Fréttablaðið - 20.10.2006, Page 72

Fréttablaðið - 20.10.2006, Page 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ��������������� ��������������� Ég átti erindi til Helsinki um síð-ustu helgi. Fyrir mér var Finn- land land múmínálfa, Marimekko og Finlandia þannig að ég vissi ekki alveg við hverju var að búast. Í Helsinki er einhver sjarmerandi rússneskur fílingur í gangi. Íbúarn- ir eru þöglir − og virka nánast þungir − og áfengisneyslan rímar á köflum við það sem við hér heima köllum næturlíf. Á karókíbörum sameinast allar kynslóðir og bíða í röðum eftir því að fá að syngja þekkta erlenda slagara, sem undan- tekningarlaust eru með finnskum textum. Karókí virðist dauðans alvara í Finnlandi og menn nálgast karókí af auðmýkt svo að minnir á hugmyndafræði Japana, en jap- anskir viðskiptajöfrar álíta það beinlínis ruddalegt að slengja samningi á borðið hafi menn ekki fyrst sungið saman á karókíbar. SÖNGURINN í Helsinki birtist aðkomumanninum sem tjáningar- leið fyrir þjóð sem talar lítið. Á börum sitja karlmenn saman að sumbli en kvöldið líður án þess að nokkur segi orð. Þá fara menn heim og kyssa konurnar sínar. FYRIR femínista er það sömuleiðis ákveðin upplifun að fara í kvenna- sundlaugar í Helsinki þar sem konur synda naktar. Eftir ferð í berrössuðu lauginni er ég á því að það sé hollt fyrir konur að synda berar og skynja að megrunarraus tískublaða hefur í raun lítil áhrif á vöxt venjulegra kvenna. Allar erum við eins af guði gerðar. Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað sú staðreynd að bjór er afgreiddur í lauginni. FINNUM virðist þykja sopinn nokkuð góður en engu að síður er ákveðin reisn yfir fólki í glasi − þó að undantekningar séu vissulega á því − og meira að segja rónarnir eru hoknir af menntun og tala ekki minna en sex tungumál. Daginn eftir drykkju fara vinir svo naktir saman í gufubað, gera upp sakir og svitna timburmennina úr sér. Þannig var víst stjórnmálasam- band Finnlands og Sovétríkjanna í 30 ár − á tíunda bjór í saununni var ákveðið að ráðast ekki inn í Finn- land. Kannski að heimurinn væri friðsamlegri ef Bush og Blair færu berrassaðir í gufu með fjandmönn- um sínum? JAFNVEL þó að tengsl okkar Íslendinga við Finna séu minni en við aðrar frændþjóðir er það bjargföst trú mín að í Helsinki sé fundinn fjarskyldi frændinn sem manni líkar alltaf best við í fjöl- skylduboðunum. Og það er full ástæða til að mæla með þessari sjarmerandi borg. Fjarskyldi frænd- inn í Helsinki www.benni.is Opið virka daga frá kl. 9.00 - 18.00. Lau. 12.00 - 16.00 FerðabíllFjölskyldubíllSkólabíllFlutningabíllVetrarbíll Lacetti Meiri bíll – uppfullur af snjöllum lausnum Þetta er bíllinn sem þú ert að leita að. Það eru 25 snjallar lausnir á geymslurými sem henta allri fjölskyldunni, bílstjórinn er með stjórnbúnað í stýrinu og geislaspilarinn tekur 5 geisladiska, svo fátt eitt sé talið. Það hefur verið hugsað fyrir öllu svo að þér og allri fjölskyldunni líði einstaklega vel í Chevrolet Lacetti. Komdu til okkar á Tangarhöfðann og skoðaðu Evrópulínuna frá Chevrolet, þín bíður reynsluakstur og kaffi á könnunni. Tangarhöfða 8-12 Sími 590 2000 Umboðsmenn: Bílahornið hjá Sissa, Keflavík. Bílasalan Ós, Akureyri.Bílabúð Benna hvetur ökumenn til að sýna aðgát í akstri og aka með beltin spennt. Kalos Aveo ToscaLacetti Sport Lacetti A U K A BÚ N A Ð U R Á M Y N D : Á LF EL G U R Fjölskyldubíll í sparifötunum Evrópulínan frá Chevrolet Chevrolet Lacetti Station Kr. 1.892.000 BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR Í DAG ER FÖSTUDAGUR!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.