Fréttablaðið - 27.10.2006, Qupperneq 22
27. október 2006 FÖSTUDAGUR22
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.473 -0,41% Fjöldi viðskipta: 386
Velta:49.101 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 66,20 -1,19% ... Alfesca
4,99 -0,60% ... Atlantic Petroleum 602,00 +0,00% ... Atorka 6,44
+0,00% ... Avion 34,30 +0,00% ... Bakkavör 60,70 +1,00% ...
Dagsbrún 5,00 -0,60% ... FL Group 23,40 -2,50% ... Glitnir 23,40
-0,85% ... Kaupþing 868,00 +0,35% ... Landsbankinn 26,50
-1,49% ... Marel 79,50 -0,63% ... Mosaic Fashions 17,00 +0,00% ...
Straumur-Burðarás 17,00 -0,59% ... Össur 125,00 -1,96%
MESTA HÆKKUN
Bakkavör 1,00%
Flaga 0,65%
Exista 0,45%
MESTA LÆKKUN
FL Group 2,50%
Tryggingam. 2,38%
Össur 1,96%
Landsbankinn skilaði 26,2 milljarða
króna hagnaði á fyrstu níu mánuðum
ársins. Þar af nam hagnaður á þriðja
ársfjórðungi rúmum 5,7 milljörðum
króna. Þetta er nokkuð undir spám
greiningardeilda, sem gerðu ráð fyrir
um 6,2 til 7,8 milljarða króna hagnaði
á fjórðungnum.
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri
Landsbankans, er ánægður með
afkomuna enda hafi bankinn skilað
7,2 milljarða króna hagnaði á fjórð-
ungnum fyrir skatta. Það er tæpum
milljarði meira en á sama tíma fyrir
ári og rétt undir heildarafkomu síð-
asta árs. Stefni því í að Landsbankinn
slái nýtt hagnaðarmet á árinu.
„Við erum mjög ánægðir með
uppgjörið. Það sem mestu skiptir er
að hinn almenni rekstur gengur vel en
það endurspeglast í hækkun á vaxta-
og þóknunartekjum,“ segir Sigurjón og
bendir á að þær hafi numið 52 millj-
örðum króna á fyrstu níu mánuðum
ársins. Til samanburðar voru tekjurnar
tæpir 28 milljarðar króna í fyrra sem
þýðir að tekjur Landsbankans hafa
aukist um 89 prósent á milli ára. Að
frádregnum kostnaði er undirliggjandi
hagnaðaraukning um 10 milljarðar
króna að sögn Sigurjóns, sem segir
þetta gríðarlega góðan árangur.
Sigurjón segir vaxtamun gera það
að verkum að hagnaður bankans
reyndist undir afkomuspágreiningar-
deilda. „Verðtryggingarójafnvægi, sem
skilaði bankanum 4 milljarða króna
hagnaði á öðrum ársfjórðungi er
neikvæður um einn milljarð á þessum
þriðja ársfjórðungi,“ segir Sigurjón
og bendir á að næstu þrjá ársfjórð-
unga muni vaxtamunur vera undir
meðtaltali vegna taps á verðtryggðum
eignum umfram verðtryggðar skuldir.
„Þetta þýðir að sá hagnaður sem við
náðum á 2. ársfjórðungi gengur til
baka á næstu þremur ársfjórðungum,“
segir Sigurjón. jab
Landsbankinn
undir afkomuspá
Auðkýfingar ásælast Bond-bílinn
Franski auðkýfingurinn Bernard Arnault og belg-
íski milljarðamæringurinn Albert Frere eru sagðir
íhuga að stofna fjárfestingasjóð sem mun meðal
annars kaupa framleiðslu á Aston Martin-bílum
frá bandaríska bílaframleiðandanum Ford.
Bílarnir eru breskir og hefur kvennagullið og
njósnari hennar hátignar, James Bond, ekið um í
bifreiðum frá Aston Martin í nokkrum kvikmynd-
um um ævintýri hans, síðast í Die Another Day,
sem tekin var upp að hluta hér á landi. Arnault
og Frere eru með ríkustu mönnum Evrópu.
Arnault er sjöundi ríkasti maður í heimi sam-
kvæmt bandaríska viðskiptatímaritinu Forbes
en Frere er ríkasti maður í Belgíu. Í fjárfest-
ingasjóðnum verður einn milljarður evra,
ríflega 86 milljarðar íslenskra króna.
Sony hugsar um neytendurna
Sony beitir nú öllum ráðum til að koma í veg
fyrir að leikjatölvan PlayStation 3 berist strax til
Evrópu. Tölvan fer hins vegar á markað í Japan
og Bandaríkjunum í næsta mánuði, en á ekki að
koma til Evrópu fyrr en í mars. Harðir leikja-
tölvuunnendur sem hér hafa beðið óþreyjufullir
eru því skiljanlega sárir yfir því að verða með
þeim síðustu til að fá leikjatölvuna. Talsmaður
Sony segir fyrirtækið hins vegar bera hag neyt-
enda fyrir brjósti, ekki sé enn hægt að spila leiki
fyrir eldri útgáfur í þeirri nýju, auk þess sem ekki
sé hægt að spila Blu-ray diska, sem gefnir hafa
verið út í Evrópu í leikjatölvum frá
Bandaríkjunum og Japan. Þeir sem
keypt hafi tölvu þaðan og reyndu
að nota í Evrópu sætu því uppi
með leikjatölvu sem þeir gætu
ekki notað. Í mars á hins vegar
að vera búið að búa þannig
um hnútana að tölvan ráði
við evrópsku Blu-ray diskana.
Peningaskápurinn ...
Hagnaður Straums-Burðaráss á
þriðja ársfjórðungi nam 1,55 millj-
örðum króna. Það er langt undir
spám greiningardeilda bankanna
sem höfðu gert ráð fyrir hagnaði á
bilinu 5 til 5,4 milljarða. Hagnaður á
þriðja ársfjórðungi í fyrra nam 6,47
milljörðum króna og nam lækkunin
milli ára því 76 prósentum.
Munurinn á spám greiningar-
deildanna og raunveruleikanum
skýrist helst af mun meira gjald-
eyristapi en gert var ráð fyrir og
lakri afkomu af hlutabréfasafni.
„Þróun á mörkuðum hefur verið
mjög góð á þessum ársfjórðungi.
Fyrstu tvo fjórðunga ársins var
Straumur-Burðarás að ná betri
árangri en markaðirnir hafa verið
að sýna. Núna fór það hins vegar í
aðra átt, sem veldur vonbrigðum,“
segir Hermann Már Þórisson, sér-
fræðingur hjá greiningardeild
Landsbankans. „Þeim hefur hins
vegar gengið mjög vel að byggja
upp vaxta- og þóknunartekjur á
árinu.“
Heildareignir félagsins drógust
lítitllega saman á fjórðungnum
vegna áhrifa frá krónunni. Útlán
jukust á tímabilinu um fimm pró-
sent á föstu gengi en drógust saman
um þrjú prósent vegna þessa. Námu
eignirnar 332,42 milljörðum í lok
þriðja ársfjórðungs en voru 259,34 í
lok árs 2005.
Litið til fyrstu níu mánaða ársins
jókst hagnaðurinn um 48 prósent
milli ára. Nam hagnaður eftir skatt
20,93 milljörðum króna í ár en 14,10
milljörðum fyrstu níu mánuðina í
fyrra. Hreinar þóknunartekjur
rúmlega fimmfaldast milli ára og
námu 5,16 milljörðum samanborið
við 957 milljónir á sama tímabili
árið 2005. Hreinar vaxtatekjur
margfaldast einnig og námu 3,13
milljörðum miðað við að hafa verið
neikvæðar á fyrstu níu mánuðum
ársins 2005. - hhs
Hagnaður Straums-Burðaráss
langt undir væntingum
UPPGJÖR STRAUMS-BURÐARÁSS
Á ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGI
Hagnaður Straums-Burðaráss 1.549
Spá Glitnis 5.347
Spá Kaupþings 5.000
Spá Landsbankans 5.073
Spá um meðaltalshagnað 5.140
(upphæðir í milljónum króna)
SIGURJÓN Þ. ÁRNASON Allt stefnir í að
Landsbankinn skili methagnaði á árinu.
Sigurjón Árnason bankastjóri fagnar góðu
níu mánaða uppgjöri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mikil viðskipti áttu sér stað í
Kauphöll Íslands í gær og bar það
hæst til tíðinda að Samson Global
Holding, félag Björgólfsfeðga,
eignaðist sautján prósenta hlut
Grettis í Straumi-Burðarási. Sam-
son er þar með orðinn stærsti ein-
staki hluthafinn í Straumi með
30,2 prósenta hlut og hafa feðg-
arnir hert tök sín á félaginu. Kaup-
verðið nam þrjátíu milljörðum
króna.
Þá var í öðru lagi tilkynnt um
að Grettir hefði sameinast Blá-
tjörn og nema heildareignir sam-
einaðs félags fjörutíu milljörðum
króna og eigið fé um 24 milljörð-
um. Rekstur Grettis verður skýr-
ari með þessari breytingu; félagið
ætlar sér að vera áhrifafjárfestir í
alþjóðlegu útrásarfélögunum
Avion Group og Icelandic en held-
ur auk þess utan um 28 prósenta
hlut í TM.
Breytingar urðu á eignarhaldi í
Gretti. Hansa, félag Björgólfs
Guðmundssonar, keypti þriðjungs-
hlut í Gretti af Landsbankanum
sem seldi öll sín bréf fyrir 6,3
milljarða króna. Eftir viðskiptin
fara Björgólfsfeðgar með helm-
ingshlut í Gretti á móti Sundi og
smærri hluthöfum.
Í þriðja lagi losaði Landsbank-
inn um alls 14,6 milljarða króna
með því að selja áðurnefndan hlut
sinn í Gretti og tæplega sjö pró-
senta hlut í Straumi til Grettis sem
framseldi hlutinn til Samsonar
eins og áður sagði. Landsbankinn
keypti tæplega tíu prósenta hlut í
TM fyrir 3,8 milljarða króna af
Gretti.
Í tilkynningu frá Landsbankan-
um segir að með sölunni á hlutn-
um í Straumi lýkur afskiptum
bankans af einu mesta umbreyt-
ingarverkefni í íslensku fjármála-
lífi sem hófst með kaupum á hlut-
um í Eimskipafélaginu í september
fyrir þremur árum.
eggert@frettabladid.is
Björgólfsfeðgar styrkja
sig í Straumi-Burðarási
Eignarhald gert skýrara eftir 40 milljarða viðskipti
í Straumi, TM og Gretti. Grettir sameinast Blátjörn
og LÍ losar um eignatengsl við Straum og Gretti.
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON
Tilkynnt var í gær að Gunnlaugur M.
Sigmundsson léti af störfum sem
forstjóri Kögunar. Bjarni Bjarni Birgisson
verður nýr forstjóri félagsins og Jóhann
Þór Jónsson verður fjármálastjóri.
Krónan veiktist um 0,33 prósent í
gær og stóð gengisvísitalan við lokun
markaða í 118,7 stigum. Dollarinn er nú
68 krónur, evran 86 krónur og pundið
128 krónur.
Arðgreisla sem ákveðin var á
aukahluthafafundi Kaupþings var
greidd út í gærmorgun í formi bréfa í
Exista. Þar með er Exista orðið stærsta
almenningshlutafélag á landinu með
mestan fjölda hluthafa.