Fréttablaðið - 27.10.2006, Qupperneq 10
10 27. október 2006 FÖSTUDAGUR
Herferð gegn ofbeldi
Ítalska ríkisstjórnin íhugar þessa
dagana að setja strangari lög um fólk
sem situr um annað fólk og veitir
því eftirför. Er þetta liður í baráttu
gegn ofbeldi gegn konum, en oftast
eru það karlmenn sem veita konum
eftirför.
Sjúkrahúsdauði rannsakaður
Ítalska heilbrigðisráðuneytið lætur
nú rannsaka ásakanir læknasamtaka
Ítalíu um að allt að 90 manns látist á
degi hverjum á sjúkrahúsum landsins
vegna mistaka heilbrigðisstarfsfólks.
ÍTALÍA
NOREGUR Óprúttnir náungar
ætluðu sér að ræna Hákoni
krónprinsi Noregs skömmu áður
en hann hóf sambúð með eigin-
konu sinni, Mette-Marit. Þetta
kemur fram í nýrri bók um
Noregskonung,
Harald V, eftir Per
Egil Hegge, sem
fjallað var um á
fréttavef norska
blaðsins Aften-
posten í gær.
Bígerð
glæpamannanna
mun hafa verið ein
af ástæðunum
fyrir því að ungu
hjónaleysin hófu sambúð sína, því
það einfaldaði öryggisgæsluna.
„Ég veit ekki meira en það sem
konungurinn sagði,“ segir Hegge.
„Ákveðnir menn ætluðu að ræna
krónprinsinum og nota hann til að
ná félaga sínum úr fangelsi.“- smk
Norska konungsfjölskyldan:
Hugðust ræna
krónprinsinum
HÁKON KRÓN-
PRINS
VM fær inngöngu í ASÍ
Nýtt félag, Félag vélstjóra og
málmtæknimanna, VM, hefur verið
samþykkt sem aðildarfélag Alþýðu-
sambandsins. Félagið var stofnað í
október með sameiningu Vélstjóra-
félags Íslands og Félags járniðnaðar-
manna.
VINNUMARKAÐUR
DANMÖRK, AP Dómstóll í Árósum vísaði í gær frá
kæru sjö danskra múslimasamtaka gegn dagblaðinu
Jótlandspóstinum, sem þau höfðu stefnt fyrir
meintar vísvitandi ærumeiðingar í garð múslima
með því að fá skopteiknara til að teikna myndir af
Múhameð spámanni og birta í blaðinu.
„Það er ekki hægt að útiloka að birting teikning-
anna hafi verkað móðgandi á suma múslima,“ segir
í dómsorðinu. En þar segir einnig að engin ástæða
sé til að ætla, að „tilgangur teikninganna hafi verið
að koma á framfæri skoðunum sem gera lítið úr trú
múslima“.
Carsten Juste, aðalritstjóri Jótlandspóstsins,
fagnaði frávísunarúrskurðinum sem sigri fyrir
tjáningarfrelsið. Talsmenn múslimasamtakanna
sem lögðu fram kæruna sögðust myndu áfrýja og
áhrifamenn í sumum múslimalöndum úthrópuðu
úrskurðinn sem dæmi um „hatur á íslam“.
Jótlandspósturinn birti teikningarnar 30.
september 2005, með fylgitexta þar sem útskýrt var
að blaðið vildi storka því sem það skynjaði sem
sjálfsritskoðun teiknara sem virtust óttast að gera
eitthvað sem róttækir múslimar gætu tekið sem
móðgun. Teikningarnar voru endurbirtar í nokkrum
evrópskum blöðum í janúar og febrúar, en þá
geisaði mikið and-danskt fár meðal múslima um
allan heim. - aa
Málsókn múslimasamtaka gegn Jótlandspóstinum vegna Múhameðsteikninga:
Ærumeiðingarkæru vísað frá
KÆRENDUR ÁFRÝJA Kasem Ahmad, talsmaður kærenda, talar
fyrir utan dómhúsið í Árósum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Dögg Pálsdóttir
4.í sætiðwww.dogg.isPrófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006
Ég vil afnema
skerðingu elli- og
örorkulífeyris vegna
tekna maka.
Kynntu þér
áherslumál Daggar á
www.dogg.is
KOSNINGASKRIFSTOFA
Laugavegi 170, 2. hæð
opnunartími virka daga
kl. 16-22 og um
helgar frá kl. 12-18
dogg@dogg.is
sími 517-8388
LÁTUM
VERKIN TALA
BRASILÍA, AP Maður sem talinn er
vera einn afkastamesti raðmorð-
ingi Brasilíu hefur verið dæmdur
í tuttugu ára fangelsi fyrir morð á
fimmtán ára pilti árið 2003.
Francisco das
Chagas Rodrigues
de Brito, sem er
41 árs reiðhjóla-
viðgerðarmaður,
sagði að kynferðis-
ofbeldi sem hann
sætti sem barn
hefði orðið til
þess að hann
myrti piltinn.
Chagas er
sakaður um að
hafa myrt 42
drengi á árunum 1991 til 2003 og
hafa skorið kynfærin af sumum
þeirra. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær hin dómsmálin verða
tekin fyrir.
Brasilískur morðingi:
Dæmdur í
20 ára fangelsi
FRANCISCO
DAS CHAGAS
RODRIGUES DE
BRITO
DÓMSMÁL Mál ákæruvaldsins á
hendur sjö ungmennum á
aldrinum 17-21 árs var þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Fólkið hafði verið handtekið,
ýmist saman eða sitt í hvoru lagi,
vegna fjölmargra afbrota á árinu
2006.
Meðal þess sem þau eru ákærð
fyrir er nokkur fjöldi fíkniefna-
og umferðarlagabrota auk
þjófnaða úr verslunum. Þá eru
þau ákærð fyrir aðild að eða
beina þátttöku í þremur innbrot-
um á höfuðborgarsvæðinu þaðan
sem stolið var skiptimynt og
sælgæti. Farið er fram á refsingu
yfir þeim öllum. - þsj
Ákærð fyrir fjölmörg afbrot:
Unglingagengi
fyrir dómi
DÓMSMÁL Faðir sextán ára stúlku
var í gær dæmdur í Hæstarétti í
fimm ára fangelsi fyrir að misnota
dóttur sína kynferðislega frá því
hún var barn og fram á unglingsár.
Þegar stúlkan var aðeins fárra
mánaða gömul setti móðir hennar
hana til fósturforeldra. „Strax um
þriggja ára aldur var henni vísað á
barna- og unglingageðdeildina til
athugunar,“ segir í dóminum, þar
sem kemur fram að stúlkan hafi
búið við erfiðar aðstæður og loks
verið hafnað af fósturforeldrum
sínum þegar hún var fimm ára.
Stúlkan fór þá á heimili móður
sinnar. „Móðir hennar beitti hana
líkamlegu ofbeldi ásamt því að
kalla hana ýmsum niðrandi og niður-
brjótandi nöfnum. Hefur móðir
ekki neitað þessu en virðist ekki
kunna önnur ráð til að sinna stúlk-
unni,“ segir meðal annars í greinar-
gerð barna- og unglingageðdeildar
um samskipti mæðgnanna.
Í gegnum árin heimsótti stúlkan
blóðföður sinn og gisti þar stund-
um. Hófst þar langvarandi kyn-
ferðisleg misnotkun sem meðal
annars fól í sér samræði mannsins
við stúlkuna. Hún leysti síðan frá
skjóðunni í júlí 2004, þá fjórtán ára
gömul.
„Í stað þess að vernda barn sitt
og hjálpa því við þessar hörmulegu
aðstæður, beitti hann barnið grófu
kynferðislegu ofbeldi og brást
algerlega trausti þess og foreldra-
skyldum sínum gagnvart því,“
segir um föðurinn í dóminum. Hann
var dæmdur til að greiða dóttur
sinni tvær milljónir króna í miska-
bætur. - gar
Fimm ára stúlka sem var hafnað af fósturforeldrum var misnotuð af pabba sínum:
Nauðgaði hjálparþurfi dóttur
HÆSTIRÉTTUR Í stað þess að vernda
hjálparþurfi dóttur sína braut faðir
hennar gegn henni á grófasta hátt.