Fréttablaðið - 20.10.2006, Qupperneq 61
FÖSTUDAGUR 20. október 2006
Listdansskóli Íslands og Íslenski
dansflokkurinn standa saman að
námskeiði í nútímadansi fyrir
stráka. Markmið námskeiðsins er
að efla áhuga stráka á dansi og
gefa þeim möguleika á að spreyta
sig. Dansflokkurinn hélt stutt
kynningarnámskeið á dansi fyrir
stráka í síðustu bekkjum grunn-
skóla á síðasta skólaári og var
mikill vilji til að skapa framhald á
því fyrir áhugasama.
Hins vegar skortir tækifæri og
fyrirmyndir fyrir unga menn með
dansáhuga og er námskeiðið því
liður í að hvetja þá til að kynnast
nútímadansi.
Á námskeiðinu eru kennd
grunnatriði í nútímadansi en þátt-
takendur munu síðan semja sitt
eigið dansverk og flytja á menn-
ingarhátíðinni Unglist.
Áhugasamir eru hvattir til að
mæta á opna æfingu hjá strákun-
um á morgun í Borgarleikhúsinu
kl. 15 þar sem einnig verður hægt
að ræða við kennara og skipu-
leggjendur.
Strákarnir dansa
ÁHUGI STRÁKA Á DANSI FER VAXANDI Dansarinn og danshöfundurinn Peter Jackson
leiðbeindi áhugasömum piltum í danslistinni í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Næstsíðasta glæpasagan um Rebus
lögreglufulltrúa, The Naming of
the Dead, eftir skoska rithöfund-
inn Ian Rankin kom út í Bretlandi í
gær.
Rankin og
Rebus hafa notið
mikilla vinsælda
á Íslandi og
aðdáendur hans
hér þurftu því
ekki að bíða
lengi eftir bók-
inni þar sem hún
kemur í íslensk-
ar bókaverslanir
í dag. Rankin sótti Ísland heim í
sumar og staðfesti þá í viðtölum að
The Naming of the Dead yrði næst-
síðasta Rebus-bókin þar sem per-
sónan er að nálgast sextugt og
rannsóknarlögreglumenn í Skot-
landi láta af störfum þegar þeir
verða sextíu ára.
The Naming of the Dead gerist í
Edinborg árið 2005 og atburðarásin
fléttast inn í leiðtogafund átta
stærstu iðnríkja heims sem var
haldinn í borginni. Lögreglan er
með mikinn viðbúnað vegna fund-
arins og reynir meðal annars að
hafa hemil á mótmælendum. Rebus
er hins vegar haldið úti í kuldanum
þar til meint sjálfsmorð þingmanns
gefur vísbendingu um að raðmorð-
ingi gangi laus í borginni og þá fær
Rebus að njóta sín almennilega.
- þþ
Endasprett-
ur Rankins
IAN RANKIN
GÍSLI SÚRSSON Í MÖGULEIKHÚSINU
Lau. 21 . okt k l . 20 . - Sun. 22 . okt k l . 20 - Fim. 26 . okt k l . 20 UPPSELT
Aðeins þessar þr jár sýningar!
GÍSLI SÚRSSON Í HVERAGERÐI
Fös . 20 . okt . k l . 20 :30
GÍSLI SÚRSSON Á AKRANESI
Mið. 25 . okt . k l . 20 Miðapantanir í s íma: 5622669
& komedia@komedia . i s
Gísli Súrsson
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Gunnar Gunnarsson
Dagskrá í tilefni 100 ára rithöfundarafmælis
Leiklestur föstudaginn 20. október kl. 20.30
ATH: í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8
Nótt og draumur - Leiklestur og ljóðasöngur úr
Fjallkirkjunni í leikgerð Jóns Hjartarsonar.
Aðgangur ókeypis!
Málþing laugardaginn 21. október kl. 14.00
Jón Yngvi Jóhannsson: „Orkt af áhrifum“
Gunnar Hersveinn: „Vantraust – sælir eru einfaldir”
Halldór Guðmundsson: „Um Svartfugl og ástina“
Pétur Gunnarsson rithöfundur stýrir pallborðsumræðum.
Aðgangur ókeypis.
Ljóðatónleikar laugardaginn 21. október kl. 16.00
Sungin verða lög við kvæði Gunnars á íslensku, dönsku og þýsku
m.a. frumflutt lag eftir Atla Heimi Sveinsson.
Flytjendur: Hulda Björk Garðarsdóttir og Ágúst Ólafsson
Píanóleikur og útsetningar: Daníel Þorsteinsson
Miðasala við innganginn - Aðgangseyrir: kr. 1.200.
Gerðuberg, Gunnarsstofnun Skriðuklaustri og Rithöfundasamband Íslands.
Sýningarnar Reykjavík - Úr launsátri, Flóðhestar og framakonur og Kompósísjónir
eru opnar virka daga frá kl. 11 -17 og um helgar frá kl. 13 - 16
Gerðuberg • sími 575 7700
Myndlistarmaðurinn Sigrún Inga
Hrólfsdóttir opnar einkasýningu
í 101 Gallery við Hverfisgötu
18a kl. 17 í dag. Þetta er stærsta
einkasýning Sigrúnar til þessa
en hún útskrifaðist frá grafík-
deild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1996. Hún stundaði fram-
haldsnám við Pratt Institute í
New York og var búsett þar á
árunum 1996-2001. Sigrún er
einn af stofnendum Gjörninga-
klúbbsins og hefur starfað með
honum undanfarin tíu ár og getið
sér gott orð heima og erlendis.
Á sýningunni eru stórar myndir,
unnar á svart yfirborð, skúlptúr-
ar, teikningar og myndbands-
verk. Verkin á þessari sýningu
eru öll unnin á þessu ári, utan
tvær teikningar frá árinu 2003.
Verkin fjalla meðal annars um
eirðarleysi og innri óþreyju, feg-
urð, þakklæti, efnafræði og
rætur en þar gefur að líta „tvær
íslenskar eyðieyjar, draum-
kenndar sýnir, flækjur og hnúta,
gull og dýr í dýragarði“.
Galleríið er opið fimmtudaga
til laugardaga frá 14-17. - khh
Flækjur og rætur
Kanadíska söngkonan Mary Lou
Fallis heldur tónleika í Salnum í
Kópavogi í tilefni af Kanadísk-
um menningardögum sem nú
standa yfir þar í bæ. Margir
minnast eflaust tónleika Fallis í
fyrra sem heimsótti Salinn þegar
Kópavogur fagnaði fimmtíu ára
afmæli og vakti rífandi lukku.
Nú snýr Fallis aftur ásamt með-
leikara sínum Peter Tiefenbach.
Að sögn söngkonunnar hyggj-
ast þau að þessu sinni spanna
allan skalann frá klassískri tón-
list til kanadískrar samtímatón-
listar, og gera „háþróað grín að
mjög svo alvarlegri músík“.
Þegar hún er beðin um að nefna
dæmi stendur heldur ekki á svari:
„Tónlist eftir Mozart, Purcell,
Bach, Strauss, Greer, Schubert
og um það bil öll möguleg tón-
skáld önnur. Einsöngur, skop-
stælingar, gamanleikur, ópera –
eitthvað fyrir alla,“ segir Fallis.
Mary Lou Fallis er þekktust
fyrir óperuskopleiki og einleiki
sem hún hefur sjálf samið og
flutt og hafa þeir skipað henni á
bekk með listamönnum á borð
við Victor Borge og Önnu Russell.
Á meðal verka hennar er Primad-
onna, sem er meðal annars byggt
á lífi hennar sjálfrar sem söng-
konu, Emma, Queen of Song, sem
fjallar um kanadísku dívuna
Emmu Albani, The Mrs. Bach
Show þar sem gestgjafinn er
sjálf Anna Magdalena, eiginkona
J.S. Bachs, og Ms. Mozart, saga
Nannel, systur Mozarts.
Meðleikari Mary Lou, Peter
Tiefenbach, er þekktur þátta-
stjórnandi hjá kanadísku útvarps-
og sjónvarpsstöðinni CBC. Nú
fagnar hann velgengni sem
píanóleikari, tónskáld, rithöfund-
ur og fjölmiðlamaður. Að auki
kennir hann raddþjálfun og
hljómsveitarstjórn við The Royal
Concervatory of Music og er
kynnir með Sinfóníuhljómsveit-
inni í Toronto.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í
kvöld. - khh
Mary Lou snýr aftur í Salinn
SIGRÚN INGA HRÓLFSDÓTTIR Draum-
kenndar sýnir í 101 Gallery.
SJALDHEYRÐ BLANDA AF HÚMOR OG HÁGÆÐA TÓNLISTARFLUTNINGI Mary Lou Fallis
og Peter Tiefenbach flytja skemmtidagskrá í Salnum í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Félag náms- og starfsráðgjafa held-
ur upp á dag náms- og starfsráðgjaf-
ar í fyrsta skipti á Íslandi í dag. Til-
gangur hans er að vekja athygli
landsmanna á þjónustu þeirra. Fyrir
hádegi munu náms- og starfsráð-
gjafar sem starfa víða í þjóðfélag-
inu kynna starf sitt sem nær bæði
til skólakerfisins og atvinnulífsins.
Eftir hádegi verður haldið mál-
þing í Norræna húsinu í Reykjavík
en yfirskrift þess er „Náms- og
starfsráðgjöf fyrir alla“. Aðalfyrir-
lesari verður dr. Mark Savickas. Dr.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir dósent í
náms- og starfsráðgjöf, Ingibjörg E.
Guðmundsdóttir og Selma Jóhannes-
dóttir verkstjóri taka einnig til máls.
Samstarfsaðilar eru menntamála-
ráðuneytið, Háskóli Íslands, Kenn-
arasamband Íslands, Vinnumála-
stofnun, Evrópumiðstöð náms- og
starfsráðgjafar og tímaritið Heimili
og skóli.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni www.fns.is
Dagur náms- og
starfsráðgjafar