Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 46
SIRKUS22.09.06 14 1 2 3 Hvernig fannst þér myndin? MINNSIRKUS - MEÐLIMIR GAGNRÝNA Þú getur sagt álit þitt á kvikmyndum í Sirkus. Það eina sem þú þarft að gera er að vera meðlimur í samfélaginu okkar á www.minnsirkus. is/sirkus og fylgjast með kvikmynd vikunnar. Vertu bíógagnrýnandi og segðu það sem þér finnst. 1 FM957 2 3 Minnsirkus.is blogg vikunnar Vertu þarna ...Hlustaðu á þetta ... um helgina HEMMI MÆLIR MEÐ Nemendaleikhúsið frumsýnir verkið Hvít kan-ína í kvöld klukkan 20.00 á litla sviði Borgar- leikhússins. Um er að ræða samsetta sýningu eða „devised“ leikhúsverk eins og það heitir á fagmáli. Unnið er upp úr textum og hugmyndum sem leikhópurinn hefur komið með á æfinga- tímabilinu. Um er að ræða ögrandi og öðruvísi sýningu. Verkið er stranglega bannað innan 16 og verður engum hleypt inn nema skilríki sanni aldur viðkomandi. Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir sýningunni. Listamaðurinn Toggi sendir frá sér sína fyrstu plötu á mánudag, Puppy. Lagið „Heart in line“ hefur töluvert verið spilað í útvarpi að undanförnu. Sirkus mælir hik- laust með þessari plötu sem kemur á óvart. Fínar melódíur og virkar vel yfir kertaljósi og rauðvínsglasi. Toggi er gaur sem vert er að fylgjast vel með, fantafín frumraun. „Nacho Libre er önnur mynd leikstjórans Jared Hess sem gerði garðinn frægan með Napoleon Dynamite fyrir tveimur árum. Myndin fjallar um Nacho (Jack Black) sem hefur verið alinn upp á munkaklaustri einhvers- staðar í Mexíkó og vinnur þar nú sem kokkur. Alla tíð elur Nacho með sér þann draum að verða glímu- kappi og keppa við þá bestu, en það samrýmist ekki trú munkanna. Loks ákveður hann að kýla á að keppa því hann vantar pening fyrir mat handa krökkunum á klaustirnu. Hann býr til einhverja grímu og finnur sér aðstoðarmann, fátæklinginn á svæðinu, og keppa þeir svo saman í minni glímukeppnum á svæðinu. Það endar með því að Nacho keppir á stóra mótinu til að vinna pening fyrir strætó handa krökkunum. Nacho Libre er svo fyndin að um tíma heyrði ég ekki í myndinni vegna hláturs í salnum. Jack Black á það til að fara „over the top“ í frammistöðu sinni en í þessari mynd eru það þessir taktar sem gera hana svo fyndna. Jard Hess er líka snillingur að finna persónur í hin ýmsu hlutverk, og er aðstoðarmaðurinn hans, Steven, gott dæmi um það. Þó svo að sagan sé fyrirsjáanleg þá skiptir það engu máli, það á enginn að fara á þessa mynd ef hann er ekki tilbúinn til að hlæja. Ef ykkur fannst Napoleon Dynamite ekki góð þá veit ég ekki hvort þið eigið eftir að hlæja mikið að þessari mynd sem er á svipuðum nótum. Ég að minnsta kosti og aðrir í salnum grenjuðum um tíma og ég held bara að ég hafi verið með strengi í mag- anum daginn eftir. Engin óskarsverðlaun fyrir þessa mynd en hún á stjörnurnar sannarlega skilið.“ Arnar Þór Smárason, 24 ára einkaþjálfari og byssusmiður. NACHO LIBRE Aðalhlutverk: Jack Black Leikstjóri: Jared Hess Myndin í einni línu: Fílarðu ekki örugglega myndir um fáránlega mexíkóska glímu? 5,9/10 á imdb.com HOT CHIP Arrest Yourself „Gott partí, en líka hægt að hafa það notalegt yfir þessu.“ DAVID HASSELHOFF Hot Shot City „Hasselhoff er bara snillingur og þetta lag sannar það. Var að komast yfir The Very Best Of plötuna hans sem er snilld.“ THE KNIFE We Share Our Mothers Health (Trentemoller Remix) „Snilld sem Balli Funk kynnti fyrir mér. Skemmtilega óld skúl teknó en samt hressandi rokk í þessum slagara.“ NACHO LIBRE „Þetta er yndislegt líf,“ segir tromm- arinn Jónbi úr Brain Police um rokk- aralífið. „Ég sofna með bros á vör og vakna með bros á vör.“ Hin átta ára gamla rokkgrúppa Brain Police sendi frá sér nýja plötu í síðustu viku og ber hún nafnið, Beyond the Waste- land. „Þar áður gáfum við út plötu árið 2004 en nú erum við komnir með nýjan gítarleikara og þar af leið- andi nýjan hljóm sem við erum mjög sáttir við.“ Platan hefur fengið góðar viðtökur og það er ekki annað að heyra á Jónba en að almenn ánægja sé innan sveitarinnar með plötuna. Strákarnir munu einmitt halda útgáfupartí á Café Amsterdam í kvöld og er um hið staðlaða útgáfupartí að ræða. „Við spiluðum reyndar plötuna í heild sinni í Skífunni í síðustu viku en þetta verða hinir eiginlegu útgáfutónleikar með alvöru partístemn- ingu.“ Café Amsterdam virðist vera orðið höfuð- vígi rokkbanda á Íslandi og segir Jónbi fínt að spila þar. „Þetta hentar vel í rokkið, svona mátulega „slísí“ og töff.“ Hljómsveitin ætlar að spila víða um landið á næstu dögum en síðan verður haldið til Þýskalands í tveggja vikna túr. „Við ætlum að spila víðsvegar í Austur- Þýskalandi. Meðal annars í Berlín, Köln og svo verða einhverjir minni bæir þarna inn á milli.“ Strákarnir ætla síðan að koma heim og fylgja plötunni eftir en þeir verða einmitt á hinu goðsagnakennda Kerrang-kvöldi á Airwaves. BRAIN POLICE HELDUR ÚTGÁFUTÓNLEIKA Á CAFÉ AMSTERDAM Í KVÖLD Þetta verður mátulega „slísí“ og töff Hvað: Útgáfutónleikar Brain Police Hvar: Café Amsterdam Hvenær: Í kvöld Verð: 1000 kall Aldurstakmark: 20 ár Brain Police Frá vinstri: Jens Ólafsson, Búi Bendtsen, Hörður Ingi Stefánsson og Jón Björn Ríkharðsson. EVANESCENCE Call me when you´re sober. Þetta lag er alveg gríðar- lega öflugt í alla staði. Amy Lee sem er náttúrulega frá- bær píanóleikari og ólýsan- lega góður söngvari fer hér fremst í broddi fylkingar. Eðal rokk fyrir FM957. SANDI THOM I wish I was a punk rocker Hún minnir mig á gamla tíma og ég er ekki frá því að það sé smá Janis í þessari dömu. Hún á vonandi eftir að ná langt með sitt fyrsta lag sem er í bullandi spilun um alla Evrópu. OBIE TRICE FT. AKON Snitch Það sem er kannski ein- kennandi flott við þetta stöff er að Akon er alveg eins og kona þegar hann syngur og töffaraskapurinn er alveg í hámarki hjá Obie, sem gerir þetta frábært duo. BRYNJAR MÁR MÆLIR MEÐ Múslimar ég er orðin svo svakalega pirruð á múslimum að það er ekki eðli- legt. Er sko alls enginn rasisti eða eitthvað þannig ég bara skil ekki af hverju kristið fólk á alltaf að haga sér í samræmi við reglur og viðmið múslima. Ég meina það er ekki eins og við séum eitthvað að pirrast út í það hvernig þau lifa lífinu, en ég held að þau verði að fara að sætta sig við það að það er EKKI allt bannað í okkar trú. Í dag var einhver nunna bara drepin í góðum gír útaf einhverju sem páfinn sagði.....ég er bara ekki að skilja þetta. lindab.minnsirkus.is Sjónvarpsleikfimi „Vá ég er að horfa á Í Fínu Formi á Stöð 2... hversu margir taka þátt í þessu... Hreinsa til í stof- unni og taka á því í 10 mín? Maður spyr sig..Ég hef ekki trú á því að það séu margir..15 manns..kannski..“ haro.minnsirkus.is Gáta dagsins Ég flýg áfram, en er hvorki fugl, flugvél eða eldflaug. Ég snýst líka og þó er ég hvorki vagn né hjól. Og hvort sem þú stendur, situr, liggur eða sefur, þá flyt ég þig ótelj- andi kílómetra án þess að þú takir eftir því. Hver er ég? binnio.minnsirkus.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.