Fréttablaðið - 27.10.2006, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 27. október 2006 23
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi
Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík
Núpur byggingarvöruverslun, Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi
Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
Erlendur Eiríksson málari:
„Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“
Lyktarlaus
KÓPAL Glitra
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
A
L
34
75
3
1
0/
20
06
TM Software hefur verið valið í
hóp 500 framsæknustu fyrirtækja
Evrópu sjötta árið í röð. Þá er
þetta í fjórða sinn í röð þar sem
fyrirtækið er meðal 200 efstu á
listanum.
TM Software er núna í 122.
sæti, en á listnum eru einnig
Creditinfo Group (Lánstraust) í
81. sæti, Össur í 67. sæti, Kögun í
sjöunda sæti og Avion Group í
öðru sæti, annað árið í röð.
Fyrir valinu standa samtökin
Europe’s 500 en við val á listann er
miðað við vöxt fyrirtækja og
vaxandi atvinnuþátttöku. Listinn
er birtur á vefsíðunni www.
europes500.com. - óká
TM Software á
lista í sjötta sinn
Bakkavör Group skilaði 4,6 millj-
arða króna hagnaði á fyrstu níu
mánuðum ársins, sem er 68 pró-
senta aukning á milli ára. Hagnað-
ur félagsins á þriðja ársfjórðungi
var tveir milljarðar króna, sem er
sjötíu prósenta aukning frá árinu
2005. Uppgjörið er vel fyrir ofan
afkomuspár markaðsaðila, sem
spáðu félaginu 1,7 milljarða króna
hagnaði á síðasta ársfjórðungi.
Ágúst Guðmundsson, forstjóri
Bakkavarar, er kátur með gengi
félagsins það sem af er ári. „Útlit-
ið er bjart. Salan hefur verið góð
og engin merki um að hún dragist
saman. Við höldum áfram okkar
gangi.“
Gengi hlutabréfa Bakkavarar
hækkaði um eitt prósent í gær og
kostaði einn hlutur 60,7 krónur
sem er hæsta gengi félagsins frá
upphafi.
Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir (EBITDA) jókst um 88
prósent á milli ára og nam fram-
legðarhlutfall 12,6 prósentum
sem er í samræmi við langtíma-
áætlanir félagsins.
Arðsemi eigin fjár á árinu nam
28,2 prósentum á móti 28,3 pró-
sentum í fyrra.
Velta félagsins var um 117
miljarðar króna á árinu, þar af 44
milljarðar á þriðja ársfjórðungi.
Salan eykst mikið vegna ytri
vaxtar en innri vöxtur nam samt
sem áður tæpum tíu prósentum.
Það er umfram vöxt markaðarins
í heild. Félagið hefur markaðs-
leiðandi stöðu á mörgum sviðum
ferskra kældra matvæla.
Sjóðsstreymi skipti miklu máli
í rekstri Bakkavarar en það hefur
verið sterkt á árinu. Handbært fé
frá rekstri var 16,2 milljarðar
króna það sem af er ári og rúm-
lega tvöfaldast.
Eignir Bakkavarar námu 165,4
milljörðum króna í lok september
og jukust um ellefu prósent sem
skýrist einkum af kaupunum á
Laursens Patisseries. Efnahagur
félagsins hefur styrkst með niður-
greiðslu langtímaskulda. Eigin-
fjárhlutfall hefur hækkað hratt,
úr 12,4 prósentum um áramót í
16,5 prósent í lok september. - eþa
Bakkavör skilar góðum afkomutölum
Tveggja milljarða hagnaður á þriðja ársfjórðungi. Vex hraðar en markaðurinn. Gengið aldrei hærra.
UPPGJÖR BAKKAVARAR Á
ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGI
Hagnaður Bakkavarar 1.997
Spá Glitnis 2.044
Spá Kaupþings 1.585
Spá Landsbankans 1.464
Spá um meðaltalshagnað 1.698
(upphæðir í milljónum króna)
Bandaríska netverslunin Amazon.
com skilaði 19 milljóna banda-
ríkjadala hagnaði á þriðja árs-
fjórðungi. Þetta svarar til 1,3
milljarða íslenskra króna, sem er
rétt tæplega helmingi minni hagn-
aður en á sama tíma í fyrra þegar
hann nam 30 milljónum dala, jafn-
virði 2 milljarða króna.
Engu að síður er þetta nokkuð
meira en greiningaraðilar spáðu.
Hagnaður netverslunarinnar,
sem er önnur vinsælasta verslun
netheima, hefur lækkað nokkuð
undanfarin misseri, aðallega
vegna aukins kostnaðar við þróun
í nettækni.
Jeff Bezos, sem stýrt hefur
Amazon.com frá upphafi, segir
hagnað aukast á ný á síðasta fjórð-
ungi ársins þegar lokið verði við
að innleiða nýja tækni. - jab
Ný tækni dró
úr hagnaðinum
JEFF BEZOS, STOFNANDI AMAZON.COM
Þróun og innleiðing nýrrar tækni dró úr
hagnaði netverslunarinnar Amazon.com
á þriðja fjórðungi ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fjárfestar sem búsettir eru
erlendis minnkuðu eignasafn sitt í
íslenskum ríkisskuldabréfum í
ágúst líkt og lífeyrissjóðir, bankar
og sparisjóðir á sama tíma. Fjár-
festar hér á landi bættu lítillega
við sig en innlendir verðbréfasjóð-
ir rúmlega tvöfölduðu eignarhlut
sinn á milli mánaða, að því er fram
kemur í Markaðsupplýsingum
Lánasýslu ríkisins.
Fjárfestar sem búsettir eru
erlendis áttu íslensk ríkisskulda-
bréf fyrir rúman 51 milljarð króna
í lok júlí en það nam helmingi ríkis-
skuldabréfa á móti eign innlendra
aðila. Í ágústlok höfðu fjárfestarn-
ir minnkað við eign sína enda var
hún komin í 49,3 milljarða krónur
eða sem svarar til 45 prósenta
ríkisskuldabréfa. - jab
Minnka við sig
FORSTJÓRI TM SOFTWARE Friðrik Sigurðs-
son forstjóri TM Software var með erindi
á UT-deginum fyrr á árinu.