Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 20
22. september 2006 FÖSTUDAGUR20
Umsjón: nánar á visir.is
PALLBORÐSUMRÆÐUR
Háskólabíó kl. 14.00–15.00
WHAT IS STRATEGY?
Í nýjustu útgáfu European Foundation of Management Develop-
ment (EFMD) er Dr. Michael Porter talinn vera fremstur vísinda-
manna í heiminum á sviði stjórnunar og stefnumótunarfræða.
Þessari skoðun deila flestir sem um þessi mál fjalla. Allt frá því bók
hans „Competitive Strategy“ kom út árið 1980 hefur hann haft
gríðarleg áhrif á stjórnun fyrirtækja og stofnana um allan heim og
er enn leiðandi í allri umræðu um stefnumótun.
Í þessum fyrirlestri fjallar hann um hvað stefnumótun er – og einnig
hvað hún er ekki og rekur ýmsar ranghugmyndir manna um efnið.
Þetta er fyrirlestur sem enginn áhugamaður um stefnumótun og
stjórnun má láta fram hjá sér fara.
Sigurjón Þ. Árnason
Landsbankinn
Þórdís Sigurðardóttir
Dagsbrún
Baldur Pétursson
European Bank, London
Dr. Gylfi Magnússon
Háskóli Íslands
Hannes Smárason
FL Group
Skráning er hafin á www.capacent.is
Hótel Nordica kl. 7.30–11.00
THE COMPETITIVENESS
OF ICELAND
Michael Porter er forseti World Economic Forum sem gefur út
virtustu skýrslu heims um samkeppnishæfni þjóða – „Global
Competitiveness Report“. Dr. Porter hefur undanfarið unnið að
skýrslu um samkeppnishæfni Íslands og gerir hann grein fyrir
niðurstöðum sínum á ráðstefnunni. Þátttakendur fá skýrsluna í
hendur og eftir fyrirlesturinn verða pallborðsumræður.
Þessi rannsókn er hvalreki fyrir alla sem áhuga hafa á einhverju
eldfimasta umræðuefni síðustu missera og ára á Íslandi og á
eflaust eftir að vekja mikla athygli.
Prófessor Michael E. Porter, sem talinn er fremsti hugsuður heims á sviði stefnumótunar og
stjórnunar, heldur tvo fyrirlestra á Íslandi þann 2. október næstkomandi.
The Thinkers 50
er listi yfir fimmtíu helstu viðskipta-
hugsuði heims og Michael Porter er
þar í fyrsta sæti.
1. Michael PORTER
2. Bill GATES
3. CK PRAHALAD
4. Tom PETERS
5. Jack WELCH
Meira á www.thinkers50.com
Jón Sigurðsson
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
setur ráðstefnuna
Bjarni Snæbjörn Jónsson
Framkvæmdastjóri Capacent í Danmörku
Ráðstefnustjóri
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.261 -0,60% Fjöldi viðskipta: 410
Velta: 2.502 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 66,50 +0,15% ... Alfesca
4,98 -0,60% ... Atlantic Petroleum 575,00 +0,00% ... Atorka 6,40
+0,00% ... Avion 32,30 -0,62% ... Bakkavör 59,00 +0,00% ...
Dagsbrún 4,28 +0,47% ... FL Group 22,60 +0,89% ... Glitnir 20,30
+0,00% ... KB banki 850,00 -1,39% ... Landsbankinn 26,10 -0,76%
... Marel 78,50 -0,63% ... Mosaic Fashions 17,80 -1,11% ... Straum-
ur-Burðarás 17,30 +0,00% ... Össur 125,50 +0,00%
MESTA HÆKKUN
FL Group +0,89%
Dagsbrún +0,47%
Actavis +0,15%
MESTA LÆKKUN
KB banki -1,39%
Mosaic -1,11%
Flaga -0,78%
Ólíkir Smárar
Hlutabréf í FL Group hafa rokið upp í verði síðustu
vikurnar án þess að margar fréttir hafi borist úr
herbúðum félagsins. Bæði Hannes Smárason og
Baugur Group keyptu bréf fyrir nokkrum dögum
sem hafði klárlega áhrif til hækkunar. Þá þykir
mjög líklegt að FL Group tilkynni á næstu dögum
um skráningu Icelandair Group í Kauphöll Íslands
eftir velheppnuð hlutafjárútboð að undanförnu.
Fulljóst má vera að dulin verðmæti felist í Ice-
landair, enda er félagið bókfært á átta milljarða
króna. Á sama tíma hrynur gengi Dagsbrúnar niður
úr öllu valdi sem rekja má til erfiðleika í sumum
rekstrareiningum félagsins og mikillar skuldastöðu.
Fjárfestar vilja því frekar Hannes Smára en Gunnar
Smára þessa dagana.
Villingur í forstjórastól
„Danir eru að drukkna í reglugerðafargani. Kannski
hafið þið haft það of gott - of lengi,“ segir Almar
Örn Hilmarsson, forstjóri Sterling, við blaðamann
karlablaðsins Euroman. Situr þessi fyrrverandi
framkvæmdastjóri Iceland Express á businessclass
Icelandair og fer yfir farinn veg, gerir grein fyrir
útrás Íslendinga til Danmerkur og eigin lífshlaupi,
þar á meðal
atvinnuferli sem
einkennist af
vandamálapökkum.
Hann bætir við: „Á
Íslandi láta menn
aldrei fram hjá sér fara
að taka frumkvæði.“
Í viðtalinu kemur fram
að Almar hafi ekki verið
neinn kórdrengur á
sínum yngri
árum, segist
hafa stolið bensíni frá
forsetanum og fjarlægt dekkin
Peningaskápurinn ...
Breska verslanakeðjan Woolworths
tapaði 8,5 milljörðum króna fyrir
skatta á fyrri hluta ársins. Afkoma
fyrir óreglulega liði er nærri tvö-
falt verri en á sama tímabili árið
2005.
Stjórnendur félagsins búast við
að seinni hluti ársins verði mun
skárri, enda fellur þá til jólaversl-
un. Þá búast þeir við að endurbæt-
ur á verslunum bæti afkomuna.
Harðnandi samkeppni við stór-
markaðina Tesco og Asda setti svip
sinn á uppgjörið en þessar stóru
keðjur hafa sótt fast fram í sölu á
öðrum varningi en matvælum.
Baugur Group á um tíu prósenta
hlut í Woolworths og er sagður hafa
áhuga á að skipta félaginu upp.
Talið er ólíklegt að Baugur láti til
skarar skríða fyrr en eftir lok jóla-
verslunar. - eþa
Woolworths tapar
Baugur bíður átekta fram yfir jólaverslun. Bandaríski seðlabankinn hefur
ákveðið að halda stýrivöxtum
óbreyttum í 5,25 prósentum. Þetta
er annar mánuðurinn í röð sem
bankinn heldur stýrivöxtum óbreytt-
um og telja greiningaraðilar líkur á
að hækkanaferlið sé á enda.
Einn af ellefu meðlimum vaxta-
ákvörðunarnefndar bankans var
hins vegar fylgjandi 25 punkta
hækkun vaxta.
Í rökstuðningi bankastjórnarinn-
ar fyrir ákvörðuninni segir að þrátt
fyrir að hægt hafi á hag-
vexti í landinu verði enn
fylgst náið með verðbólgu-
þróun. Hagvöxtur í Banda-
ríkjunum á öðrum árs-
fjórðungi nam 2,9
prósentum en það er um
tvöfalt minni hagvöxtur en
á fyrstu þremur mánuðum
ársins. Á sama tíma mæld-
ist verðbólga vestra 2,8
prósent í ágúst en hún
hækkaði um 0,2 prósent á
milli mánaða. Það er þó
0,8 prósentustigum yfir
verðbólgumarkmiðum
bandaríska seðlabankans.
Greiningaraðilar segja
hafa hægst um of á hag-
vexti í landinu og geti það
haft áhrif á hagvöxt á
heimsvísu. Bankastjórnin
vísar því hins vegar á bug
og telur og að hagvöxtur
muni haldast á þessu stigi á
næstu mánuðum. - jab
Óbreyttir vextir í Bandaríkjunum
BEN BERNANKE
SEÐLABANKA-
STJÓRI
MARKAÐSPUNKTAR
Sensex-hlutabréfavísitalan á Indlandi
rauf 12.000 stiga múrinn í gær en vísi-
talan hefur ekki verið jafnhá síðan í maí
síðastliðnum.
Avion Group tilkynnti í gær að tilboð
félagsins í allt hlutafé kanadíska frysti-
geymslufyrirtækisins Atlas Cold Storage
Income Trust, sem átti að renna út
föstudaginn 22. september, yrði fram-
lengt til föstudagsins 6. október 2006.
Fjárfest var í íbúðarhúsnæði fyrir ríflega
32 milljarða króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Þetta er 4,8 milljörðum
krónum meira en á sama tíma í fyrra.
Greiningardeild Glitnis segir að aldrei
hafi verið fjárfest eins mikið í íbúðarhús-
næði á einum árshelmingi og nú.