Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 12
12 22. september 2006 FÖSTUDAGUR LÍBANON, AP Sameinuðu þjóðirnar hafa krafið Ísraelsher um nánari skýringar á klasasprengjum þeim sem dreift var yfir S-Líbanon eftir að vitað var að vopnahlé kæmist á. Beðið er um lista yfir alla þá staði sem sprengjum var varpað á og hversu mörgum hafi verið varpað á hverjum stað, en upplýsingarnar gætu flýtt mjög fyrir hreinsunaraðgerðum hjálparstofnana, að sögn Davids Shearer, yfirmanns mannúðar- starfs SÞ í Líbanon. Líklegt er talið að hreinsunar- starfið taki um tvö ár, en talið er að enn séu 350 þúsund lífshættu- legar sprengjur á víðavangi. - kóþ Eftirmálar stríðsins í Líbanon: Ísraelar krafðir útskýringa SKOÐA SAMSETTA MYND Risastór mynd af Georgy Parvanov, forseta Búlgaríu, prýðir nú höfuðborgina Sofíu í tilefni af kosningabaráttunni, sem er að fara í gang. Myndin er sett saman úr mörgum litlum myndum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP SÍMHLERANIR Stjórn Sagnfræðinga- félags Íslands sendi frá sér álykt- un í gær þar sem félagið lýsir furðu sinni á takmörkunum á aðgangi að gögnum um símahler- anir í vörslu Þjóðskjalasafnsins. Í ályktuninni segir að sjálfsagt sé að ákveðnar reglur gildi um aðgang að skjölum af þessu tagi en afar varhugavert að þær höml- ur vegi þyngra en réttur til rann- sókna á liðinni tíð, að teknu tilliti til sjálfsagðra ákvæða um per- sónuvernd. Einnig eiga einstakl- ingar, sem hafa rökstuddan grun um að um þá sé fjallað í þeim gögnum sem um ræðir, rétt á því að kanna þau með sömu skilyrðum og aðrir hafa notið. Allir eiga að vera jafnir fyrir lögum og reglum um aðgang að opin- berum gögnum. Guðni Th. Jóhannesson, formaður félagsins, vék af fundi þegar ályktað var um málið þar sem hann tengist mál- inu, bæði með því að hafa verið veittur aðgangur að sumum gögn- um en synjað um aðgang að öðrum. Mikil umræða hefur verið á meðal sagnfræðinga undanfarna daga um málið og ekki síst á póst- listanum Gammabrekku. Þar hefur stjórn Sagnfræðingafélags- ins verið hvött til að álykta um málið. Sérstaklega eru sagnfræð- ingar ósáttir við framgöngu Ólafs Ásgeirssonar, þjóðskjalavarðar, og fullyrða að hann hafi brotið siðareglur Sagnfræðingafélagsins með því að neita fjölmörgum ein- staklingum um aðgang að gögnun- um, með þeim rökum að eðlilegt sé að nefnd um upplýsingamál fjalli um kærumál sem tengjast málinu áður en frekari aðgangur er veittur. - shá Sagnfræðingafélag Íslands ályktar um gögn um símhleranir: Lýsa furðu á takmörkunum GUÐNI TH. JÓHANNESSON 10 daga afmælistilboð HANNAÐU HEIMILIÐ MEÐ TENGI Opið: Virka daga 08-18 Laugardaga 10-15 Smiðjuvegur 76 200 Kópavogur Sími 414 1000 Fax 414 1001 tengi.is Í tilefni af 25 ára afmæli Tengis bjóðum við afslátt á völdum vörum, þar á meðal 25% afslátt af sturtuhurðum. Hjá okkur getur þú skapað bað- herbergi drauma þinna en við erum með fjölmörg frábær vörumerki sem bjóða upp á glæsilega hönnun á baðkerum, hreinlætistækjum og eldhúsvöskum. Verið velkomin í stórglæsilegan sýningarsal okkar að Smiðjuvegi 76. Nú getur þú greitt með léttgreiðslum Euro og Visa – vaxtalaust í 3 mánuði. TILBOÐ: 28.000 kr. TILBOÐ: 99.000 kr. ótrúlegt verð TILBOÐ: 14.900 kr. Mora Marena Hitastillt sturtutæki með ömmu stöng, sturtuhaus og tilheyrandi búnaði. Ifö Kreta m/nuddi Falleg hönnun sem skapar vellíðan fyrir alla fjölskylduna. Ifö Samba Sturtuhorn úr hertu öryggisgleri með stálbotni. Á m e ð a n b irg ð ir e n d a s t 25% kynningar- afsláttur af baðkerum frá Balteco LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 11.15 Liverpool – Tottenham 16.05 Reading – Man. Utd. SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 14.45 Newcastle – Everton 18.20 Udinese – Fiorentina MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 18.50 Portsmouth – Bolton HÖRKULEIKIR Í BEINNI UM HELGINA vaxtaauki! 10% A RG U S / 06 -0 47 2 Kynntu þér málið á spron.is ANKARA, AP Dómstóll í Tyrklandi var í gær ekki lengi að sýkna rit- höfundinn Elif Shafak af ákæru um að í einni af skáldsögum henn- ar væri að finna móðgandi ummæli um Tyrki. Réttarhöldin stóðu aðeins í hálfan annan tíma og lauk með því að dómstóllinn sagði engan fót vera fyrir ákærunni. Evrópusambandið hafði varað Tyrkland við því að draga rithöf- unda og blaðamenn fyrir dóm vegna skrifa þeirra. Slíkt gæti dregið úr líkum á því að Tyrkland hljóti inngöngu í Evrópusamband- ið. Um það bil 25 tyrkneskir þjóð- ernissinnar höfðu uppi mótmæli fyrir utan réttarsalinn, héldu á lofti tyrkneskum fánum ásamt bláum fána Evrópusambandsins, sem hafði verið breytt þannig að hakakross að hætti nasista var í miðju fánans. Til skammvinnra átaka kom milli mótmælenda og lögreglunnar að loknum réttar- höldunum. Ákæran var út af skáldsögunni „Skepnan frá Istanbúl“, sem Shafak skrifaði þegar hún bjó í Bandaríkjunum. Í bókinni er fjall- að um alræmd fjöldamorð á Armenum sem Tyrkir frömdu snemma á 20. öld þegar Tyrkja- veldi var að líða undir lok. Armensk persóna í bókinni talar um „tyrk- nesku slátrarana“, og það voru þessi orð sem urðu tilefni til ákærunnar. Tyrkir hafa allt til þessa dags neitað að tala um morðin sem þjóð- armorð, þrátt fyrir að allt að ein og hálf milljón Armena, sem búsettir voru í austurhluta Tyrkjaveldis, hafi ýmist verið hraktir frá heim- kynnum sínum eða drepnir. Sjálf gat Shafak ekki mætt til réttarhaldanna í gær, þar sem hún fæddi stúlkubarn á laugardaginn og var enn á sjúkrahúsi. Hefði hún verið dæmd fyrir ummæli sín, hefði hún getað átt von á allt að þriggja ára fangelsisdómi. „Þetta er skömm, ekki bara fyrir hana heldur fyrir Tyrkland. Allt málið er fáránlegt,“ sagði eig- inmaður hennar, Eyup Can, áður en réttarhöldin hófust. Fleiri rithöfundar og blaða- menn í Tyrklandi hafa verið dregn- ir fyrir dóm eða eiga yfir höfði sér réttarhöld vegna orða sinna, sem talin eru meiðandi fyrir Tyrkland eða tyrkneskt þjóðerni. Á síðasta ári felldi tyrkneskur dómstóll niður ákærur á hendur öðrum frægum rithöfundi, Orhan Pamuk, sem hafði verið ákærður fyrir ummæli sín um fjöldamorðin á Armenum. gudsteinn@frettabladid.is FRÁ MÓTMÆLAAÐGERÐUM FYRIR UTAN RÉTTARSALINN Kona heldur á tyrkneskum fánum en á jörðinni má sjá fána Evrópusambandsins með hakakross í miðjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Skáldkona sýknuð Tyrkneskur rithöfundur þótti ekki hafa móðgað Tyrkland með því að láta armenska persónu í skáld- sögu sinni tala um „tyrknesku slátrarana“. Úrskurð- urinn vakti úlfúð mótmælenda. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.