Fréttablaðið - 20.10.2006, Síða 16
16 20. október 2006 FÖSTUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Kvöld- og
helgarþjónusta sú sem Heil-
brigðisstofnun Suðurlands veitir
nú í heimahjúkrun verður aukin
verulega eystra.
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigð-
isráðherra, hefur ákveðið að
veita Heilbrigðisstofnun
Suðurlands sex milljóna króna
viðbótarfé til að efla kvöld- og
helgarþjónustu í heimahjúkrun.
Þessi nýja þjónusta verður veitt
á þjónustusvæði heilsugæslu-
stöðvanna á Selfossi, Þorláks-
höfn og í Hveragerði. - jss
Heilbrigðisstofnunin:
Heimahjúkrun
aukin eystra
VINNUMARKAÐUR Töluverður fjöldi
fólks sem hefur starfað hjá Alcan
á Íslandi hefur sett sig í samband
við Fréttablaðið á undanförnum
dögum. Einum þeirra, Markúsi
Kristjánssyni, var sagt upp í fyrra-
vor eftir 32 ára starf.
Markús segist hafa verið að
vinna á nýársdag í fyrra og sá sem
átti að leysa hann af hafi ekki
mætt. Hann hafi þá hringt í Hall-
dór Halldórsson, öryggisfulltrúa
fyrirtækisins, sem hafi sagt
honum að vera áfram og að þeir
hafi deilt vegna þessa. Skömmu
síðar var Markúsi send áminning
vegna atviksins. Hann kærði Hall-
dór öryggisfulltrúa í kjölfarið
fyrir einelti á vinnustað. Þáver-
andi starfsmannastjóri tók málið
fyrir á fundi og var þar ákveðið að
mennirnir tveir myndu biðja
hvorn annan afsökunar og þar
með myndi málinu ljúka. Markúsi
var sagt upp störfum skömmu
síðar.
„Ég hafði aldrei áður verið
áminntur. Mér hafði verið treyst
fyrir masterslyklum að öllu svæð-
inu í 32 ár. Samt var mér sagt upp
fyrirvaralaust og án þess að fá
uppgefnar ástæður. Ég er ekki á
móti fyrirtækinu. En ég er á móti
því hvernig stjórnendur koma
fram með mannvonsku.“ Hann
segir neitun yfirmanna Alcan um
að tjá sig efnislega um málið ekki
koma sér á óvart. „Fyrirtækið
reynir alltaf að svæfa málin niður
með þessum hætti.“
Bergþór Bergþórsson hafði
starfað í Straumsvík um áratuga
skeið þegar honum var sagt upp í
júní 2005.
„Ég átti 30 ára starfsafmæli á
þessu tímabili. Ég var síðan kall-
aður inn á teppið og boðinn starfs-
lokasamningur. Engar aðrar skýr-
ingar voru gefnar nema þær að ég
samrýmdist ekki starfsmanna-
stefnu fyrirtækisins.“
Bergþór segir að uppsögnin
hafi komið eins og þruma úr heið-
skíru lofti.
„Ég tel mig hafa mætt mjög vel
alla tíð. Ég er að vísu með sjúkling
á heimilinu sem ég hef þurft að
sinna svolítið. Ég veit ekki hvað
telst eðlilegt í þessu en mér finnst
nú að það ætti að ræða við starfs-
menn áður en þeim er sagt upp.“
Til merkis um vinnubrögðin sem
stunduð séu bendir Bergþór á að
sér hafi verið afhent gullúr frá
fyrirtækinu á aðfangadag í fyrra,
um hálfu ári eftir að honum var
sagt upp. „Á því stendur þökk
fyrir vel unnin störf í 30 ár.“
Halldór Halldórsson, öryggis-
fulltrúi Alcan, vísaði öllum ásök-
unum á sínar hendur alfarið á bug
en vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um málið. thordur@frettabladid.is
Kærði og
var sagt upp
Fyrrum hliðvörður Alcan segir að sér hafi verið sagt
upp vegna deilna við öryggisfulltrúa. Öðrum var
fært gullúr að gjöf hálfu ári eftir að honum var sagt
upp með þökkum fyrir vel unnin störf í 30 ár.
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK Uppsagnir í álverinu hafa vakið deilur milli yfirstjórnar, hluta
starfsmanna og verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði.
VELFERÐARMÁL Foreldrar fatlaðra
barna sem leita til Sjónarhóls
kvarta yfir að fjármagn, mann-
skap og úrræði vanti til að sinna
börnum þeirra sem skyldi. Reikna
má með að á milli 1500-1800 for-
eldar leiti til Sjónarhóls árlega, en
þar eiga foreldrar barna sem eiga
við langvarandi veikindi og fötlun
að stríða rétt á ráðgjafaviðtölum.
Hrefna Haraldsdóttir, foreldra-
ráðgjafi hjá Sjónarhóli, segir að
flest mál sem berist Sjónarhóli séu
skólamál og mál sem varði bið í
kerfinu og ónóga stoðþjónustu við
fötluð börn. „Sem dæmi má nefna
að það er skortur á skammtíma-
vistunum fyrir börn með þroska-
hömlun og á stuðningsfjölskyld-
um. Þeim sem sækja um búsetu
fyrir fötluð börn sín finnst erfitt
að fá ekki að vita hvenær börnin
komist að og oft er um margra ára
bið að ræða.“
Hrefna segir foreldra sem leita
til Sjónarhóls oft reiða og við það
að gefast upp. „Foreldrar barna
með ofvirkniröskun kvarta gjarn-
an yfir að börn þeirra fái ekki
nægan stuðning í skólanum og er
þá skuldinni oft skellt á skort á
fjármagni eða mannskap. Það er
mjög erfitt fyrir foreldra að gera
plön fram í tímann ef þeir vita ekki
hvenær von er á búsetuúrræðum
fyrir börn þeirra. Þá kvarta for-
eldrar yfir óljósum svörum úr
kerfinu og segja að óvissa ríki um
málefni þeirra.“ - hs
Foreldrar fatlaðra barna ósáttir við að börnum þeirra er ekki sinnt sem skyldi:
Löng bið og ónóg úrræði
HREFNA HARALDSDÓTTIR Flest mál sem
berast Sjónarhóli eru mál sem varða
bið í kerfinu og ónóga stoðþjónustu við
fötluð börn.
MARKÚS KRISTJ-
ÁNSSON Starfaði
sem hliðvörður
hjá Alcan í
32 ár áður en
honum var sagt
upp störfum í
fyrravor.
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
R
K
3
40
42
08
/2
00
6 Verið velkomin á Nesjavelli
Orkuveita Reykjavíkur býður gestum og gangandi
að heimsækja Nesjavelli, kynna sér orkuverið
ásamt því hvernig staðið hefur verið að umhverfismálum
og aðgengi fyrir ferðamenn og gesti á Nesjavöllum.
Opið á Nesjavöllum í september og október:
Mánudaga til laugardaga er opið frá kl. 9:00–17:00.
LOKAÐ á sunnudögum.
Hvað veistu
um jarðvarmavirkjanir?
B Ó K A F O R L A G
B R Æ Ð R A B O R G A R S T Í G 9 , S Í M I 4 1 4 1 4 5 0
w w w . v e r o l d . i s • v e r o l d @ v e r o l d . i s
Einfaldara getur
það ekki verið!
Byrjaðu strax í dag
og kjörþyngd þín
er handan við hornið.
Megrunarfæðið heyrir sögunni til og þú léttist til frambúðar!
Me
tsö
luli
sti
Pen
nan
s /
Eym
un
dss
on
ar s
æt
i3.
Handbækur/fræ
ðib
æk
ur
/æ
vi
sö
gu
r
11
.1
0.
06
-17
.10.06
- amazon.co.uk
ÞÚ LÉTTIST
UM KÍLÓ Á VIKU!
Hættu í megrun
og lifðu lífinu til fulls!
Hefurðu fengið nóg af hefðbundnum megrunarkúrum? Koma aukakílóin alltaf
aftur? Í bókinni Þú léttist án þess að fara í megrun! er kynnt ný og byltingarkennd
leið til að léttast til frambúðar – án þess að nokkuð sé minnst á mat eða líkamsrækt!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
V
ER
3
46
67
1
0/
20
06