhyggjur
byggjast aðallega á vanþekkingu.
Þau töldu að það væri rosalega kalt
á Íslandi og voru hrædd um mig
aleina hér. Meira að segja reyndu
þau að banna mér að fara,“ segir
Mami, sem lét allar viðvaranir sem
vind um eyru þjóta og ætlar að
vera hér á landi í tæpt ár.
Karen Stevens kom frá Belgíu í lok
ágúst til þess að læra íslensku. „Ég
hef lengi verið heilluð af Íslandi og
ákvað þess vegna að koma hingað,“
segir Karen, sem hlakkar mikið til
að búa í Reykjavík í vetur.
„Ég hef aldrei komið hingað áður
en las sögur um Ísland sem barn og
hef alltaf fylgst með heimildarþátt-
um um landið í sjónvarpi. Þar sést
að það er verulega fallegt.“
Karen stefnir að því að vera við
nám í Háskóla Íslands í eitt ár en ef
henni líkar vel getur hún hugsað sér
að framlengja dvölina og vera í þrjú
ár. „Mér líkar vel hér enn sem komið
er en hef reyndar ekkert komist út
úr borginni. Mér finnst borgin sjálf
reyndar frekar lítil og miðbærinn
líka en það er allt í lagi. Það var sér-
staklega náttúran sem heillaði mig
við landið og það verður spennandi
að skoða hana betur,“ segir Karen
og tekur fram að hún sé afar hrifin
af því að borgin sé svo nálægt sjón-
um.
Karen segir heilmikinn mun á
Íslandi og Belgíu: „Ég bý í stórri
borg í Belgíu og þar getur maður
farið hvenær sem maður vill á kaffi-
hús og fengið mjög ódýrt kaffi og
bjór en hér er þetta alveg ótrúlega
dýrt. Ég vissi að það yrði dýrt að
kaupa bjór hér en ég hélt aldrei að
það yrði alveg svona dýrt,“ segir
hún og heldur áfram: „Íslendingar
virðast samt vera mjög vinalegir en
það er alls ekki þannig í Belgíu. Ef
þú rekst utan í einhvern á skemmti-
stað í Belgíu færðu mjög illilegt
augnaráð en hér virðist fólk ekkert
kippa sér upp við það,“ segir hin
belgíska Karen Stevens.
Paul Langeslag er 24 ára Hollending-
ur. Hann er með mastersgráðu í ensk-
um fornbókmenntum og kom hingað
til lands til að læra íslensku.
„Það eru tengsl á milli enskra
fornbókmennta og íslenskra bók-
mennta frá miðöldum þannig að ég
kom hingað til að læra miðaldaís-
lensku,“ segir Paul en hann er mjög
hrifinn af íslenskri bókmenntahefð.
„Ókosturinn við að leggja áherslu á
gömlu íslenskuna er að maður fær
ekki tækifæri til að tala hana af því
hún er ekki lifandi tunga.“
Paul finnst augljós munur á
Íslandi og öðrum löndum Evrópu.
„Það sem ég tók fyrst eftir var að hér
virðast allir ferðast um á einkabílum,
meira að segja háskólanemar.“
Paul viðurkennir að í Hollandi séu
miklir fordómar gagnvart Íslandi.
„Fjölskyldu minni og vinum leist ekk-
ert á að ég ætlaði til Íslands. Það er
hins vegar alls ekki eins kalt hér og
ég átti von á, þó að vindurinn sé
almennt meiri en ég bjóst við.“ Paul
segir greinilegt að mjög strjálbýlt sé
á Íslandi, öfugt við Holland, sem er
eitt þéttbýlasta land Evrópu.
Karítas Kvaran er for-stöðumaður Alþjóða-skrifstofu háskólastigs-
ins og hefur því yfirumsjón
með þeim nemendum sem
koma í Háskólann sem skipti-
stúdentar. „Síðasta vetur
stunduðu 695 erlendir nem-
endur nám við Háskóla Íslands
og komu þeir frá 71 landi. Það
eru ekki komnar endanlegar
tölur yfir hve margir verða
hér í vetur af því það koma
nýir hópar í janúar en það
verða alveg áreiðanlega ekki
færri en í fyrravetur,“ segir
Karítas og bætir því við að
um helmingur erlendra nem-
enda komi sem skiptistúdent-
ar en hinir séu á eigin vegum.
„Skiptistúdentarnir eru ýmist
eitt eða tvö misseri en hinir
koma flestir hingað til að
ljúka við gráður.“ Karítas
segir vinsælustu greinarnar
meðal erlendra nemenda vera
íslensku, jarðfræði og landa-
fræði en að sá hópur fari vax-
andi sem sæki í verkfræði- og
raunvísindadeild. „Það þykir
áhugavert að læra jarðfræði á
Íslandi þar sem landið hefur
upp á svo margt spennandi að
bjóða í þeirri grein. Í því námi
er farið í vettvangsferðir út á
land til að skoða náttúruleg
fyrirbrigði sem þekkjast ekki
víða annars staðar.“
Karítas segir algengt að
stúdentar komi hingað til þess
að gera eitthvað öðruvísi og/
eða fyrir einskæra forvitni.
„Það er líka fljótt að spyrjast
út að hér sé gott að vera, góður
skóli og gott nám sem þá
vekur áhuga annarra á að
koma hingað,“ segir Karítas.
Hún bætir því við að Háskóli
Íslands sé með samstarfs-
samninga við um 400 háskóla
um allan heim og það skili
sér.
REYKJAVÍK ER LÍTIL & DÝR
ÁNÆGÐ MEÐ ÞRÓUNINA Karítas Kvaran segir fleiri erlenda stúdenta sækja nám við Háskóla Íslands með hverju árinu en þeir eru
nú tæplega tíu prósent af nemendum skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
- falleg & full af bílum
Erlendum nemendum við Háskóla Íslands hefur
fjölgað mikið á undanförnum árum og stefnir í
að í vetur verði þeir fleiri en nokkru sinni fyrr.
Sigríður Hjálmarsdóttir kynnti sér málin.
Heillaðist af
landinu sem barn
Foreldrar mínir urðu mjög áhyggjufullir
Christelle Robitaille-Hains er 22 ára
kennaranemi frá Montreal í Kan-
ada. Hana langaði mikið að fara til
útlanda í nám og sá að námskerfi
Háskóla Íslands er með svipuðum
hætti og er í Kanada.
„Ég vildi gera eitthvað öðruvísi
en aðrir og vissi að það færu áreið-
anlega ekki margir til Íslands,“
segir Christelle. „Mér finnst Ísland
vera allt öðruvísi en Kanada. Veðrið
er öðruvísi en samt ekkert svo
slæmt miðað við heima, enda getur
orðið alveg svakalega kalt þar á vet-
urna,“ segir hún.
Christelle líst mjög vel á Reykja-
vík og finnst borgin afskaplega fal-
leg en varð undrandi að sjá hversu
lítil hún er.
„Ég fékk smá menningarsjokk
þegar ég kom hingað og það kom
mér verulega á óvart að hér tala
allir íslensku, sem ég vissi ekki að
væri aðaltungumál þjóðarinnar.“
Christelle kvartar undan því að í
búðum séu engar þýðingar á ensku
og hún viti því sjaldnast hvað hún sé
að kaupa. „Síðan er ég vön að búa í
stórborg þar sem neðanjarðarlestir
og strætisvagnar fara hjá á tveggja
mínútna fresti. Svoleiðis er það ekki
hér og mér finnst allt ganga frekar
hægt fyrir sig í þeim efnum. Samt
er ég mjög ánægð.“
Foreldrar Christelle urðu
áhyggjufullir þegar hún ákvað að
fara til Íslands. „Þeim finnst Ísland
vera svo langt í burtu og vita heldur
ekkert um landið. Vinir mínir sögðu
ýmist að ég væri brjáluð eða mjög
hugrökk að þora að fara til Íslands.
Sjálf er ég mjög ánægð með að hafa
komið hingað,“ segir hún og bætir
við: „Maður hefur séð ýmislegt í
sjónvarpi frá Evrópu og ímyndar
sér að hún sé ekkert öðruvísi en
Ameríka. Þegar maður kemur hing-
að sér maður að þetta er eins og allt
annar heimur, þannig að ég á örugg-
lega eftir að læra heilmikið af því að
vera hér.“
Christelle segist varla hafa vitað
neitt um Ísland þegar hún ákvað að
koma hingað. „Það eina sem ég vissi
fyrir var að Björk er frá Íslandi, að
Ísland er eyja og að það er mjög
dimmt hér yfir vetrartímann,“ segir
Christelle.
Ætlar að lesa Íslendingasögurnar
Kom mér verulega á óvart að allir tala íslensku