Fréttablaðið - 16.09.2006, Qupperneq 74
16. september 2006 LAUGARDAGUR38
Heitt í haust
Tekið saman af Önnu Margréti Björnsson.
HEIT VERSLUN: Liborius
Jón Sæmundur Auðarsson rís upp frá dauða Dead búðar-
innar á Klapparstíg með glæsilegri nýrri búð á Mýrargöt-
unni. Sannkallaður ævintýraheimur þar sem hægt er að
finna hans eigin hönnun, föt eftir Aftur-systurnar og klæðn-
að eftir 25 erlenda stórhönnuði. Opnar í lok mánaðarins.
HEITAR BÍÓMYNDIR
The Departed, frábær glæpamynd eftir Mart-
in Scorsese, með Matt Damon og Leonardo
Di Caprio í hlutverkum leynilögreglumanns
og bófa.
The Black Dahlia. Josh Hartnett og Aaron
Eckhart elta uppi glæpamann í þessari film-
noir kvikmynd. Með hinni ægifögru Scarlett
Johansson.
Flags of Our Fathers. Leikstýrð af Clint East-
wood og fjallar um innrás Bandaríkjanna í
Japan. Tekin upp á Íslandi, sem ætti að vera
nóg til að fá alla til að sjá hana.
CIDER Ásamt heimil-
islega matnum kemur þetta forna
eplavín sterkt inn. Hvernig væri að
ÁTVR færi nú að flytja inn alvöru
Cider frá Bretlandi eða Frakklandi?
ROCKABILLY
Áhrif rockabilly tískunnar gætir enn sterkt
í tísku og tónlist. Támjóir, lágbotna skór,
svört/hvít föt, Buddy Holly og Brian
Setzer.
HEITAR PLÖTUR
Pétur Ben - Wine for my Weakness.
Frábær fyrsta plata frá þessum unga
trúbador.
Beyoncé - B-Day. Önnur plata
hennar setur hana á stall sem
drottningu R&B tónlistarinnar.
Bob Dylan - Modern Times. Meist-
araverk frá meistaranum. Ógnvekj-
andi, fyndin og falleg allt í senn.
The Rapture - Pieces of the People
We Love. Pönk-fönk rokkararnir frá
New York koma með stóra, stóra
smelli.
HUGGUNARMATUR
(COMFORT FOOD)
Við nennum ekki að fá fagurlega skreytta diska
með næstum því engu á lengur. Hefðbundin
frönsk matargerð, kássur, lambahryggur, þjóðlegir
réttir, fiskur og franskar, Bíðum eftir því að steikt
blóðmör verði í tísku eins og á Ritz hótelinu í
London.
FYLGSTU MEÐ:
Þórdísi Aðalsteinsdóttur
Þessa unga listakona býr í New York og sýnir reglulega í hinu
virta STUX Gallery þar í borg. Naíf, tvívíð, draumkennd og ögn
krípí verk hennar verða til sýnis á Kjarvalsstöðum, 1. október
til 3. desember.
NINETIES „GRUNGE“ TÍSKAN
Manstu eftir byrjun tíunda áratugarins þegar allir hlustuðu
á Nirvana og Pearl Jam? Nú eru hönnuðir eins og Prada
og Marc Jacobs að kafa aftur í tískuna þegar allir voru í
Doc Martens skóm, köflóttum skyrtum og parka úlpum og
hlustuðu á Smells Like Teen Spirit.
VALDIÐ TIL FÓLKSINS
OG INTERNETIÐ RÚLAR
Tónlistarbransinn vaknar til lífsins með net-
fyrirbærum eins og MySpace og YouTube
sem eru allsráðandi. Tónlistarmenn verða
vinsælir á MySpace þar sem allir geta
hlustað á lögin þeirra áður en plötufyrir-
tækin taka við sér. Áður réði MTV hvaða
myndbönd færu í spilun en núna fara
myndbönd sigurför um YouTube áður en
MTV neyðist til að sýna þau. Sköpunargleði
tónlistarmanna fær að njóta sín og fólkið
ákveður hvað er vinsælt. Rokk on!
FYLGSTU MEÐ: Lay Low
Lovísa Elísabet, öðru nafni Lay Low, syngur og
semur seiðandi blöndu af blús, kántrí og þjóðlaga-
tónlist. Plötufyrirtækið Cod Music gefur út hennar
fyrstu plötu núna í haust. Þegar Lovísa er ekki að
taka upp tónlist þá spilar hún með rokkhljómsveit-
inni Benny Crespo‘s Gang. „ Ég sit helst heima hjá
mér með gítarinn og sem tónlist. Þessa nýju hlið
á mér kalla ég Lay Low. Nafnið passar betur við
tónlistina sem ég bý til.“
Tískan, tónlistin, maturinn, myndirnar og andlitin. Fréttablaðið fer á stúfana.
NÓG PLÁSS Víðar skálmar, víðar
skyrtur, blöðrupils. Allt sem undirstrikar
hinar kvenlegu línur á öfgafullan hátt.
FYLGSTU MEÐ: Hafþóri Yngvasyni
Maðurinn sem færði íslenska
brautryðjendalist úr jaðrinum og
inn í Hafnarhúsið. Með sýningunni
Pakkhúsi Postulanna, sem Daníel
Björnsson úr Kling og Bang klíkunni
setti upp, hefur Hafþór rækilega
sýnt að hann ætlar að færa ferska
strauma inn í Listasafn Reykjavíkur.
HAUSTLITIRNIR
Svart, svart, svart í bland við ljós-
grátt, ljósbrúnt og rautt, alla tóna
af fjólubláum og smá klípu af
karrígulum og rjómahvítum.