Fréttablaðið - 18.10.2006, Page 24
18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR4
Nýtt pústkerfi, ný tölva, 175
hestafla Nitro og low profile-
dekk. Það eru ekki margir
Grand Cherokee jeppar sem
hafa gengið í gegnum þessar
breytingar en bíllinn hans
Steina er einn af þeim.
Steingrímur Sigurðsson, eða
Steini eins og hann er alltaf kall-
aður, hefur átt fjölmarga bíla um
árin. „Ég hef átt ameríska, asíska,
og evrópska bíla, bæði jeppa og
fólksbíla,“ segir Steini. „En þetta
er sennilega fyrsti bíllinn sem ég
er fullkomlega sáttur við að eiga
og langar ekki að selja. Hann
hefur allt. Hann er kraftmikill,
hann er fjórhjóladrifinn, og það
er gott að keyra hann.“
Bíllinn er Grand Cherokee
árgerð 2001. Búið er að koma fyrir
nýju pústkerfi sem er með því
sverara sem blaðamaður hefur
séð í götubíl. Tölvan er breytt og
er búið að breyta drifhlutföllum
bílsins. Svo er búið að koma fyrir
nitrókerfi og þegar það er tengt
er bíllinn 475 hestöfl. „Hann
Ásgeir Örn og Kiddi í Aukaraf
tengdu nitróið alveg snilldar vel.
Allt öryggi er eins og það á að
vera og ef eitthvað kemur upp á
þá slær kerfið einfaldlega út.“
Steini ætlar ekki að láta staðar
numið við 475 hestöfl. Fyrirhugað
er að setja keflablásara (super-
charger) í bílinn þannig að enda-
útkoman verður 600 hestafla fjór-
hjóladrifinn lúxus jeppi.
tryggvi@frettabladid.is
Endar í 600 hestöflum
Allur frágangur í kringum nítrótenginguna er fyrsta flokks.
Pústkerfið er engin smásmíði.
Nítrókúturinn í skottinu. Hann skilar 175
hestöflum.
Steini reynir að gera eins mikið sjálfur í
bílnum og hann getur.
Grand Cherokee Limited Edition árgerð 2001 að hætti Steina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stofnað hefur verið nýtt fyrirtæki um rekstur
Fiat-umboðsins á Íslandi. Fyrirtækið nefnist
Bílaumboðið SAGA en forsvarsmaður þess er
Guðmundur Ingvarsson.
Guðmundur er bílaheiminum ekki ókunnur því hann
var áður framkvæmdastjóri og einn eigenda Ingvars
Helgasonar. Með kaupunum snýr hann því aftur á
bílamarkaðinn þar sem hann ætlar sér og umboðinu
um fimm prósenta markaðshlutdeild í sölu nýrra
bíla.
SAGA mun einnig hafa umboð Alfa Romeo, Mas-
erati, Ferrari og Ducati-hjóla. „Áherslubreytingarn-
ar eru fyrst og fremst að ná meiri fótfestu og að
koma fólki í skilning um það að þessi vara sem við
erum að selja, Fiat og Alfa Romeo, er mjög sambæri-
leg við annað sem er verið að selja á markaðnum,“
segir Guðmundur.
Engum dylst hæfni Ítala til að hanna fallega bíla
en Alfa Romeo og Fiat hafa ekki gott orð á sér hér-
lendis varðandi bilanatíðni. „Fyrirtækin hafa tekið
verulega á gæðamálum hjá sér, sérstaklega Fiatinn.
Þar munar miklu um að þjónustan var kannski ekki
alveg eins og hún átti að vera en þeir hafa tekið á því
og eru komnir út úr því núna,“ segir Guðmundur og
bendir máli sínu til stuðnings á að Fiat Punto hafi
verið valinn bíll ársins í fyrra.
Hingað til hefur ekki verið mikill grundvöllur
fyrir sölu Maserati og Ferrari bíla hérlendis. „Þetta
eru meira skrautfjaðrir en annað er við sjáum fyrir
okkur að við getum selt nokkuð af Maserati Quattro-
porte,“ segir Guðmundur. „Ég held að verðið sé eina
ástæða þess að Ferrari sjáist sjaldan hérlendis en
Íslendingar eru alltaf að verða gildari og gildari.“
Nýir umboðsaðilar Fiat
Fiat Punto var bíll ársins í fyrra. NORDICPHOTO/GETTY IMAGESwww.kistufell.com
Vélaviðgerðir, túrbínuviðgerðir
og spíssaviðgerðir.
Vélaverkstæðið Kistufell býður
upp á stimpla og slífar í flestar
gerðir véla frá hinum þekkta
framleiðanda Mahle.
VIÐGERÐIR FYRIR FLESTAR GERÐIR VÉLA
kistufell.com
Pakkningarsett
Ventlar
Vatnsdælur
Tímareimar
Knastásar
Legur
Stimplar
4x4 specialist
Fáanleg í flestum stærðum fyrir
15,16,17 og 18” felgur
Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444
Jeppadekkin frá