Fréttablaðið - 01.10.2006, Side 23
ATVINNA
SUNNUDAGUR 1. október 2006 3
Vertu á meðal þeirra fyrstu!
Thomas Alva Edíson,
uppfínníngamaður.
– Ljósaperan
– Plötuspílarínn
– Kvikmyndavélín
– Hljóðneminn
og margt fleíra.
Einstakt tækifæri til að taka þátt í gangsetningu og rekstri
Fljótsdalsstöðvar, stærstu aflstöðvar landsins
Landsvirkjun er í hópi stærstu fyrirtækja landsins með heildareignir upp á um 220
milljarða króna og ársveltu um 16 milljarða.
Fyrirtækið er leiðandi í samkeppni á raforkumarkaði með góðri þjónustu og framsækinni
vöruþróun.
Landsvirkjun byggir á gæða- og umhverfisstjórnun og áhersla er lögð á
mannafla- og þekkingarstjórnun þar sem fjölskylduvænt starfsumhverfi,
jafnrétti og tækifæri til starfsþróunar eru í fyrirrúmi.
Landsvirkjun óskar eftir að ráða starfsmenn til stöðvargæslu við
Fljótsdalsstöð og veitumannvirki hennar og er æskilegt að þeir geti
hafið störf sem allra fyrst.
Stöðin mun heyra undir rekstrardeild á orkusviði Landsvirkjunar og
er gert ráð fyrir að hún verði tekin í rekstur í apríl á næsta ári.
Starfsstöð viðkomandi starfsmanna verður í þjónustubyggingu í
Fljótsdal undir Valþjófsstaðafjalli.
Starfssvið
Störfin beinast í fyrstu að undirbúningi að gangsetningu stöðvar-
innar. Eftir að rekstur er hafinn verða þau við eftirlit og viðhald
aflstöðvarinnar og veitumannvirkja. Einnig snúast störfin um verk-
efnabundna vinnu við framþróun og viðhald vottunar í gæða-, öryggis-
og umhverfismálum.
Í boði
Fyrirmyndar starfsaðstaða ásamt metnaðarfullu og faglegu vinnu-
umhverfi sem býður upp á tækifæri til starfsþróunar, ásamt einstöku
tækifæri til að móta nýjan vinnustað þannig að til fyrirmyndar sé.
Æskileg starfsreynsla
> Störf við aflstöðvar og raforkuvirki.
> Uppsetning og forritun iðntölva
og/eða skjámyndakerfa.
> Rekstur og viðhald loft-, kæli-, vökva-
og rafkerfa.
Hæfniskröfur
> Tæknimenntun á rafmagns- og/eða
vélfræðisviði.
> Staðgóð tölvukunnátta.
> Aðlögunarhæfni og hæfni til þess að
tileinka sér nýjungar.
> Frumkvæði, skipulag og sjálfstæð
vinnubrögð.
> Hæfni til kynningar á starfi og
starfsumhverfi.
> Lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um störfin á vefsíðu Capacent
Ráðninga, www.capacent.is.
Umsjón með umsóknum hafa Auður Bjarnadóttir (audur.bjarnadottir@capacent.is) og
Guðlaugur Arnarsson (gudlaugur.arnarsson@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október nk.
Áhersla er lögð á öfluga liðsheild og góðan starfsanda
M
IX
A
•
fí
t
•
6
0
5
1
4