Fréttablaðið - 20.10.2006, Side 35
SIRKUS 20.10.06
Notaði trompetið í löggu og bófa
Spila á meðan ég nenni
Veit ekki hvað ég er í mörgum hljómsveitum
Kebabfær á flest hljóðfæri
Ljósmyndari: BJÖRG VIGFÚSDÓTTIR www.studiobjorg.com
Förðun: Anna Kristín Óskarsdóttir - Hár: Rán Reynisdóttir- Föt: Rokk og Rósir
7
Nafn: Guðmundur Steingrímsson
Hljómsveit: SKE
Hvenær spila: Voru í Listasafni Reykjavíkur á
miðvikudaginn klukkan 19:00
Hve oft á Airwaves: Þetta er í fjórða skiptið
Hvað ætlarðu að sjá: Til í að sjá allt saman,
ætla bara að vafra um og detta inn á
tónleika.
Framundan: Ætlum í fleiri samningaferðir út
á land og semja nýtt efni og halda fleiri
tónleika. Síðan gerum við ráð fyrir að taka
upp plötu í byrjun næsta árs.
HVER ER Gummi Steingríms í SKE
Hvaðan ertu? „Ég er úr Garðabænum“
Hvað starfarðu? „Ég er tónlistarmaður,
blaðamaður, textagerðarmaður og það nýjasta
er frambjóðandi.“
Hvaða hljóðfæri kanntu að spila á?
„Hljómborð, harmonikku og síðan tel ég mér
trú um að ég sé góður á bassa og kann
nokkur grip á gítar. „
Hvenær byrjaðirru að spila? „Mér langaði
að læra á trompet þegar ég var fimm ára en
var ekki kominn með tennur. Þá var ég settur á
trommur sem var hundleiðinlegt á þeim tíma.
Svo lærði ég á trompet sem ég notaði
aðallega í löggu og bófa. 12 ára lærði ég
svo á píanó og tók 6 stig í klassískum
píanóleik.“
Hvað gerirðu annað en músík? „Ég
skrifa bækur og svo er það bara
pólitíkin. Ætli ég verði ekki
pólitískur tónlistarmaður
eins og Bono, þó hann sé
ekki mín fyrirmynd.
SKE í einni setningu: „Skrýtin
og skemmtilega tilrauna-
kennd popp/rokk hljómsveit
með léttum broddi.“
Nafn: Axel Hallkell Jóhannesson
Hljómsveit: Langi Seli og Skuggarnir
Hvenær spila: Voru í Þjóðleikhúskjallaranum á
miðvikudaginn klukkan 00:15
Hve oft á Airwaves: Aldrei
Hvað ætlarðu að sjá: Bara sem mest. Hef
ekkert flokkað þetta.
Framundan: Við förum í að ganga frá upptök-
um á væntanlegum diski sem kemur út í byrjun
febrúar. Svo bara spila á meðan við nennum.
HVER ER Axel í Langa Sela og Skuggunum
Hvaðan ertu? „Reykjavík“
Hvað starfarðu? „Ég er leikmyndahönnuð-
ur.“
Hvaða hljóðfæri kanntu að spila á?
„Eigum við ekki að segja að ég spili smá á
gítar.“
Hvenær byrjaðirru að spila? „16 ára
gamall“
Verið í mörgum hljómsveitum? „Ekki
mörgum. Bara þremur held ég.“
Hvað gerirðu annað en
músík? „Ég er bara svona
normal gæji sem hef gaman af
því að horfa á fótbolta. Svo
fylgist ég mikið með myndlist
og hef mikinn áhuga bara á
lífinu.“
Langi Seli og Skuggarnir
í einni setningu:
„Karlmannlegt rokk með
heitar tilfinningar.“
HVER ER Árni plús einn
Hvaðan ertu? „Er úr Grafarvoginum í
Reykjavík.“
Hvað starfarðu? „Ég er aðallega að búa til
tónlist fyrir sjónvarp og svona. Og svo kenni
ég örlítið upp í Austurbæjarskóla.“
Hvaða hljóðfæri kanntu að spila á? „Engin.
Ég spila samt á fullt af hljóðfærum.“
Hvenær byrjaðirru að spila? „Ég byrjaði 12
ára.“
Verið í mörgum hljómsveitum? „Ég er
allavega í mörgum hljómsveitum og er ekki
einu sinni klár á því hvað þær eru margar. En
í gegnum tíðina hef ég ekki verið í mörgum.“
Hvað gerirðu annað en músík?
„Nei, ég eyði mestum ef ekki
bara nánast öllum mínum
tíma í tónlist sem ég hef
mjög gaman af.“
FM Belfast í einni setningu:
„Bara ég og Lóa kærastan
mín með stórskemmti-
lega tónleika á
Pravda, tékkiði
svo á myspace-
inu okkar
myspace.com/
fmbelfast.“
Nafn: Árni Rúnar Hlöðversson
Hljómsveit: FM Belfast
Hvenær spila: Laugardagur, Pravda, klukkan
23:20
Hve oft á Airwaves: Þrisvar áður
Hvað ætlarðu að sjá: Ég er svo stressaður
fyrir laugardeginum að ég hef lítið pælt í
því. Maður reynir að sjá Retro Stefson
og svo Sprengjuhöllina.
Framundan: Hvíld og rólegheit og svo
bara taka upp meiri tónlist og klára
plötu.
Nafn: Jón Atli Helgason
Hljómsveit: Hairdoctor
Hvenær spila: Laugardagur, Gaukur á
Stöng, klukkan 01:00
Hve oft á Airwaves: Fjórða skiptið
Hvað ætlarðu að sjá: Spectrum, Johnny
Sexual, Datarock, Whitest Boy Alive,
Future Future og svo bara eitthvað
sniðugt.
Framundan: Halda áfram að búa til músík.
Ég hugsa ekki það langt að ég verði
heimsfrægur eftir Airwaves. Ég ætla bara
að láta risastórt plötuútgáfufyrirtæki segja
mér hvað ég á að gera.
HVER ER Jón Atli Hairdoctor
Hvaðan ertu? „Ég er frá Hvols-
velli“
Hvað starfarðu? „Klippari, DJ
og tónlistarmaður“
Hvaða hljóðfæri kanntu að
spila á? „Ég spila á bassa og
er kebabfær í flest annað.“
Hvenær byrjaðirru að spila?
„Svona ellefu ára.“
Verið í mörgum hljómsveit-
um? „Já, örugglega svona sjö
hljómsveitum“
Hvað gerirðu annað en
músík? „Fer í körfubolta þegar
ég get og kyssi kærustuna
mína.“
Hairdoctor í einni setningu:
„Partý“