Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2006, Qupperneq 90

Fréttablaðið - 16.09.2006, Qupperneq 90
54 16. september 2006 LAUGARDAGUR FÓTBOLTI Lokaumferðin í 1. deild karla í knattspyrnu fer fram í dag og er óhætt að segja að gríðarleg spenna sé í loftinu. HK og Fjölnir berjast um eitt laust sæti í efstu deild að ári og þrjú lið geta enn fallið niður í 2. deild, en aðeins eitt lið fellur úr deildinni í ár vegna fjölgunar liða á næsta ári. HK hefði getað tryggt sér annað sætið í deildinni um síðustu helgi en tapaði þá fyrir Víkingi Ólafsvík á heimavelli og fyrir vikið bíður liðsins mjög erfiður leikur gegn Fram í Laugardalnum í dag. Jafntefli dugar þó til að ná öðru sætinu en Gunnar Guð- mundsson, þjálfari HK, sagði að ekkert annað en sigur kæmi til greina. „Við mætum í þennan leik eins og við mætum í alla aðra leiki, með það fyrir augum að vinna,“ sagði Gunnar. „Við erum klárir í þennan slag og hlökkum bara til. Það hefði verið mjög þægilegt að tryggja þetta um síðustu helgi en hugar- farið er mjög gott og við förum með fullt sjálfstraust í þennan leik,“ sagði Gunnar og bætti því við að sú staða sem upp væri komin væri einfaldlega mjög skemmtileg og spennandi. Fjölnis- menn eiga einnig mjög erfiðan leik fyrir höndum en þeir mæta KA á Akureyri. Það er ekki síður spenna á botni deildarinnar. Víkingur Ólafsvík, Haukar og Þór geta öll fallið. Leiknir og KA eru með átján stig og við fallsvæðið en þar sem Víkingur og Haukar eiga eftir að mætast innbyrðis verður annað þeirra liða ávallt neðar í töflunni en Leiknir og KA. Það kemur sér vel fyrir Þórsara, sem taka á móti Leiknismönnum, því þeir síðarnefndu þurfa ekki lengur að berjast fyrir sæti sínu í deildinni. Þórsarar munu hins vegar bjarga sér frá falli ef þeir sigra í dag, óháð því hvernig önnur úrslit dagsins verða. - dsd / esá Gríðarleg spenna í 1. deildinni í knattspyrnu: Þrjú lið geta fallið í dag HART BARIST Þessi mynd er úr leik HK og Þórs fyrr í sumar en þessi lið leika mjög þýðingarmikla leiki í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STAÐAN: FRAM 17 12 2 3 31:14 38 HK 17 10 2 5 30:17 32 FJÖLNIR 17 8 5 4 23:14 29 ÞRÓTTUR 17 9 1 7 19:16 28 STJARNAN 17 6 5 6 24:21 23 LEIKNIR 17 4 6 7 20:23 18 KA 17 5 3 9 21:25 18 VÍKINGUR Ó. 17 4 6 7 15:21 18 HAUKUR 17 4 4 9 19:28 16 ÞÓR 17 4 4 9 14:37 16 1. DEILD KARLA FÓTBOLTI Fréttablaðið greindi frá því í gær að Guðjón Þórðarson væri hugsanlega að taka við liði ÍA eftir tímabilið. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Gísli Gíslason, fyrrum bæjarstjóri á Akranesi, muni að öllum líkindum taka að sér formennsku í knatt- spyrnudeildinni, en núverandi stjórn er að hætta. Gísli hefur, samkvæmt heimildum blaðsins, verið í viðræðum við Guðjón um að taka að sér þjálfun Skagaliðsins og þær viðræður ku ganga vel. „Ég get sagt að það eru aðilar á Akranesi sem hafa sýnt því áhuga á að fá mig til að vinna fyrir ÍA,“ sagði Guðjón við Fréttablaðið í gær, spurður hvort hann væri að taka við Skagaliðinu eftir sumar- ið. Hann segist hafa áhuga á því að þjálfa ÍA en hann ætlar sér að þjálfa lið hér á landi næsta sumar. Hann staðfestir einnig að hafa rætt við Gísla Gíslason. „Ef hlut- irnir þróast rétt hef ég klárlega áhuga á því að þjálfa ÍA. Ég hef hitt Gísla og við höfum spjallað saman. Gísli er ekki í stjórn ÍA og hann hefur ekkert umboð til að ráða mig í vinnu fyrr en hann er kominn í stjórnina.“ Guðjón segist vera alkominn heim en hann hefur reynt fyrir sér á erlendri grundu síðustu ár. Það hefur gengið upp og ofan hjá Guð- jóni, sem var síðast að stýra liði Notts County en yfirgaf félagið eftir eitt tímabil. Það lið er illa statt fjárhagslega og lítil framtíð hjá því fornfræga félagi. „Ég er ákveðinn í að koma heim og ég ætla mér að þjálfa hér næsta sumar. Ég hefði getað komist í vinnu erlendis um daginn en afþakkaði það og er búinn að taka þá ákvörðun að koma heim,“ sagði Guðjón en hefði hann áhuga á því að þjálfa ÍA ef það félli úr efstu deild? „Skaginn er í basli í dag og það hefur aldrei þótt gott á Akranesi að vera í fallbaráttu. Það er alveg ljóst að sá sem ætlar að taka við Skagaliðinu þarf að koma því í fremstu röð og það er það eina sem skiptir máli. Ég hef sótt ÍA einu sinni úr kjallaranum áður þannig að ég þekki það. Hvort sem ÍA fellur eða ekki er verkefnið það sama, að koma ÍA í fremstu röð á ný.“ Það hefur vakið athygli hversu duglegur Guðjón hefur verið að mæta á völlinn í sumar og miðað við magn leikjanna sem hann hefur séð er ljóst að hann er orð- inn vel kunnugur í íslenska boltan- um á ný. „Ég er búinn að sjá fullt af leikjum. Þetta hefur að mörgu leyti verið skemmtilegt en að sama skapi ekki alltaf gott, að minnsta kosti ekki frá mínum bæjardyrum séð enda kannski horfi ég öðruvísi á þetta en margir aðrir,“ sagði Guðjón en er hann ekki farið að klæja í puttana að byrja að þjálfa á ný? „Ég hef mjög gaman af því að þjálfa og það ligg- ur nokkuð opið fyrir mér hvernig á að gera það þannig að ég hlakka bara til að byrja.“ henry@frettabladid.is Guðjón fluttur heim og segist hafa áhuga á að þjálfa ÍA á ný Guðjón Þórðarson er hættur að reyna fyrir sér erlendis og er alfluttur til Íslands. Hann ætlar að þjálfa á Íslandi og segist hafa áhuga á að þjálfa ÍA. Hann staðfestir að hafa rætt við Gísla Gíslason, sem er talinn taka við formennsku í knattspyrnudeildinni innan tíðar, og að áhugi sé á Akranesi að fá hann í vinnu. KÓNGURINN SNÝR AFTUR Guðjón Þórðarson, oft kallaður Gaui Kóngur, er fluttur heim á ný og ætlar að þjálfa á Íslandi næsta sumar. Hann hefur áhuga á að þjálfa sitt gamla félag, ÍA, og segir áhuga vera á að fá sig í vinnu á Akranesi. FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur kallað á stuðnings- menn félagsins og sagt þeim að vakna af blundi þeim sem margir þeirra virðast taka á leikjum liðsins. Hann segir að sumir leikir í ensku úrvalsdeildinni fölni í samanburði við leikinn gegn Celtic í Meistaradeildinni. „Ég óska þess að hvert einasta lið gæti gert eins og Celtic og mætt hingað með sex þúsund stuðningsmenn. Þá skapast samkeppni milli áhorfenda. Stundum koma áhorfendur á laugardagsleiki og helmingur þeirra er sofandi og bíður eftir að verða skemmt.“ - esá Sir Alex Ferguson: Segir stuðn- ingsmenn sofa SIR ALEX Segir stuðningsmenn Celtic vera til fyrirmyndar. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Evrópu hefur aflétt banni sínu að landslið og félagslið frá Ísrael leiki heimaleiki sína þar í landi. Reyndar er þeim skilyrt að leika sína leiki í höfuðborginni Tel- Aviv. Banninu var upphaflega komið á er átök Ísraela og Hizbollah-samtakanna. Ákvörðun- in tekur nú þegar gildi. - esá Knattspyrnusamband Evrópu: Afléttir banni á leikjum í Ísrael Tryggðu þér miða á betra verði á landsbankadeildin.is eða ksi.is Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 42 07 09 /2 00 6 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 42 07 09 /2 00 6 Keflavík - Valur Fylkir - Breiðablik ÍA - ÍBV KR - Grindavík FH - Víkingur lau. 16. sept. kl. 16:00 lau. 16. sept. kl. 16:00 lau. 16. sept. kl. 16:00 lau. 16. sept. kl. 16:00 lau. 16. sept. kl. 16:00 Athugið breyttan leikdag! 17. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.