Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 4
4 27. október 2006 FÖSTUDAGUR
GENGIÐ 26.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,7211
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
67,85 68,17
127,77 128,39
85,81 86,29
11,507 11,575
10,341 10,401
9,294 9,348
0,5706 0,574
100,06 100,66
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
HVALVEIÐAR Sverrir Haukur Gunn-
laugsson, sendiherra Íslands í
Bretlandi, gekk á fund Bens
Bradshaw, breska sjávarútvegs-
ráðherrans, í gær. Bradshaw boð-
aði Sverri til fundar við sig í síð-
ustu viku til að ræða þá ákvörðun
íslenskra stjórnvalda að hefja
hvalveiðar í atvinnuskyni að
nýju. Sverrir segir niðurstöðu
fundarins ekki hafa verið áþreif-
anlega, heldur hafi þeir ákveðið
að vera sammála um að vera
ósammála eins og Sverrir orðaði
það.
Sverrir segir að fundurinn hafi
verið stuttur og farið ákaflega
kurteislega fram. „Bradshaw
byrjaði fundinn á því að lýsa yfir
vonbrigðum bresku ríkisstjórn-
arinnar með ákvörðun ríkis-
stjórnar Íslands. Síðan fórum við
í gegnum lagaleg, efnahagsleg og
sjálfbær rök málsins. Við rædd-
um einnig um útrýmingarhættu á
hvölum. Ég reyndi að koma
honum í skilning um það að lítil
eyþjóð eins og Ísland sem á fáar
náttúrulegar auðlindir þyrfti á
öllu sínu að halda“, segir Sverrir.
Sverrir segir Bradshaw ekki
hafa tjáð sig sérstaklega um
þessa röksemdafærslu. Hann
hafi ekki haft í frammi hótanir af
neinu tagi sem varði tvíhlíða
samskipti landana, eins og Einar
K. Guðfinnsson taldi að hann
hefði gert í vikunni, illa dul-
búnar. - shá
Sendiherra Íslands í Bretlandi fundaði með sjávarútvegsráðherra Breta:
Rökin með hvalveiðum skýrð
HVALSKURÐUR Atvinnuhvalveiðar voru
ræddar á fundi sendiherra Íslands og
sjávarútvegsráðherra Breta í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Albertína Elíasdóttir umsjónarmaður,
þátttakandi í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi, var
rangfeðruð í blaðinu í gær. Velvirðing-
ar er beðist.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram að
talið væri að „allt að 30.000 erlendir
ríkisborgarar“ dveldust hérlendis. Hið
rétta er að átt var við allt að 30.000
manns af erlendum uppruna.
LEIÐRÉTTING
DANMÖRK María krónprinsessa
Dana og Friðrik krónprins eiga von
á sínu öðru barni í maí næstkom-
andi. Þetta kom fram í tilkynningu
frá dönsku
hirðinni í gær.
Fyrir eiga hjónin
Kristján Valdimar
prins sem varð
eins árs fyrr í
mánuðinum.
Samkvæmt
fréttavef Politiken
í gær staðfestir til-
kynningin
þrálátan orðróm í Danmörku um að
prinsessan væri þunguð á nýjan
leik. Barnið sem María ber undir
belti verður það þriðja í röðinni til
að erfa dönsku krúnuna á eftir
föður sínum og bróður. - ks
Danska konungsfjölskyldan:
María prinsessa
barnshafandi
MARÍA KRÓN-
PRINSESSA
TRYGGINGAR „Það að taka ofan af
rúmi fyrir þægilega kvöldstund
eða til að kíkja á sjónvarpið, er
dagleg athöfn og slík athöfn telst
ekki til heimilisstarfa og fellur því
ekki undir heimilisstörf í skilningi
almannatryggingalaga,“ segir í
greinargerð Tryggingastofnunar
sem neitaði konu einni um
slysabætur eftir að hún meiddist á
öxl á heimili sínu. Konan sem
kærði synjun Tryggingastofnunar
er með hjartasjúkdóm er nefnist
gáttaflökt sem mun geta valdið
yfirliði. Taldi úrskurðarnefnd
almannatrygginga að sjúkdómur-
inn, en ekki slys, hefði valdið því
að konan féll við rúm sitt og missti
meðvitund. - gar
Hrasaði við rúmið:
Neitað um
slysabætur
LÖGREGLUMÁL Ökumaður og tveir
farþegar sendibíls voru fluttir á
heilsugæslustöðina í Borgarnesi í
gær eftir bílveltu. Óhappið varð á
Borgarfjarðarbraut við Klepp-
járnsreyki árla morguns. Hálka
var á veginum en ekki er talið að
bíllinn hafi verið á mikilli ferð.
Sendibíllinn er mikið skemmd-
ur eftir veltuna. Ekki var talið að
meiðsl mannanna væru alvar-
legs eðlis. - ifv
Þrír hlutu minniháttar meiðsl:
Sendibíll valt í
mikilli hálku
SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra telur
möguleika á að úthluta byggða-
kvóta með öðrum hætti en hingað
til hefur verið gert. Hann telur
aflaheimildirnar ekki hafa skilað
því hlutverki sem upphaflega hafi
verið ætlast til. Hann gerði hval-
veiðar, krókaaflamarkskerfi við
fiskveiðistjórnun og línuívilnum
einnig að umtalsefni við upphaf
22. aðalfundar Landssambands
smábátaeigenda í gær.
„Það er ljóst mál að sumar
byggðir hafa notið verulegra
heimilda út úr þessu kerfi. En það
er líka jafn ljóst að þessar afla-
heimildir hafa alls ekki nýst alls
staðar til þeirrar atvinnuuppbygg-
ingar sem til var ætlast og vonir
voru bundnar við,“ segir Einar. Að
hans mati hefur fyrirkomulag
byggðakvótaúthlutunar ekki gert
nægilegar kröfur til þeirra sem
heimildirnar hafa fengið. „Þess
vegna er það til athugunar í sjávar-
útvegsráðuneytinu hvernig sé
hægt að úthluta þessum afla-
heimildum með markvissari hætti,
þannig að þær nái tilætluðum
árangri og skili því hlutverki sem
til er ætlast.“
Einar telur koma til álita að
gera ríkari kröfu um að afla sé
landað til vinnslu í heimabyggð.
Það sé fiskvinnslan í landi, sam-
fara útgerð, sem skipti mestu um
viðreisn byggðanna og kvótinn
hafi aldrei verið hugsaður sem
sárabót til útgerða. Einar telur
einnig koma til greina að úthluta
byggðakvóta til lengri tíma í senn
því það uppræti óvissu um starfs-
aðstæður greinarinnar. Hann telur
að óvissan kringum úthlutun afla-
heimilda í byggðakvótum hafi
dregið úr áhuga þeirra sem ella
hefðu kosið að taka þátt í atvinnu-
uppbyggingu þeirra byggða sem
misst hafa frá sér aflaheimildir.
Arthur Bogason, formaður
Landssambands smábátaeigenda,
telur að breytingar á úthlutunar-
reglum byggðakvótans verði til
góða. „Það er staðreynd að í
sumum tilfellum hafa menn selt
eða leigt kvótann frá sér og það er
ekki tilgangur byggðakvótans.
Það er staðreynd að aðferðafræðin
sem notuð er nú hefur valdið
miklum sárindum.“ Arthur segir
að gott dæmi sé að finna í Bolungar-
vík þar sem kvóta er úthlutað við
löndun. „Þar virkar þetta eins og í
línuívilnun, þú þarft að veiða
kvótann til að fá hann. Mér finnst
það góð aðferðafræði.“
svavar@frettabladid.is
Byggðakvóti skilar
ekki hlutverki sínu
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir koma til greina að úthluta
byggðakvóta með öðrum hætti en gert hefur verið til þessa. Hann segir afla-
heimildirnar ekki skila að fullu því hlutverki sem þeim hafi verið ætlað.
Í HÖFN 22. aðalfundur Landssambands smábátaeigenda hófst í gær. Sjávarútvegs-
ráðherra kom í ræðu sinni víða við, en hann telur koma til greina að breyta
byggðakvótakerfinu svo það skili því hlutverki sem því var upphaflega ætlað.
Á FUNDI Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra og Arthur
Bogason, formaður LS, komu
víða við í ræðum sínum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur
maður var í gær dæmdur í
Hæstarétti í eins og hálfs árs
fangelsi fyrir að aka drukkinn.
Maðurinn hefur margoft ekið
ölvaður og hefur ítrekað verið
sviptur ökuréttindum til æviloka.
Hann var því réttindalaus þegar
hann var tekinn þéttdrukkinn við
akstur í fimm skipti í desember
og janúar í fyrravetur.
Maðurinn á að baki langan og
ítarlegan afbrotaferil og hefur
hlotið 25 refsidóma, meðal annars
fyrir brot gegn valdstjórninni,
þjófnaði, líkamsárásir, fíkniefna-
brot og fjársvik. Hann hefur 22
sinnum verið tekinn fyrir ölvun
við akstur. - gar
Lætur sér ekki segjast:
Fangelsi fyrir
ölvunarakstur
NOREGUR, DANMÖRK Forsvarsmenn
Gardermoen-flughafnarinnar í
Ósló og Kastrup-flugvallarins í
Kaupmannahöfn hafa fjárfest sam-
tals í einni milljón plastpoka vegna
nýrra reglna Evrópusambandsins
um handfarangur sem taka gildi í
byrjun nóvember, að því er kemur
fram á fréttavef Aftenposten.
Samkvæmt reglunum má taka
samtals einn desilítra af vökva
með í handfarangur þegar ferðast
er með flugi, en pakka verður
honum í lokanlegan plastpoka.
Flugvellirnir leggja út fyrir
plastpokunum sjálfir að sögn Jo
Kobro, upplýsingafulltrúa
Gardermoen-flugvallarins. - smk
Nýjar handfarangursreglur:
Milljón plast-
pokar til taks
Þriðji hver býr einn
Meira en þriðji hver Finni býr einn, að
sögn finnska dagblaðsins Helsingin
Sanomat. Einbýlingarnir búa oftast í
herbergi, eins herbergis eða tveggja
herbergja íbúð.
FINNLAND