Fréttablaðið - 18.10.2006, Side 37
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006
Nýskráningar bifreiða í Evrópu
drógust saman um 2,6 prósent
í september frá sama mánuði í
fyrra, samkvæmt upplýsingum
frá samtökum evrópskra bíla-
framleiðenda, sem birtar voru
í síðustu viku. Nýskráningum
fækkaði um 16,9 prósent hér á
landi á sama tíma. Samtals voru
rétt rúmar 1,4 milljónir bifreiða
nýskráðar í Evrópu í mánuðin-
um samanborið við tæplega 1,5
milljónir bifreiða í sama mánuði
fyrir ári.
Ef litið er til fyrstu níu mán-
uða ársins fjölgaði nýskráning-
um hins vegar um 0,1 prósent á
árinu í Evrópu en um 2,3 prósent
hér á landi. - jab
NÝIR BÍLAR Nýskráningar bifreiða drógust
saman um 16,9 prósent hér á landi í síð-
asta mánuði borið saman við sama tíma í
fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Samdráttur í nýskráningum
Japanska hátæknifyrirtækið
Sony hefur ákveðið að innkalla
90.000 rafhlöður, sem fyrirtæk-
ið framleiðir og selur með far-
tölvum af gerðinni Sony Vaio.
Greiningaraðilar telja líkur á
talsvert minni hagnaði í ár en í
fyrra.
Hinir ýmsu fartölvuframleið-
endur jafnt í Bandaríkjunum sem
í Japan hafa innkallað ríflega 8
milljónir rafhlaðna undir merkj-
um Sony á heimsvísu og er búist
við að nokkrir þeirra kunni að
fara fram á greiðslu skaðabóta
frá hendi Sony. Gallinn í rafhlöð-
unum er sá sami og í fyrri tilvik-
um. Rafhlöðurnar ofhitna og er
vitað um tíu tilvik þar sem bein-
línis hefur kviknað í fartölvum
vegna þessa.
Breska dagblaðið The Guardian
hefur eftir japanska viðskipta-
blaðinu Nihon Keizai Shimbun að
svo gæti farið að Sony innkalli allt
að 300.000 rafhlöður, sem seldar
voru með fartölvum Sony. Verði
það raunin hefur það enn frekari
áhrif á hagnað fyrirtækisins.
Sony reiknaði með 130 millj-
arða jena eða tæplega 40 millj-
arða króna hagnaði á árinu. Þetta
er 43 prósentum minna en í fyrra.
Greiningaraðilar telja líkur á
að hagnaðurinn verði enn minni
þegar innkallanir á ríflega 8 millj-
ónum rafhlaða verði komnar inn í
dæmið. - jab
SONY VAIO Búist er við að hagnaður
hátækniframleiðandans Sony dragist veru-
lega saman á árinu vegna innkallana á
ríflega 8 milljónum rafhlaðna fyrir fartölvur.
MARKAÐURINN/AFP
Sony innkallar eigin rafhlöður