Fréttablaðið - 20.10.2006, Side 2
2 20. október 2006 FÖSTUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Árni, er hvalafullt á að horfa?
„Já, maður sýpur hveljur við að
horfa upp á stjórnvöld senda hval-
veiðibát út á ballarhaf án þess að
hafa vinnsluleyfi fyrir hvalkjötið.“
Hvalveiðar frá Íslandi eru hafnar á ný eftir
áralanga bið, en Hvalstöðin í Hvalfirði
hefur ekki starfsleyfi til matvælavinnslu.
Árni Finnsson er formaður Náttúruverndar-
samtaka Íslands.
SKRIFSTOFUVÖRUR
Borgartúni 29 • Sími 515 5170 • Opið virka daga kl. 8-18 og laugardaga kl. 11-16
www.oddi.is
FJÖLBREYTT
úrval til jólakortagerðar
HVALVEIÐAR Haukur Ólafsson,
sendifulltrúi í íslenska sendiráð-
inu í Bretlandi, segir Ben Brads-
haw, sjávarútvegsráðherra Breta,
hafa allar nauðsynlegar upplýs-
ingar um stofnstærð langreyðar
og hrefnu en hann kjósi hins vegar
að nýta þær ekki í málflutningi
sínum um atvinnuhvalveiðar
Íslendinga. Bradshaw sagði í við-
tali við breska ríkisútvarpið, BBC,
á miðvikudag að ákvörðun Íslend-
inga væri óskiljanleg og heims-
byggðinni réttilega misboðið.
Hann lætur einnig að því liggja að
vísindaveiðar á hrefnu sé fyrir-
sláttur til að geta veitt hval.
„Menn nota þau rök sem henta
þeim og hann kýs að nýta ekki þær
upplýsingar að langreyðarstofn-
inn við Ísland telji um 25 þúsund
dýr og Atlantshafssjávarspendýra-
ráðið og vísindanefnd Alþjóða-
hvalveiðiráðsins hafa staðfest
það,“ segir Haukur.
Bradshaw hefur kallað sendi-
herra Íslands í Bretlandi, Sverri
Hauk Gunnlaugsson, á sinn fund í
næstu viku. Þar ætlar hann að
greina Sverri frá afstöðu breskra
stjórnvalda til atvinnuhvalveiða
Íslendinga.
Haukur segir það skoðun sendi-
ráðsins að hvalveiðarnar hafi ekki
vakið mikla athygli í Bretlandi og
fjölmiðlaumfjöllun sé lítil. - shá
Íslenski sendifulltrúi segir breska sjávarútvegsráðherrann hunsa upplýsingar:
Bretar nota þau rök sem henta
BEN BRADSHAW Sjávarútvegsráðherra
Breta er stóryrtur í garð Íslendinga.
Hann segir ákvörðun um atvinnuhval-
veiðar óskiljanlega. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STRÆTÓ Pólitísk afskipti af dag-
legri starfsemi Strætó bs. eru
skaðleg fyrirtækinu og óljóst hver
stefna fyrirtækisins er. Þetta
kemur fram í nýrri stjórnsýslu-
úttekt á Strætó sem endurskoðun-
arfyrirtækið Deloitte gerði að
beiðni stjórnar fyrirtækisins.
Í niðurstöðum skýrslunnar,
sem var kynnt í gær, segir einnig
að ekki virðist ríkja fullkomin
samstaða og trúnaður meðal æðstu
stjórnenda Strætó bs. og hafi það
sérstaklega endurspeglast í inn-
leiðingu og hönnun nýja leiðakerf-
isins.
Núverandi stjórn Strætó fagnar
því að geta notað niðurstöður
úttektarinnar í stefnumótunar-
vinnu sinni sem þegar er hafin, að
því er segir í tilkynningu frá fyrir-
tækinu.
Ármann Kr. Ólafsson stjórnar-
formaður segir að í niðurstöðum
úttektarinnar sé ekki verið að
gagnrýna að stjórn Strætó sé
pólitísk heldur sé verið að tala um
þá sveitarstjórnarmenn sem reyna
að hafa áhrif á fyrirtækið í gegn-
um óskilgreindar leiðir.
„Þeir pólitísku fulltrúar sem
ekki eru í stjórn reyna að hafa
áhrif á reksturinn eftir óformleg-
um boðleiðum, og það er eitthvað
sem stjórnin þarf að taka á,“ segir
Ármann.
- sþs
Stjórnsýsluúttekt Deloitte á rekstrinum hjá Strætó bs.:
Pólitísk afskipti skaða Strætó
STRÆTÓÍ tilkynningu frá núverandi stjórn Strætó fagnar hún því að geta notað niður-
stöður úttektarinnar í stefnumótunarvinnu sinni.
KÍNA, SUÐUR-KÓREA, AP Kínverska
ríkisstjórnin reyndi í gær að bæta
samskiptin við Norður-Kóreu með
því að senda hátt settan embættis-
mann til fundar við Kim Jong-Il,
leiðtoga Norður-Kóreu. Embættis-
maðurinn færði Kim persónulega
gjöf frá Hu Jintao, forseta Kína,
þó ekki hefði komið fram hver sú
gjöf var.
Óvíst er hver niðurstaða fund-
arins var, en að sögn Liu Jianchao,
talsmanns utanríkisráðherra Kína,
ræddu Kim og embættismaðurinn
ítarlega um kjarnorkuáætlun
Norður-Kóreu.
Á sama tíma fundaði utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, Condol-
eezza Rice, með utanríkisráðherr-
um Suður-Kóreu og Japans, Ban
Ki Moon og Taro Aso.
„Við viljum halda samninga-
leiðinni opinni, við viljum ekki
auka á óstöðugleikann,“ sagði Rice
á blaðamannafundi í Seúl og bætti
við að hún vonaðist eftir að samn-
ingaumleitanir Kínverja bæru
árangur. Jafnframt tók hún fram
að samskipti Suður-Kóreu og
Bandaríkjanna væru afar sterk
þessa dagana.
Þó segja fréttaskýrendur að
ekkert bendi til þess að stjórnvöld
í Suður-Kóreu ætli sér að taka upp
harða afstöðu Bandaríkjanna gegn
kommúnistaríkinu. Kjarnorkutil-
raun Norður-Kóreu olli uppnámi í
alþjóðasamfélaginu. Þrátt fyrir
hörð viðbrögð hefur norðurkór-
eska ríkisstjórnin ekki samþykkt
að láta af frekari prófunum og er
talið að hún sé að undirbúa aðra
tilraun.
„Það ætti aldrei að koma til
annarrar kjarnorkusprengju-
tilraunar, því það myndi eingöngu
gera ástandið enn verra,“ sagði
Ban, sem jafnframt er verðandi
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna. Kína, sem löngum hefur
verið sterkasti stuðningsaðili
Norður-Kóreumanna og verið
þeim innan handar með matar-
gjafir og eldsneyti, virðist þó vera
að missa þolinmæðina gagnvart
Kim og stjórn hans. Heimsókn kín-
verska embættismannsins þykir
benda til þess að Kínverjar séu nú
að reyna að beita Norður-Kóreu-
menn frekari þrýstingi til að snúa
aftur að samningaborðum sex
þjóða um kjarnorkuáætlun Norður-
Kóreu. Auk Kína og Norður-Kóreu
taka Suður-Kórea, Bandaríkin,
Japan og Rússland þátt í þeim við-
ræðum. smk@frettabladid.is
Kínverjar milda Kim
Jong-Il með gjöfum
Enn eykst pressan á Norður-Kóreu um að hætta við kjarnorkuframleiðslu sína.
Í gær funduðu talsmenn Bandaríkjanna, Japans og Suður-Kóreu um málið og
Kínverjar sendu hátt settan embættismann til Norður-Kóreu.
FUNDAÐ UM NORÐUR-KÓREU Utanríkisráðherrar Suður-Kóreu, Bandaríkjanna og Japans funduðu í Seúl í gær og ræddu meðal
annars um kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna. Frá vinstri: Taro Aso, utanríkisráðherra Japan, Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og Ban Ki Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FINNLAND, AP Þúsundir finnskra
farþega komust ekki leiðar sinnar
í gær þegar fimmtán hundruð
flugþjónar finnska flugfélagsins
Finnair lögðu niður störf. Nærri
allt millilandaflug fyrirtækisins
lá því niðri í gær þótt nokkrar
vélar flygju bæði til Evrópu og
innanlands.
Verkfallið hófst daginn fyrir
leiðtogafund Evrópusambandsins,
sem haldinn er í Suður-Finnlandi í
dag.
Flugþjónarnir eru ósáttir við
nýjar reglur fyrirtækisins
varðandi ráðningar, en fyrirtækið
ætlar að ráða starfsfólk í gegnum
dótturfyrirtæki sitt í Eistlandi á
lægri launum en finnskt starfs-
fólk. Samningaviðræður munu
halda áfram í dag. - smk
Finnair flugfélagið:
1.500 starfs-
menn í verkfalli
LANGAR BIÐRAÐIR Þúsundir farþega
Finnair sátu fastir í Helsinki í gær.
BANDARÍKIN Einn af hverjum átta
Bandaríkjamönnum á við netfíkn
að stríða, að því er kemur fram í
niðurstöðum rannsóknar Stan-
ford-háskólans í Kaliforníu.
Hegðun netfíkla einkennist helst
af áráttukenndri netnotkun og
sífelldri athugun á tölvupósti,
vefsíðum og spjallsvæðum. Þetta
segir á vef fréttastofu BBC.
Dr. Elias Aboujaoude, einn
þeirra sem stóðu að rannsókninni,
segir vandamálin sem internetið
skapar oft gleymast. - sþs
Skuggahliðar internetsins:
Einn áttundi
haldinn netfíkn
DÓMSMÁL Ungur maður var í gær
sýknaður af ákæru um að hafa
brotið gegn valdstjórninni í mars
síðastliðnum með því að hafa tekið
lögreglumann hálstaki. Lögreglu-
maðurinn sakaði manninn um að
hafa veist að sér með ofangreind-
um hætti til að losa félaga sinn
sem lögreglan hafi haft afskipti
af. Maðurinn neitaði sök og
sagðist einungis hafa snert öxl lög-
reglumannsins sem hafi á móti
úðað á hann með varnarúða.
Fjölmörg vitni komu fyrir dóminn
og staðfestu frásögn hans. - þsj
Héraðsdómur Reykjaness:
Sýknaður af
árás á lögreglu
LÖGREGLUMÁL Sérsveit Ríkislög-
reglustjórans á Akureyri handtók
í fyrrakvöld mann á Siglufirði
eftir tilkynningu um að töluvert
ölvaður maður væri vopnaður
skotvopni í heimahúsi. Hann
hafði hleypt af byssu í þrígang
inni í bílskúr. Hafði hann skotið í
ruslapoka og hlaut því enginn
skaða af.
Maðurinn kom sjálfviljugur út
úr húsinu og var handtekinn.
Hann er á fertugsaldri og hefur
ekki komið við sögu lögreglu áður
vegna sambærilegra mála.
Yfirheyslur stóðu yfir fram eftir
degi í gær en til stóð að sleppa
manninum að þeim loknum. - þsj
Maður handtekinn á Siglufirði:
Ölvaður með
skotvopn
LÖGREGLUMÁL Próflaus ökumaður
á stolnum bíl keyrði út af í
Borgarfirði í gær. Bílveltan varð
við Dalsmynni í Norðurárdal
síðdegis í gærdag.
Grunur leikur á að bílstjórinn,
sem var 16 ára stúlka, hafi verið
undir áhrifum fíkniefna. Einn
farþegi var í bílnum og reyndist
hann með útrunnið ökuskírteini.
Við leit í bílnum fundust hnífar
og kylfur og var ökumaðurinn
handtekinn.
Samkvæmt upplýsingum
vakthafandi lögreglumanns var
bíllinn töluvert skemmdur en
engin slys urðu á fólki. - hs
Bílvelta í Borgarfirði:
Próflaus á
stolnum bíl
Nú bíða 150 börn eftir að komast að
á frístundaheimilum í Reykjavík. Enn
vantar 34 starfsmenn á frístunda-
heimilin en 2.274 börn eru þegar
komin inn.
FRÍSTUNDAHEIMILI
150 börn bíða
FRÉTTABLAÐIÐ
Vegna bilunar í prentsmiðju er
Fréttablaðið minna en venjulega í
dag. Einstaka efnisþættir duttu því út
úr blaðinu.