Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 60
 22. september 2006 FÖSTUDAGUR28 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Saddam Hussein Íraksforseti sendi herlið sitt inn í Íran á þessum degi árið 1980 eftir langar og harðvítugar skærur við landamærin. Útlit var fyrir að Írakar myndu hafa sigur áður en langt um liði. Íranar veittu hins vegar öfluga mótspyrnu og stríðið dróst á langinn og breyttist í þrátefli sem stóð alls í átta ár. Milljónir manna týndu lífi eða særðust í átökunum, sem stundum eru sögð vera lengsta hefðbundna stríðið á 20. öld. Írakar drógu reyndar herlið sitt til baka árið 1982 og lögðu til vopnahlé, sem Ayatollah Khom- eini féllst ekki á og hélt átökunum áfram. Sprengjum var varpað á stærstu borgir beggja landa og Írakar beittu jafnvel efnavopnum til að ná sínu fram. Á Persaflóa var olíuskip- um frá báðum löndum sökkt og olíuverð í heiminum hækkaði svo um munaði. Sameinuðu þjóð- irnar reyndu við ýmis tækifæri að skakka leikinn en ekki tókst að koma á varanlegu vopnahléi fyrr en í ágúst árið 1988 og síðustu stríðsföngunum var ekki sleppt úr haldi fyrr en árið 2003. ÞETTA GERÐIST: 22. SEPTEMBER 1980 Fyrri Flóabardagi brýst út FAY WELDON ER 73 ÁRA Í DAG „Fegurðin er fyrsta gjöf náttúr- unnar til kvenna en einnig það fyrsta sem hún sviptir þær.“ Flögð undir fögru skinni eru stundum umfjöllunarefni bóka Weldon. Frægasta bók hennar er eflaust She-Devil, eða Kvendjöfull- inn eins og það útlagðist í íslenskri þýðingu. MERKISATBURÐIR 1930 Fyrsta sæluhús Ferðafélags Íslands er tekið í notkun. Það er í Hvítárnesi. 1949 Rússar sprengja fyrstu kjarnorkusprengju sína. 1955 Fyrsta einkarekna sjónvarpsstöðin er sett í loftið í Bretlandi og rýfur þar með einokun BBC á markaði. 1957 Árbæjarsafn í Reykjavík er opnað fyrir almenningi. 1975 Gerald Ford, forseti Bandaríkjanna, sleppur naumlega þegar honum er sýnt banatilræði. 1992 Fyrstu ólympíuleikum þroskaheftra lýkur í Madríd. Samkomur undir yfirskriftinni Ein trú, tveir heimar hófust í Dómkirkj- unni í gær og halda áfram í dag. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson dóm- kirkjuprestur leiðir samkomurnar, en markmið þeirra er að hvetja krist- ið fólk til að virkja og þroska trú sína. Jakob segir samkomurnar höfða til þeirra sem eigi trú. „Þær eiga að vekja fólk til umhugsunar um hvaða gagn það gerir sér af trú sinni og hvort það geti ekki virkjað hana betur í lífinu,“ segir hann. Meðal þess sem verður til umfjöll- unar er starf kristniboða og kirkja í þriðja heiminum og árangur af Hjálp- arstarfi kirkjunnar. Séra Helgi Hró- bjartsson verður ræðumaður bæði kvöldin, en hann hefur mikla reynslu af kristniboði og hjálparstarfi. „Sjáir þú að trúin sé blessun í lífi þínu ætt- irðu að deila með þér til annarra manna nær og fjær, bæði í orði og verki,“ segir Jakob. Hann segir sam- komurnar einnig fela í sér áskorun til fólks um að taka trú sína alvarleg- ar og taka ábyrgð á henni eins og öðrum þáttum í tilverunni. Jakob segir afar áríðandi að trúað fólk geri upp við sig til hvers það vilji hafa trúna í þjóðfélaginu. „Trúin styrkist víða í þriðja heiminum, en er að missa tök sín á þjóðfélagi okkar,“ útskýrir Jakob. „Trú er augljóslega virk í samfélagi þjóðanna; hún skipt- ir miklu máli í Bandaríkjunum, mesta stórveldi heims, og eins í múslima- heiminum,“ segir hann og bætir við: „Höfum við ekkert til málanna að leggja í þessu sambandi?“ Aðspurð- ur hvort samkomur af þessu tagi hafi áður verið haldnar á vegum Dóm- kirkjunnar segir Jakob svo ekki vera. „Við höfum reynt ýmislegt í þessu sama skyni áður, en við lifum í nýjum skilningi á hverjum tíma. Þessar samkomur eru sprottnar upp úr heimsmynd dagsins í dag,“ segir Jakob. sunna@frettabladid.is SÉRA JAKOB Á. HJÁLMARSSON: STÝRIR SAMKOMUM UM HLUTVERK TRÚAR Að virkja og þroska trúna SÉRA JAKOB ÁGÚST HJÁLMARSSON Leiðir samkomur um hlutverk trúar í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Erla Kristín Sigurðardóttir Hrísey, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 18. september. Jarðsungið verður frá Hríseyjarkirkju föstudaginn 29. september kl. 14.00. Jóhann Sigurbjörnsson Sigurður Jóhannsson Kirsten Ruhl Steinunn Jóhannsdóttir Barði Sæmundsson Sólveig Jóhannsdóttir Sæmundur Guðmundsson Lovísa Jóhannsdóttir Guðlaugur Georgsson Jóhann Pétur Jóhannsson Margrét Sigmundsson Þröstur Jóhannsson Kristín Ingólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur, Magnús Magnússon pípulagningameistari Hallanda, Árnessýslu, lést af slysförum 16. september. Jarðarförin auglýst síðar. Sigríður Harðardóttir Magnús St. Magnússon Ingunn Jónsdóttir Sigurjón Magnússon Vigdís Birna Hólmgeirsdóttir Ólafur Björn Magnússon Jónatan Mikael og Benjamín Magnús Guðrún E. Guðmundsdóttir Magnús St. Magnússon 80 ára afmæli Jóhannes Þorsteinsson Hlíðarvegi 4, Ísafi rði, verður áttræður 25. september n.k. Af því tilefni ætlar hann og eiginkona hans, Sjöfn Magnúsdóttir, að fagna með ætting jum, vinum og samferðafólki í Kiwanishúsinu á Skeiði, Ísafi rði kl 18.00 laugardaginn 23. september n.k. Eiginmaður minn, faðir okkar og afi, Pétur Þórðarson Þórsmörk 2, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 11. september 2006. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Alda Andrésdóttir Ingvar Pétursson Hanna María Pétursdóttir Magnús Pétursson Óskar Þór Pétursson og barnabörn. 60 ára afmæli Þann 19. ágúst síðastliðinn varð 60 ára Þorgeir Björnsson Sævangi 46. Í tilefni þessara tímamóta tekur hann á móti ætting jum, vinum og samferðamönnum á morgun, laugar- daginn 23. sept á milli kl. 11 og 13 í Oddfellowhúsinu Staðarbergi 2-4, Hafnarfi rði. Bróðir okkar, mágur og stjúpfaðir, Örlaugur Björnsson Austurbrún 6, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 17. september. Jarðsungið verður frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 28. sept. kl. 15.00. Hreinn Björnsson Sigríður Sigtryggsdóttir Sveinbjörn Björnsson Ólína Geirsdóttir Þorsteinn Björnsson Guðrún Oddsdóttir Sturla Björnsson Yngvar Kárason Sólrún Skúladóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Kjartan Pálsson bóndi, Vaðnesi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands miðvikudaginn 13. september. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 23. september kl 13.30. Helga Helgadóttir Guðmundur Jóhannesson Þórleif Gunnarsdóttir Brúney Bjarklind Ragnhildur Eiríksdóttir Magnús Tryggvason Heimir Kjartansson María Kjartansson Birna Kjartansdóttir Gísli Jón Bjarnason Páll Helgi Kjartansson Salome Hansen Jón Steingrímur Kjartansson Dóra Þórsdóttir Guðjón Kjartansson Anika Bäcker Ólafur Ingi Kjartansson Hans Hoffmann Þorvaldsson Guðlaug Sigurðardóttir Svala Birna Sæbjörnsdóttir Davíð Ben og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.