Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 75
FÖSTUDAGUR 22. september 2006 43
FÓTBOLTI Sam Allardyce, stjóri
Bolton, viðurkennir að hann hafi
orðið fyrir miklum vonbrigðum að
hlusta á son sinn gera sig að meiri
manni en hann væri í sjónvarps-
þætti BBC. Þar var hann leynilega
myndaður þar sem hann lýsti því
hversu auðvelt aðgengi hann hefði
að föður sínum og að auðvelt væri
fyrir hann að framkvæma við-
skipti vegna þessa.
„Sem faðir er það sársaukafullt
að horfa á son sinn segja uppblásn-
ar sögur og auka mikilvægi sitt til
þess að ná skjótum fjárhagslegum
gróða,“ sagði Allardyce. Í þættin-
um komu tveir umboðsmenn fram
sem sögðu báðir að þeir hefðu
greitt Sam Allardyce mútugreiðsl-
ur í tengslum við leikmenn sem
gengu til liðs við félagið. Sjálfur
hefur hann harðneitað því.
„Ég er mjög reiður vegna
þeirra lyga sem sagðar voru um
mig,“ sagði hann. „Þessir menn,
sem komu fram í þættinum og
voru með þessar ásakanir í minn
garð, hafa þegar vottað það skrif-
lega við lögfræðinga mína að þeir
lugu þessu að BBC.“
Allardyce bætti því við að þeir
hefðu logið í þeirri von að græða
milljónir sem fulltrúi BBC átti að
hafa boðið þeim, en sá þóttist vera
að setja á stofn eigin umboðs-
mannaskrifstofu.
„Þeirra græðgi hefur gert það
að verkum að mitt góða nafn hefur
nú verið svert með dylgjum og
svikum. Ég er sannfærður að BBC
hefur engin sönnunargögn í sínum
fórum enda er ég algerlega sak-
laus í þessu máli. Ég hef ekkert
rangt gert.“<?ACE 8?> - esá
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, varð fyrir miklum vonbrigðum með son sinn:
Sársaukafullt að horfa á soninn segja uppblásnar sögur
SAM ALLARDYCE Stjóri Bolton á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir.
FÓTBOLTI Tveir ítalskir knatt-
spyrnumenn hafa verið dæmdir í
tveggja mánaða keppnisbann
vegna aðildar sinnar að veðmála-
þjónustu. Umræddir leikmenn
eru Francesco Flachi, fyrirliði
Sampdoria, og Moris Carrozzieri,
leikmaður Atalanta, en þeir léku
saman hjá Sampdoria þegar
umrætt atvik átti sér stað.
Leikmennirnir voru fundnir
sekir um að afla sér upplýsinga
um fyrirhugaða leiki annarra liða
og miðla þeim upplýsingum til
áhugasamra aðila með það fyrir
augum að nýta sér þær upplýs-
ingar í veðmálum. Málið hefur
verið í rannsókn frá því í október
2005 en upp komst um leikmenn-
ina eftir símahlerun.
Sampdoria var einnig sektað
fyrir óbeina aðild sína að málinu.
Tveir leikmenn í bann:
Stjórnuðu veð-
málaþjónustu
FRANCESCO FLACHI Leikmaður Samp-
doria, hefur verið dæmdur í tveggja
mánaða bann. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI 27 ára Bandaríkja-
maður að nafni Jermain Williams
hefur gengið til liðs við Keflavík
og kom til landsins í gær.
Williams er 201 cm á hæð og lék
með LSU-háskólanum. Fyrir
skömmu samdi Keflavík við
danskan landsliðsmann, Thomas
Soltau, sem kom til Keflavíkur í
fyrradag. - esá
Nýr leikmaður til Keflavíkur:
Williams til
Keflavíkur
FÓTBOLTI Middlesbrough hefur
kært umboðsmanninn Peter
Harrison til enska knattspyrnu-
sambandsins fyrir að eiga
ólöglegar samræður við Liver-
pool og Chelsea um leikmann sem
er á mála hjá félaginu. Í Panor-
ama, þætti BBC sem sýndur var á
mánudagskvöld, náðist Harrison
á filmu þar sem hann ræddi við
Frank Arnesen, yfirmann
unglingamála Chelsea, og fulltrúa
Liverpool um 15 ára leikmann
Boro, Nathan Porritt. Harrison
sagði einnig í þættinum að hann
hefði rætt við Newcastle um
drenginn.
Arnesen sagði á sama fundi að
Chelsea væri reiðubúið að greiða
150 þúsund pund í leynilegum
greiðslum til Porritts ef hann
kæmi til félagsins. Fulltrúar Boro
sögðu í gær að Harrison hafði
ekkert umboð haft til að ræða við
félögin. - esá
Middlesbrough kærir:
Boro kærir Pet-
er Harrison
FÓTBOLTI Spænski framherjinn
Fernando Morientes segist vera
feginn að hafa losnað úr ensku
úrvalsdeildinni og gengið í raðir
Valencia. Morientes hefur skorað
tvö mörk í tveimur leikjum fyrir
Valencia í spænsku deildinni og
þrennu í eina leik liðsins í
Meistaradeild Evrópu en hann
skoraði aðeins 12 mörk í 61 leik
fyrir Liverpool.
„Mig langaði að fara aftur í
umhverfi þar sem ég kannaðist
við mig og spila fótbolta sem mér
líkaði vel við,“ sagði Morientes og
lét ekki vel af enska boltanum.
„Það er of mikil harka í enska
boltanum og dómararnir sleppa
of mörgum brotum.“ - dsd
Fernando Morientes:
Of mikil harka
á Englandi
����������
����������������������
�����������������
����������
��������
��������������
���������
����������������
�����������
��������
��������������
������������������������������� ����������
���������������
����������
� �� ������������ �����
� ������������������������
� �����������������
�� �������� ���������������������������
�������������������������������������������������������������
� ���������������������������� �����������
�������������
�����������������������������������������������������