Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 8
8 27. október 2006 FÖSTUDAGUR
STJÓRNMÁL Samfylkingarfólk í
Norðvesturkjördæmi gengur til
prófkjörs í dag og á morgun.
Kjördæmið er stórt; nær frá
Hvalfirði í suðri, norður um Vest-
firði og austur í Skagafjörð. Kjör-
deildir eru sextán. Kosið er á
morgun milli 12 og 18 og á sunnu-
dag frá 10 til 12. Atkvæði verða
talin í Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi og ættu úrslit að liggja fyrir
undir kvöld á sunnudag.
Samfylkingin á tvo þingmenn í
kjördæminu; Önnu Kristínu
Gunnarsdóttur og Jóhann Ársæls-
son. Jóhann hefur afráðið að láta
af þingmennsku í vor og tekur því
ekki þátt í prófkjörinu. Anna
Kristín sækist á hinn bóginn eftir
endurkjöri og gefur kost á sér í
1.-2. sæti. Þá sækist Karl V.
Matthíasson, fyrrverandi þing-
maður Samfylkingarinnar í Vest-
fjarðakjördæmi, eftir einu af
efstu sætum.
Fimm sækjast eftir fyrsta sæti
listans og alls sjö eftir tveimur
efstu sætunum.
Þingmenn kjördæmisins eru
tíu en fækkar um einn á næsta
kjörtímabili. Stafar það af fólks-
flutningum og færist þingsætið í
Suðvesturkjördæmi.
Samkennd hefur einkennt
kosningabaráttuna og hafa fram-
bjóðendur ferðast saman um
kjördæmið til sameiginlegra
framboðsfunda. Þeim var þröngt
sniðinn stakkurinn í kynningar-
málum og var meinað að auglýsa
sig en máttu setja upp heimasíður
og útbúa nafnspjöld.
Norðvesturkjördæmi varð til
með sameiningu þriggja kjör-
dæma; Norðurlandskjördæmis
vestra, Vestfjarða- og Vestur-
landskjördæmis. Samtöl við Sam-
fylkingarfólk í kjördæminu leiðir
í ljós að enn eimir eftir af gamla
kjördæmaskipulaginu og horfa
sumir ennþá til þess. Líta þeir þá
fyrst til lögheimilis frambjóðenda
en svo á annað sem þeir telja
skipta máli.
Samfylkingin hlaut 4.346
atkvæði í kjördæminu í kosning-
unum 2003. Rétt til að kjósa í próf-
kjörinu nú hafa flokksfélagar og
þeir sem heita Samfylkingunni
stuðning sinn. bjorn@frettabladid.is
Fimm sækjast eftir
fyrsta sæti listans
Ellefu taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldið
er um helgina. Flokkurinn á nú tvo þingmenn í kjördæminu. Frambjóðendum var
meinað að auglýsa í fjölmiðlum. Úrslit eiga að liggja fyrir undir kvöld á sunnudag.
ÞÁTTTAKENDUR Í PRÓFKJÖRI SAMFYLKINGARINNAR Í NORÐVESTURKJÖRDÆMI Hafa
ferðast saman á milli framboðsfunda í kjördæminu. Þeir máttu aðeins kynna sig á
sameiginlegum fundum og á heimasíðum. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR KRISTÓFERSSON
ÞAU TAKA ÞÁTT:
Anna Kristín Gunnarsdóttir alþingismaður 1.-2. sæti
Benedikt Bjarnason, nemi við Háskólann á Bifröst 3.-4. sæti
Björn Guðmundsson smiður 4. sæti
Bryndís Friðgeirsdóttir, svæðisfulltrúi Rauða krossins á Vestfjörðum 2.-3. sæti
Einar Gunnarsson kennari 3.-4. sæti
Guðbjartur Hannesson skólastjóri 1.-2. sæti
Helga Vala Helgadóttir, fjölmiðlakona og laganemi 2.-3. sæti
Karl Matthíasson sóknarprestur 1.-2. sæti
Ragnhildur Sigurðardóttir, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands 3. sæti
Sigurður Pétursson, bæjarfulltrúi á Ísafirði 1.-4. sæti
Sveinn Kristinsson, bæjarfulltrúi á Akranesi 1. sæti
ALMANNATRYGGINGAR Trygginga-
stofnun ríkisins segir að bónda-
konu með MS-sjúkdóm sem fékk
ekki styrk frá stofnuninni til að
kaupa fjórhjól hafi verið vísað til
Svæðisskrifstofu fatlaðra.
Eftir að Fréttablaðið sagði frá
máli konunnar á mánudag sagði
á heimasíðu TR að fjórhjól væri
fyrst og fremst atvinnutæki en
síður fallið til að auka sjálfs-
björg, öryggi og/eða þjálfun eins
og skilyrði væri fyrir styrkveit-
ingu.
Hægt væri að sækja um slíkt
atvinnutæki til Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra. - gar
Bóndakona án fjórhjóls:
Var vísað í rétt-
an farveg
DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs-
aldri og tæplega þrítug kona hafa
verið ákærð fyrir tilraunir til
smygls á fíkniefnum til landsins,
þar sem konan misnotaði aðstöðu
sína sem starfsmaður Íslands-
pósts. Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Skötuhjúin frömdu brotin á síð-
asta ári. Þau voru skipulögð með
þeim hætti að maðurinn sendi
samtals rúm fimmtíu grömm af
amfetamíni til landsins í þremur
umslögum. Umslögin voru send á
ýmis nöfn hér heima, samkvæmt
ráðagerð konunnar, sem vann á
Íslandspósti þegar þetta var. Hún
átti að sjá um að fjarlægja bréfin
við flokkun og afhenda manninum
þau. Tollgæslan fann bréfin og
lagði hald á þau.
Aftur reyndi parið að leika sama
leikinn nokkru síðar. Maðurinn
sendi heim í sex umslögum nokkuð
af kókaíni og hassi á nöfn sem konan
valdi. Og enn fann tollgæslan
umslögin í póstmiðstöðinni á Stór-
höfða. Í þetta sinn var parið hand-
tekið með eitt umslaganna sem það
taldi að innihéldi fíkniefni.
Auk þessa er manninum gefið
að sök að hafa haft í vörslu sinni
mikið magn af fíkniefnum, meðal
annars 2,7 kíló af hassi, umtals-
vert magn af amfetamíni, E-töfl-
um, maríjúana og tóbaksblandað
kannabisefni. Jafnframt að hafa
geymt ýmis dýr tæki og skartgripi
sem hann hafi vitað að voru
stolin. - jss
PÓSTURINN Konan ætlaði að notfæra
sér aðstöðu sína sem starfsmaður á
Póstinum. Það mistókst.
Karl á fimmtugsaldri og tæplega þrítug kona ákærð fyrir fíkniefnabrot:
Fluttu inn fíkniefni með pósti
Réttu hjálparhönd
Félagsþjónusta Kópavogs óskar eftir að ráða fólk í heimaþjónustu.
Fjölbreytt og gefandi starf með sveigjanlegum vinnutíma.
Heilsdags- og hlutastörf. Kynntu þér kjörin, þau koma á óvart!
Nánari upplýsingar veita þjónustustjórar heimaþjónustunnar í síma 570 1400.
www.kopavogur.is
Meginmarkmið Félagsþjónustu Kópavogs er
að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi
Kópavogsbúa á öllum aldri svo þeir fái
tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu.
KYNNINGARFUNDUR UM
BORGARALEGA FERMINGU
Kyninngarfundur fyrir unglinga sem áhuga hafa á
borgaralegri fermingu vorið 2007 og aðstandendur
þeirra verður haldinn laugardaginn 28. október
kl. 11:00-12:00 í Háskólabíói sal 1.