Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 8
8 20. október 2006 FÖSTUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
STJÓRNMÁL „Ég tel mig eiga bærilega möguleika,“
segir Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sem
sækist eftir 1. sæti á framboðslista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningar til
Alþingis næsta vor.
Gera má ráð fyrir því að Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra sem var efstur á lista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi í kosningunum 2003
sækist áfram eftir því sæti. Kristinn sem þá var í
öðru sæti vill þannig fá forystusæti ráðherrans.
„Það verður auðvitað bara að setja sér markmið,
stefna að þeim og sjá svo til hvernig til tekst. Það er
fátt annað að gera,“ segir Kristinn og bendir um leið
á að í prófkjörinu fyrir síðustu alþingiskosningar
hafi verið notað annað fyrirkomulag en nú verði
beitt:
„Þær reglur voru óvenjulegar – og ekki víða við
hafðar – að sá fékk ekki 1. sætið sem fékk flest
atkvæði nema hann fengi hreinan meirihluta. Þegar
kosið var fékk ég flest atkvæði í 1. sæti en ekki
hreinan meirihluta svo það var kosið aftur og þá fékk
Magnús 1. sætið. Núna er ekki krafa um hreinan
meirihluta og sá vinnur sem fær flest atkvæði,“
útskýrir Kristinn.
Prófkjör Framsóknarflokksins í Norðvestur-
kjördæmi fer fram 3. til 17. nóvember. - gar
Kristinn H. Gunnarsson býður sig fram í fyrsta sætið í Norðvesturkjördæmi:
Tekur slaginn við ráðherra
KRISTINN OG MAGNÚS Kristinn átti í deilum við þingflokk
Framsóknar fyrir tveimur árum. Öldurnar voru lægðar á kjör-
dæmaþingi 7. nóvember árið 2004 og við það tilefni tókust
Kristinn og Magnús í hendur.
STJÓRNMÁL Fyrirvari sem Jónína
Bjartmarz umhverfisráðherra
setti við hvalveiðar kom stjórnar-
andstæðingum í opna skjöldu og
var ræddur á Alþingi í gær.
Jónína sagðist í Fréttablaðinu í
gær óttast um trúverðugleika og
ímynd í umhverfislegu tilliti. Trú-
verðugleikinn gæti veikst.
Sigurjón Þórðarson Frjálslynda
flokknum, sem styður hvalveið-
arnar, sagði orð Jónínu hafa veikt
stöðu Íslands í málinu. Hann gagn-
rýndi einnig afstöðu hinna stjórn-
arandstöðuflokkanna og kvað
stöðuna sterkari ef þeir væru sam-
stíga fylgjendum málins.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, sagði margt óupplýst
varðandi hvalveiðarnar og spurði
hvort ekki væri samstaða um þær
í ríkisstjórn. Mörður Árnason
Samfylkingunni velti afstöðu
Jónínu einnig fyrir sér.
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra sagði málið ein-
falt, ákvörðun um hvalveiðar hefði
verið kynnt í ríkisstjórn og stjórnin
stæði að baki henni.
Þá sagði hann eðlilegar skýr-
ingar á að Hvalur hf. hefði ekki
fengið leyfi til vinnslu kjöts í
hvalstöðinni í Hvalfirði; ýmis
praktísk mál gætu komið upp
þegar veiðar væru hafnar á nýjan
leik eftir tuttugu ára hlé. „Hvalur
er að ljúka við að uppfylla skilyrði
sem sett eru og það er ekkert
óeðlilegt við það.“ - bþs
Afstaða umhverfisráðherra til hvalveiða og undirbúningur málsins rædd á Alþingi:
Veikir stöðu Íslands í málinu
JÓNÍNA BJARTMARZ UMHVERFISRÁÐ-
HERRA Yfirlýsingar hennar um hval-
veiðar eru sagðar veikja stöðu Íslands á
alþjóðavettvangi.
DÓMSMÁL Maður sem reyndi að
smygla tæplega sjö hundruð
grömmum af kókaíni til
landsins í tölvu bíður nú dóms í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Maðurinn sem er um
fimmtugt reyndi að smygla
fíkniefninu til landsins í mars.
Hann hafði komið því fyrir í
járnkassa sem hann faldi í
tölvu. Maðurinn var að koma
frá Orlando þegar tollverðir
fundu kókaínið í tölvunni.
Aðalmeðferð í málinu lauk í
Héraðsdómi í gær og verður
dómur kveðinn upp innan
skamms.
- jss
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Kókaíntölvu-
maður í dóm
HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000
www.hekla.is, hekla@hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416
saman
við eigum vel
Staðalbúnaður MASC stöðugleikastýring
ABS hemlalæsivörn • EBD hemlajöfnunarkerfi
MATC spyrnustýring • Aksturstölva • Hiti í framsætum
Fjarstýrðar samlæsingar • Rafdrifnar rúðuvindur
Mitsubishi Colt er frábær bíll sem hefur sópað að sér verðlaunum, enda
kostirnir augljósir; glæsileg hönnun, mikið innra rými með mikla möguleika,
nýjar öflugar vélar, 6 hraða „Allshift“ sjálfskipting og margt fleira.
Komdu og prófaðu hann
Verð: 1.590.000 kr.
1 Hvernig fór leikur Barcelona
og Chelsea í Meistaradeildinni?
2 Hvað stendur á hlið varð-
skipsins Týr?
3 Hver er elsti Íslendingur allra
tíma?
SVÖRIN ERU Á BLAÐSÍÐU 54