Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 68
 22. september 2006 FÖSTUDAGUR36 tonlist@frettabladid.is FRUMSÝND 22.09.06 V in ni ng ar v er ð a af he nd ir h já B T S m ár al in d . K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í S M S k lú b b . 9 9 kr /s ke yt ið . 9. HV ER VI NN UR ! SE ND U S MS JA FC K Á NÚ ME RIÐ 19 00 ÞÚ GÆ TIR UN NIÐ M IÐA ! Vin nin ga r e ru mið ar fyr ir 2 , · DV D m ynd ir o g m arg t fl eir a MOBILE Ein af þeim plötum sem beðið hefur verið eftir með hvað mestri eftirvæntingu á árinu 2006 er önnur plata New York-sveitarinnar Scissor Sisters, Ta-Dah, sem kom út í byrjun vik- unnar. Trausti Júlíusson athugaði hvernig sveitinni hefði tekist að fylgja eftir fyrri plötunni, sem kom út fyrir tveimur árum. Fyrsta plata Scissor Sisters er ein af skemmtilegutsu poppplötum síðustu ára. Hún kom út fyrir tveimur árum og innihélt smelli á borð við Take Your Mama, Laura, Filthy Gorgeous, Tits on the Radio og útgáfu af Pink Floyd-laginu Comfortably Numb. Platan, sem hét einfaldlega Scissor Sisters, fékk fína dóma og seldist mjög vel, var m.a. mest selda platan í Bretlandi árið 2004. Það var þess vegna mikil pressa á sveitinni að standa sig á nýju plötunni, Ta-Dah, sem er nýkomin í verslanir. Erfið fæðing „Að gera þessa plötu er það erfið- asta sem ég hef gert fyrir utan að sættast við kynhneigð mína,” segir Jake Shears söngvari í nýlegu við- tali. Og hann segir að sveitin hafi þrælað sér út í hljóðverinu. „Ég vildi sjá til þess að öll lögin væru frábær. Ég hef ekki hugmynd um hvort það tókst. Ég veit ekki hvort þetta er góð plata þó að mér finn- ist öll lögin góð. Ég er ekki full- komlega sáttur við hana, en ég var heldur ekki fulkomlega sáttur við fyrstu plötuna...“ B-hliðin sló í gegn Scissor Sisters (nafnið er heiti á ákveðinni lesbískri samfarastell- ingu) var stofnuð í New York árið 2001 af fyrrnefndum Jake Shears, söngvara og lagasmið, og Baby- daddy, gítarleikara og lagasmið. Fljótlega bættust söngkonan Ana Matronic, gítarleikarinn Del Marquis og trommuleikarinn Paddy Boom í hópinn. Sveitin gat sér gott orð á klúbbasenunni í New York, en það var ekki fyrr en hún setti sína sýrðu diskóútgáfu af Pink Floyd-klassíkinni Comforta- bly Numb á bakhlið fyrstu smá- skífunnar sinnar Electrobix seint á árinu 2003 sem sveitin fór að vekja einhverja athygli að ráði. Popp og diskó Tónlistin á fyrstu plötunni sótti mikið í popp og diskótónlist átt- unda áratugarins. Elton John- áhrifin voru áberandi og eins minnti falsettusöngur Jakes mikið á Bee Gees. Scissor Sisters setti þessi áhrif í nútíma dans- og popp- tónlistarbúning og útkoman varð geggjað gleðipopp sem enginn vissi hvort almenningur hefði smekk fyrir eða ekki. Skrautlegir búningar og sérstak- lega lífleg og litrík frammistaða sveitarinnar á tónleikum hafði sitt að segja og þegar upp var staðið elskuðu eiginlega allir Scissor Sisters, nema nokkrir spældir Pink Floyd-aðdáendur sem þoldu ekki meðferðina á Comfortably Numb. Meira af því sama Tónlistin á nýju plötunni er í stíl við fyrstu plötuna. Bee Gees-áhrifin eru enn til staðar, en svo er líka smá ragtime-stemning í nokkrum lögum. Elton John spilar sem gest- ur á píanó í nokkrum lögum, þ.á m. fyrsta smáskífulaginu I Don’t Feel Like Dancing og önnur gömul hetja, gítarleikarinn Carlos Alomar sem er þekktastur fyrir að hafa spilað með David Bowie, spilar í nokkrum lög um, þ.á m. hinu frábæra Trans- istor sem minnir einmitt á David Bowie eins og hann hljómaði á Scary Monsters. Það eru mörg lög á Ta-Dah sem gætu orðið smáskífu- lög. þ.á m. She’s My Man, Kiss You Off og Paul McCartney. Í fyrstu er platan fáanleg bæði einföld og í tvöfaldri viðhafnarút- gáfu, en aukadiskurinn í þeim pakka hefur að geyma 6 lög. Meira geggjað gleðipopp SCISSOR SISTERS Önnur plata hljómsveitarinnar er í stíl við þá fyrstu og nú spilar Elton John sjálfur á píanó í nokkrum lögum. Eftir að skemmtistaðirnir Grand rokk og Gaukur á Stöng hættu að hafa reglulega tónleika á sínum fjölum hefur skapast tónleikastaðahallæri í Reykjavík. Báðir þessir staðir voru kjörtónleikastaðir íslenskra tónlistar- manna og nú hefur myndast nokkuð breið gjá milli stærri tónleikastaða og þeirra minni. Þeir stærri, Iðnó og Nasa, eru reyndar báðir tveir frá- bærir tónleikastaðir en þar getur oft verið tómlegt um að lítast. Minni staðir á borð við Sirkus, Dillon og Kaffi Hljómalind eru einfaldlega allt of litlir og henta nær eingöngu fyrir smávaxna tónleika og varla það. Eins og staðan er í dag eru aðeins tveir augljósir kostir þegar kemur að milli- stærðar tónleikastöðum, annars vegar Amsterdam, sem hefur verið vel nýttur að undanförnu, og hins vegar Þjóðleikhús- kjallarinn, sem af óskiljanlegum ástæðum er fáránlega lítið notaður. Tónleikar með Ske, Langa Sela & Skugunum og Jeff Who? á morgun er þó vonandi vísbending um betri tíð. En hvað er til ráða? Frekja og einföldun væri að krefjast þess að reistur yrði sérstakur tónleikaskemmtistaður þó að slíkum stað yrði væntanlega vel fagnað. Nærtækara væri að líta á þá kosti sem nú eru í stöðunni þó að þeir séu sorglega fáir. Í fyrsta lagi er afar undarlegt að íslenska partíkynslóðin geti ekki skemmt sér á helgardjamminu á tón- leikum heldur virðast plötusnúðar þeir einu sem geti fengið fólk út á lífið. Skemmtistaðaeigendur þyrftu líka að vera opnari fyrir tónleikum um helgar. Barinn og Ellefan eru sem dæmi tilvaldir staðir fyrir helgar- tónleika, þar sem hægt væri að hafa tónleika á einni hæðinni og plötu- snúð á annarri. Slíkir skemmtistaðir eru algengir í nágrannalöndum okkar og ættu að geta virkað hér eins og annars staðar. Ástandið í dag er allavega óviðunandi varðandi tónleikastaði í Reykja- vík þó að markaðurinn sé vissulega lítill. Betri nýtni þarf að vera á þeim stöðum sem hægt er að nota og ef Íslendingar eiga að geta haldið áfram að stæra sig af gróskusömu tónlistarlífi verður einhver breyting að eiga sér stað. Tónleikastaðahallæri > Í SPILARANUM Toggi - Puppy M. Ward - Transistor Radio Beyoncé - B‘Day James Yorkston - The Year of the Leopard Lost in Hildurness - Mount A BEYONCÉ LOST IN HILDURNESS TÓNNINN GEFINN Steinþór Helgi Arnsteinsson > Plata vikunnar Justin Timberlake: Futuresex/LoveSounds „Justin Timberlake festir sig hér í sessi sem helsti popptónlistar- maður fyrsta áratugarins. Skilar af sér betri plötu en síðast og mun bráðum taka yfir heiminn.“ - BÖS Tónlistarmaðurinn og fyrr- verandi knattspyrnukappinn Ívar Bjarklind gefur í byrjun nóvember út sína fyrstu sóló- plötu, sem nefnist Blóm eru smá. Ívar var áður í hljómsveit- inni Mír, sem gaf á sínum tíma út eina plötu og tvö lög. Að sögn Ívars er hans eigin tónlist lágstemmdari og meiri popptónlist en Mír var að gera og meiri áhersla er lögð á melódíur. Upptökustjóri plötunnar er Skagamaðurinn Orri Harð- arson, sem gaf einmitt út eigin sólóplötu á síðasta ári. Um trommuleik sér hinn margreyndi Birgir Baldursson. Fyrsta plata Ívars ÍVAR BJARKLIND Ívar gefur á næstunni út sína fyrstu sólóplötu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SLOAN - TWICE REMOVED „Þessi hefur fylgt mér lengi, ég hef meira að segja týnt henni og þurft að panta mér annað eintak frá Kína. Ég sá eitt myndband með þessari hljómsveit í þættinum Tíðarand- anum með Skúla Helgasyni á RÚV og þetta band hefur fylgt mér síðan, enda er það enn í stuði og gerir frábærar plötur. Twice Removed er frá 1994 og er af svip- uðum meiði og bresku indí-popp- böndin sem maður var að hlusta á þá, Ride, Charlatans og fleiri. Þetta band er reyndar frá Halifax í Kanada. Ég hef alltaf furðað mig mikið á því af hverju Sloan er svona neðanjarðar og óþekkt band því þetta er ótrúlega „beisik“ tónlist. Sá sem hlustar á Oasis ætti til dæmis alveg að fíla þetta. Ég lýsi því eftir Sloan-aðdáendum, þeir mega endilega hafa samband.“ UPPÁHALDSLÖG: „Það er eiginlega ómögulegt fyrir mig að velja uppá- haldslög, ég hlusta alltaf á plötuna út í gegn.“ CLAP YOUR HANDS SAY YEAH - CLAP YOUR HANDS SAY YEAH „Það virðist sama hvað ég geri, ég fer alltaf aftur að hlusta á Clap Your Hands Say Yeah. Þetta er bara alveg fáránlega góð plata. Ég var mjög fljótur að falla fyrir plötun ni og hlust- aði mikið á hana. Svo ætlaði ég að sjá tónleikana á Air- waves í fyrra en stóð í tvo tíma í röð án þess að kom- ast inn. Þá fór ég í fýlu út í hljómsveitina og hlustaði ekki á hana lengi vel. Eftir að ég byrjaði hins vegar aftur að hlusta varð platan bara enn betri. Það er nú ekki oft sem það gerist.“ UPPÁHALDSLÖG: „Núna er það síð- asta lagið á plötunni, Upon This Tidal Wave of Young Blood.“ AÐRAR GÓÐAR: „Ég er markvisst að reyna að fíla Wolf Parade. Það er helst að undirlagi vinar míns, Hauks Magnússonar, en hann sér um tónlistarlegt aðhald á mínu heimili. Ég var eiginlega búinn að gefast upp á Wolf Parade en þegar fréttist að hún væri að koma á klakann fór ég að labba meira en venjulega og vaska oftar upp, en þá hlusta ég oftast á tónlist.“ FYRST OG SÍÐAST KRISTJÁN FREYR HALLDÓRSSON KRISTJÁN FREYR Bóksalinn og trommuleikarinn er hrifinn af tónlist frá Kanada. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.