Fréttablaðið - 16.09.2006, Qupperneq 31
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA MANNLEGI BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA TILBOÐ O.FL.
Ford Mustanginn hans Sigurðar Ólafs-
sonar er frá árinu 1966. Bíllinn er eng-
inn nýgræðingur á götunum hérlendis
því hingað kom hann árið 1976.
Sigurður var lengi búinn að ætla sér að eign-
ast gamlan Mustang en áður hafði hann átt
sambærilegan bíl sem eyðilagðist í árekstri.
„Ég er búinn að eiga þennan bíl í tvö til þrjú
ár en hann er búinn að vera hér lengi og eiga
marga eigendur,“ segir Sigurður. „Það er
svolítið sérstakt því flestir eru að flytja inn
„nýja“ fornbíla en þessi á sér langa sögu
hér.“
Sigurður segist vera með króníska bíla-
dellu og að hana hafi hann haft frá blautu
barnsbeini. „Ég er alltaf eitthvað að grúska í
bílunum. Á meðan maður á bíl af þessu kalí-
beri verður hann aldrei tilbúinn, það er alltaf
hægt að breyta einhverju,“ segir Sigurður.
„Maður tekur fyrir einhvern hluta, til dæmis
innréttinguna, og ef það eru einhverjir hlutir
sem ekki samræmast heildinni klárar maður
það og fer svo í næsta hlut. Það getur verið
undirvagninn eða eitthvað annað sem maður
klárar og svo heldur maður bara enn
áfram.“
Bíllinn var í nokkuð góðu ástandi þegar
Sigurður fékk hann. „Það má orða það þannig
að fyrri eigandi hafði sett á hann rétt útlit og
gert upp vélina,“ segir Sigurður. „Ég hef
hins vegar verið meira að endurnýja hluti
sem ekki sjást. Stýrisgang, mælaborð og
annað sem gerir bílinn að betri akstursbíl.“
Þó svo að þessir hlutir sjáist ekki tekur mik-
inn tíma að fást við þá og þeir kosta einnig
mikla peninga. „Þetta er partur af sportinu
og það er skemmtunin,“ segir Sigurður. „Ef
maður er bara orðinn eigandi er þetta hætt
að vera spennandi.“
tryggvi@frettabladid.is
Krónísk bíladella
Sigurður segir að Mustanginn sé sparibíll eða „leikfang“ eins og hann orðar það sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 6.53 13.23 19.51
Akureyri 6.35 13.07 19.37
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
16. september, 259. dagur
ársins 2006.
ASKJA FRUMSÝNDI UM SÍÐUSTU HELGI TVO LÚXUSBÍLA FRÁ
MERCEDES BENZ; GL-CLASS OG NÝJAN E-CLASS.
GL-Class er stórglæsilegur
og afar rúmgóður lúxusjeppi
með háu og lágu drifi auk
þess að vera búinn ríkulegum
staðalbúnaði. Mercedes-Benz
GL-Class er fáanlegur með
öflugum dísil- og bensín-
vélum sem skila allt að 388
hestöflum. GL-Class er búinn
öllum þeim búnaði sem kröfur
eru gerðar til í lúxusbílum, auk
þess að vera mjög rúmgóður
og fáanlegur með sætum fyrir
allt að sjö manns.
Á sama tíma var frumsýndur nýr E-Class en tækninýjungar í
honum eru fjölmargar. E-Class er meðal annars búinn nýrri gerð
framljósa sem lýsa mun lengra en áður hefur þekkst án þess
að trufla umferð sem kemur á móti. Einnig er E-Class búinn
stöðugleikakerfi sem tryggir öruggan akstur. E-Class hefur fengið
afbragðsumsagnir í bílaprófunum víða um heim.
Sýningin um helgina var í húsakynnum Öskju við Laugaveg.
Askja frumsýnir tvo lúxusbíla
CL-Class er ríkulega búinn og
rúmgóður jeppi sem rúmar allt
að sjö manns.
INNANBÆJARBÍLL
Í SNATTIÐ
Reynsluakstur Citroën C1
BÍLAR 2
MANNLEGI
ÞÁTTURINN
Ásdís Olsen fjallar um kvíða
í nýjum þætti á NFS.
MANNLEGI ÞÁTTURINN 6
Bílabúð Benna verður nú aftur
höfð opin á laugardögum og
gildir það í allan vetur. Versl-
unin verður opin frá kl. 10-13
og bílasala fyrir Chevrolet og
SSangYong opin frá klukkan 12-
16. Nánari upplýsingar á www.
benni.is
Útivist stendur fyrir ferð um Esju
sunnudaginn 17. september.
Lagt verður af stað frá BSÍ kl.
10:30. Farið verður upp Gunn-
laugsskarð upp að hæsta hnúk
Esjunnar, Hábungu. Þá er farið í
vesturátt og niður í Blikdal. Nán-
ari upplýsingar á www.utivist.is
ALLT HITT
[ BÍLAR FERÐIR TÍSKA
MANNLEGI ÞÁTTURINN ]
TAKTU NÆSTA SKREF
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
1
2
8
ALLT A‹
100%
LÁNS
HLUTFALL
LÆGRI
VEXTIR
LÆGRA
LÁNTÖKUGJALD
TRYGGINGAR-
FÉLAG
ENGIN
SKILYR‹I UM
BÍLALÁN
Vi› lánum fyrir n‡jum og notu›um bílum á hagstæ›um kjörum án tillits til fless hvar flú tryggir bílinn e›a
hefur flín bankavi›skipti. Reikna›u láni› flitt á www.frjalsi.is, hringdu í síma 540 5000 eða sendu okkur
línu á frjalsi@frjalsi.is. Við viljum að þú komist sem lengst!