Fréttablaðið - 20.10.2006, Page 20

Fréttablaðið - 20.10.2006, Page 20
 20. október 2006 FÖSTUDAGUR20 nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Menn komast strax í jólastemn- ingu þegar byrjað er að vinna með hangikjötið,“ segir Sigmundur Hreiðarsson, vinnslustjóri Norð- lenska á Húsavík. Sláturtíðinni þar er lokið og nú vinnur Sigmundur og starfsfólk hans hörðum höndum að því að gera jólarétt Íslendinga, hangikjötið eins ljúffengt og unnt er. „Hér er sterk hefð fyrir hangi- kjötsframleiðslu og mikill metnað- ur lagður í að gera það eins og gott og okkur er lagið,“ segir Sigmundur sem segir af og frá að taka upp á einhverjum nýjungum við þessa vinnslu. „Það á ekki að breyta því sem er gott, og það er hangikjötið okkar svo sannarlega.“ Sigmundur hefur starfað við kjötvinnslu „lengur en leigubílstjór- inn í Spaugstofunni“, eins og hann orðar það, eða í þrjátíu ár. Starfið segir hann þó alltaf jafn skemmti- legt og í litlum bæ eins og Húsavík séu allir með á nótunum um hvað sé að gerast í framleiðslunni. „Já, ilm- inn af kræsingunum sem verið er að útbúa leggur frá okkur þegar við komum úr vinnu. Starfsfólkið í versluninni og bankanum hefur það líka á orði þegar við komum ang- andi af hangikjöti að jólin séu greinilega á næsta leiti.“ - kdk Sláturtíð lokið og jólin á næsta leiti: Jólailminn leggur yfir alla Húsavík HÚSAVÍK Jólin á næsta leiti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég myndi nú segja að það sé bara allt slæmt að frétta, að minnsta kosti fyrir okkur í ferðaþjón- ustunni,“ segir Jónas Þorsteinsson hjá Goecco, sem er alhliða markaðshús sem sérhæfir sig í lausnum fyrir innlenda og erlenda ferðaþjónustu. „Hvalveiðarnar munu hafa miklu verri áhrif en íslensk ferðaþjónusta gerir sér grein fyrir. Kúnnarnir eru að senda okkur e-mail og vara við því að þetta geti orðið mjög alvarlegt mál. Maður fær e-mail frá ferðaskrifstofum, helst þýskum og bandarískum, sem spyrja bara hvern andsk... við séum eiginlega að pæla. Mér þykir ljóst að ákvarðan- irnar um stóriðju og nú að leyfa hvalveiðar ýta stórlega undir þá kenningu að fólk sé fífl.“ Jónas segir að sumarið hafi annars verið gott og hann vonar að ekki verði miklar breytingar á ferðamannastraumnum. „Við fengum einmitt gest númer átta þúsund í drauga- ferðina okkar í fyrradag. Þetta er fyrsta árið sem við bjóðum upp á þessa ferð og það hefur komið mér á óvart hversu margir Íslendingar hafa komið með. Við ætlum einmitt að bjóða upp á þessar ferðir á íslensku í vetur. Upphaflega leigðum við fjóra miðla og sendum þá um miðbæinn til að leita að draugum. Þeir fundu allir sömu staðina svo eitthvað hlýt- ur að vera að marka þetta. Nú er verið að skipuleggja næsta ár og það verður boðið upp á ýmsar spennandi nýjungar í ferðaþjónustunni. Ég gef ekki meira upp, nema stikkorðin álfar og konur.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JÓNAS ÞORSTEINSSON MARKAÐSRÁÐGJAFI Ýtir undir kenninguna að fólk sé fíflElliheimili á hvalveiðum „Það leikur vafi á hvort kalla eigi áhöfina „landsliðið í hvalveiðum“ eða „elliheimili á hvalveiðum“.“ SIGURÐUR NJÁLSSON SKIPSTJÓRI HVALS 9 ÞEGAR LAGT VAR Á MIÐIN. Fréttablaðið 19. október. Hógvær Svavar „Ég hafði engan grun um þetta og datt ekki í hug að ég væri svo merkilegur að verið væri að fylgjast með mér á einhvern hátt.“ SVAVAR GESTSSON SENDIHERRA SEM VAR GRUNLAUS UM AÐ VER- IÐ VÆRI AÐ RANNSAKA TENGSL HANS VIÐ STASI. Blaðið 19. október. Yuka Ogura er komin til Íslands í sjötta skiptið á þremur árum. Hún er einlægur aðdáandi lands, þjóðar og menningar, sér- staklega tónlistarinnar, og sækir Airwaves-hátíðina nú í þriðja sinn. Yuka segist vera sendiherra íslenskr- ar menningar í Japan og með henni í för nú eru tíu japanskir aðdáendur sem standa í ströngu á næstu dögum við að gleypa í sig af gnægtaborði Airwaves. „Ég hitti Ásmund Jónsson í Smekk- leysu í morgun,“ segir Yuka. „Krakkarnir sem eru með mér vissu flestir hver hann er og komu með mér til að láta taka af sér myndir með honum.“ Hópurinn kom hingað á miðvikudaginn eftir tólf tíma beint flug frá Tókýó. „Ég fékk brennandi áhuga á landinu fyrir nokkrum árum. Það er margt líkt með Íslandi og Japan. Bæði löndin eru eyjur, báðar þjóðirnar stunda hvalveiðar og bæði löndin eru á sprungusvæðum með tilheyr- andi eldvirkni og heitum hverum. Þið hafið svo víkingana en við sam- úræjana.“ Þegar Íslandsáhuginn gagntók Yuku segist hún hafa leitað upplýs- inga um landið á japönsku en lítið fundið. Því hafi hún sjálf byrjað að skrifa bók um Ísland sem hún von- ast nú til að fá útgefna enda sé sífellt meiri áhugi á Íslandi í Japan. „Það kom reyndar út fjögur hundr- uð síðna bók um Ísland og Græn- land fyrir nokkru, en það eru bara tíu blaðsíður um Reykjavík í þeirri bók. Fólk heldur því að það sé bara endalaust landslag á Íslandi, en ég hef miklu meiri áhuga á Reykjavík og menningunni. Það er svo gott að vera hérna, mikil kyrrð og spenn- andi fólk. Það sem er líka mjög yndislegt hérna er að allir halda að ég sé miklu yngri en ég er. Fólk heldur að ég sé þrjátíu og eitthvað, en ég er reyndar 46 ára.“ Svo mikill er tónlistaráhuginn að Yuka rekur netsíðuna Alljos. com, sem er bæði kynningarvefur og netbúð fyrir íslenska tónlist. Yuka segist flytja inn diska frá útgefendum hér og hún hefur stað- ið fyrir hlustunarpartíum. „Í stærsta partíið mættu um tvö hundruð manns en það voru nú eig- inlega alltof margir. Ég hef tak- markað þetta við fimmtíu manns síðan. Björk, Sigur Rós og Múm eru langvinsælustu listamennirnir í Japan, en flestir sem byrja með því að falla fyrir þeim komast á bragðið og vilja heyra í fleirum. Ég vil bjóða upp á alla flóruna og er líka með íslenskan djass og klass- ík.“ Yuka kom hingað fyrst árið 2003 og kom fjórum sinnum það ár því hún vildi upplifa allar árstíðirnar. Þrátt fyrir að hafa verið hér í sam- tals tvo mánuði í sex heimsóknum segist Yuka eiginlega ekkert hafa farið út á land. „Fyrst þegar ég kom fór ég Gullna hringinn og svo bauð fyrrverandi sendiherra Íslands í Japan, Ingimundur Sig- fússon, mér í sumarbústaðinn sinn rétt hjá Blönduósi. Margir Japanir sem ég tala við halda að ég sé eitt- hvað klikk að hafa svona lítið farið út úr Reykjavík. Ég stefni reyndar að því að fara um allt land, en það verður ekki fyrr en maðurinn minn og fjórtán ára sonur komast með mér. Ég er að spara mér landið fyrir þá.“ Yuka er gríðarlega spennt fyrir mörgu á Airwaves en segir svo mikið í gangi að erfitt sé að velja úr. Hún er í og með að safna upp- lýsingum fyrir bókina með því að taka viðtöl við listamenn og bran- safólk. „Ég elska tónlistina hans Megasar þótt ég skilji reyndar ekkert í textunum. Bubba fíla ég ekki eins þótt hann sé stórstjarna hér. Hann er Bruce Springsteen á meðan Megas er Bob Dylan. Ég hef farið heim til Megasar og tók þar viðtal við hann. Hann sagði mjög skemmtilegar sögur. Drög að sjálfsmorði er uppáhalds Megasarplatan mín. Björk hef ég bara séð einu sinni. Það var í tíu ára afmælispartíi Sigur Rósar á Apótekinu. Ég sagði hæ en hún hefur líklega haldið að ég væri bara einhver brjálæðingur.“ gunnarh@frettabladid.is Elskar kyrrðina í Reykjavík YUKA OGURA Í REYKJA- VÍK Sendiherra íslenskrar tónlistar í Japan er að skrifa bók um landið og menninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Maður er drulluleiður á þessum yfirlætislegu afskiptum alltaf,“ segir Stefán Máni rithöfundur um mótmælin sem nú dynja á okkur vegna nýhafinna hvalveiða, m.a. frá Bretum og Banda- ríkjamönnum. „Þessi mótmæli eru sjálfvirk eins og Velvakandi og þreytandi pólitík sem snúast held ég ekkert um hvali. Við eigum ekki að fara á taugum þótt einhverjir túristar stappi niður fæti. Það hlýtur að eiga að snúast um hvort veiðarnar borgi sig eða ekki, ekki um nokkra Þjóð- verja með tárvot augu. Sjálfur hef ég enga afgerandi skoðun á þessum veiðum. Mér finnst skipin ógeðslega flott og illileg að sjá og öll stemn- ingin í kringum veiðarnar er rómant- ísk á nostalgískan hátt. Við ættum að gera meira út á það, breyta þessum skipum bara í Disneyheim með hoppandi leikurum með lepp fyrir auganu og tréfót um borð. Svo mætti skjóta gúmmíhvali eða það mætti nota skipin til hvalaskoðunar og skjóta mat til hvalanna. Þannig væri hægt að taka Gísla Martein á þetta, og allir yrðu ánægðir.“ SJÓNARHÓLL MÓTMÆLI VIÐ HVALVEIÐUM Sjálfvirk mótmæli STEFÁN MÁNI Rithöfundur ■ Við veiðum hvali, þeir sprengja kjarnorkusprengjur. Hvort tveggja æsir þjóðir heims upp en bæði þeir og við segjumst hafa fullan rétt á að gera það sem okkur sýnist. Norður-Kóreumenn eru rúmlega 23 milljónir talsins, í 48. sæti yfir fjölmennustu ríki heims. Þeir eiga samt fjórða stærsta her í heimi. Við erum í 178. sæti yfir fjölmennustu ríki heims (Pitcairn eyja er neðst í 230. sæti með 67 manns) og eigum engan her. Þeir tilbiðja eilífan leiðtoga sinn, Kim Il-sung, en við tilbiðjum engan. SAMANBURÐUR: ÍSLAND / NORÐUR KÓREA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.