Fréttablaðið - 20.10.2006, Side 62

Fréttablaðið - 20.10.2006, Side 62
 20. october 2006 FRIDAY42 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Steinþór Helgi Arnsteinsson > Plata vikunnar Scissor Sisters: Ta-Dah „Önnur breiðskífa Scissor Sisters er nokkuð skotheld poppplata. Við eigum bókað eftir að standa okkur að því að raula lög af þessari plötu í tíma og ótíma á komandi mánuðum.“ - bös Robbie Williams hefur verið einn vinsælasti tónlistar- maður Breta undanfarin ár og ef mið er tekið af plötu- sölu síðustu ára sennilega vinsælasti erlendi poppar- inn á Íslandi í dag. Hans sjöunda hljóðversplata, Rudebox, kemur út á mánu- daginn. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn. Það verður seint sagt um Robbie Williams að hann sitji auðum höndum. Hann er búinn að vera á sínu stærsta tónleikaferðalagi til þessa síðan í apríl og hans sjö- unda stúdíóplata, Rudebox, kemur í verslanir á mánudaginn, réttu ári eftir þá síðustu, Intensive Care, sem hefur þegar selst í tæpum sjö milljónum eintaka. Robbie er ótrúlega vinsæll í Bret- landi. Hann hefur ekkert komist mjög langt á Bandaríkjamarkaði, en víða annars staðar í heiminum á hann miklum vinsældum að fagna. Hér á Íslandi er hann sennilega vinsælasti erlendi popparinn í dag. Það segir sitt að þegar stórtónleikar Rásar 2 á menningarnótt féllu niður vegna framkvæmda á hafnarsvæðinu var brugðið á það ráð að endur- varpa tónleikum með Robbie. Magnaður á sviði Það þarf auðvitað ekkert að kynna Robbie í löngu máli. Hann fæddist 13. febrúar 1974 í Stoke. Hann var meðlimur í strákaband- inu Take That á árunum 1990- 1995 og eftir rúmt ár af sukki og rugli m.a. með Gallagher-bræðr- um þá tók hann sig saman í and- litinu og hóf sólóferil. Fyrsta platan hans Life Thru A Lens kom út 1997 og síðan hefur leiðin bara legið upp á við. Robbie á að baki ótal smelli, en vinsældirnar verða líka skýrðar með því hvað hann er magnaður á sviði. Það eru ekki margir sem eiga eins auðvelt með að ná upp stemningu og fá tugþúsundir tónleikagesta til að gleyma sér í söng og tralli eins og Robbie. Ný lög og uppáhalds lögin Það er óhætt að segja það strax að Rudebox er öðruvísi en þessi dæmigerða Robbie Williams plata. Það er engu líkara en að hann hafi fengið leið á því að raða niður endalausum poppsmella- plötum og langað til að gera eitt- hvað öðruvísi. Rudebox er unnin með nokkr- um mismunandi upptökustjórum, þ.á.m. Pet Shop Boys (sem Robb- ie hefur alltaf dýrkað), Mark Ronson (Lily Allen, Nikka Costa), William Orbit (Blur, Madonna), house-stjörnunni Joey Negro og Soul Mekanik, en þeir unnu m.a. lagið Rock DJ með Robbie. Tón- listin er sambland af popplögum og grúvi. Platan hefur bæði að geyma frumsamin lög og töku- lög, en Robbie valdi nokkur af uppáhaldslögunum sínum á plöt- una, m.a. Human League-lagið Louise, Lovelight eftir Lewis Taylor, Stephen Tintin Duffy lagið Kiss Me og King of the Bongo eftir franska tónlistar- manninn Manu Chao. Elektró og fönk áhrif Aðdáendur Robbie Williams voru mishrifnir af fyrstu smáskífunni af nýju plötunni sem heitir Rude- box eins og platan sjálf. Lögin á nýju plötunni eru samt ekki öll þannig. Þarna eru líka poppsmell- ir eins og smáskífulag númer tvö, Lovelight, sem Mark Ronson stjórnaði upptökum á og platan er nokkuð fjölbreytt þó að elektró- og fönkáhrifin séu áber- andi. Robbie hafði þetta að segja um plötuna í nýlegu viðtali: „Ég gat ekki gert aðra plötu eins og þær sem ég hafði gert áður og þessi plata hefur opnað þúsund dyr fyrir mér. Það sem ég er spenntastur fyrir núna er að gera meiri tónlist, Mér finnst öll lögin á nýju plötunni frábær... Ég hlakka til þess að koma þessari plötu út, en ég er ennþá spennt- ari að fara að búa til næstu.” Rudebox er fáanleg í sér- stakri viðhafnarútgáfu en með henni fylgir DVD-diskur með heimildarmynd, tónleikaefni o.fl. Á vit nýrra ævintýra Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Robbie í góðum gír ásamt stelpunum í Rudebox mynd- bandinu. Í SPILARANUM Tap Tap - Lanzafame Lay Low - Please Don’t Hate Me Patrick Watson - Close to Paradise Hafdís Huld - Dirty Paper Cup Beck - The Information LAY LOW BECK Að ríkisstjórn Íslands ætli eingöngu að lækka virðisaukaskatt á bækur en ekki tónlist hlýtur að sýna og sanna í eitt skipti fyrir öll fordóma stjórnvalda í garð tónlistar. Virðisaukaskattur lækkar á bókum þann 1. mars næstkomandi, úr 14 prósentum í 7 prósent. Virðisaukaskattur á tónlist mun hins vegar standa í stað í sínum 24,5 prósentum! Já, þið sjáið og lesið rétt; virðisaukaskattur á tónlist er 24,5 prósent sem þýðir að sá sem kaupir bók á 3.500 krónur út í búð borgar eingöngu 229 krónur í virðisaukaskatt á meðan sá sem kaupir einn disk á 2.000 krónur greiðir 394 krónur í virðisaukaskatt. Flestir hljóta að sjá misréttið sem tónlistargeiranum er sýndur. Vil ég í þessu samhengi mæla með tillögum Samfylkingarinnar frá 2003 þar sem er mælst til að virðisaukaskattur á tónlist lækki niður í 7 prósent. Í tillögum Samfylkingarinnar er reyndar einnig lagt til að virðisaukaskattur á bókum verði aflagður en hér er þó allavega verið að lækka virðisaukaskatt í svipuðum hlutföllum hjá báðum listgrein- um, bókum og tónlist. Auðvitað er dæmið samt ekki þannig að íslenskt tónlistarlíf muni umturnast og blómstra sem aldrei fyrr við það eitt að lækka virðis- aukaskatt á tónlist. Slíkar skattalækkanir myndu hins vegar gera meira en lítið gott enda er verð á tónlist hér á landi gjörsamlega óþolandi fyrir hinn almenna neytenda, svo ekki sé talað um þá tónlistar- menn sem eru að reyna að selja sína list. Stjórnvöld og samfélagið almennt þarf að átta sig á þeim mikla auð sem felst í menningarfleifð íslenskrar tónlistar. Afhverju er tónlist til dæmis ekki nógu menningarleg til þess að fá umfjöllun um jólin í þáttum á borð við Kastljós og Ísland í dag líkt og bækur. Er það af því að fróðir menn um bækur eru menningarlegir bókmennta- fræðingar á meðan þeir sem þekkja tónlist vel eru nördalegir tónlistarlúðar? Tónlistar- bransinn á Íslandi (og í raun hvar sem er) á einfaldlega betra skilið. Niður með vaskinn Hljómborðsleikarinn Þorbjörn Sigurðsson hefur í nógu að snúast á yfirstandandi Airwaves-hátíð. Hann kemur alls fram með sex hljómsveitum sem telja má líklegt að sé met á hátíðinni. „Ég byrjaði á því að spila með The Telepathetics á miðvikudagskvöldið en svo var bara frí í gær. Í kvöld byrja ég með Jeff Who? á Gauknum og hleyp svo upp í Þjóðleikhúskjallara til að spila með Kalla sem var í Tenderfoot. Svo endar þetta á Dr. Spock á Nasa. Annað kvöld spila ég með Pétri Ben og á sunnudaginn með Stranger,“ segir Þorbjörn, eða Tobbi eins og hann er oftast kallaður. Algengt er að íslenskir tónlistarmenn spili með fleiri en einni hljómsveit á Airwaves en ekki er vitað til þess að nokkur hafi spilað með eins mörgum og Tobbi nú. Guðni Finnsson bassaleikari mun hafa leik- ið með fjórum eða fimm hljómsveitum þegar mest var samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Einhverjar hliðranir voru gerðar á dagskrá Airwaves svo Tobbi næði að spila með öllum hljómsveitunum, en það var ekki að hans frumkvæði. „Ég var búinn að sjá fyrir mér að vera með skeiðklukk- una og reyna að ná þessu þannig.“ -hdm Spilar með sex hljóm- sveitum á Airwaves FYRST OG SÍÐAST HÓLMFRÍÐUR ANNA BALDURSDÓTTIR COWBOY JUNKIES - THE TRINITY SESSION Ég kaupi auðvitað sjaldan plötur því ég nýt þess að vera í sambúð með manni sem vinnur í útvarpinu en ég lét loksins verða af því um daginn að kaupa gamla og góða plötu, The Trinity Session með Cowboy Junkies. Mig hafði langað í hana í fimm ár svo það var kominn tími til. En síðasta sunnudag keypti ég nýjustu Killers-plötuna í afmælisgjöf handa 19 ára bróður mínum. Svo er ég rétt í þessu að byrja að hlusta á Born in the UK með Badly Drawn Boy, sem er snilldartónlistarmaður og er umslag nýju plötunnar ekki síðra. Annað gott: Mér finnst vera koma þrusugóðar tónlistarkonur á markað sem vert er að fylgjast með og nefni ég helst Lay Low og Hafdísi Huld. THE STONE ROSES - THE STONE ROSES Fyrsta platan sem ég keypti, fyrir utan sænsku barnaspól- urnar um Pelle Svanslös og Teskedsgummuna, var fyrsta Stone Roses platan, en við mennta- skóla- vinirnir dýrkuðum þá hljómsveit. I wanna be Adored var algjörlega spilað í tætlur og það lag minnir mig alltaf á tilfinningaþrungin unglingsár. HÓLMFRÍÐUR ANNA BALD- URSDÓTTIR Kynningar- stjóri Unicef á Íslandi nýtur þess að eiga unnusta sem vinnur í útvarpi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.