Fréttablaðið - 27.10.2006, Side 36
27. október 2006 FÖSTUDAGUR6
Uppskriftir sem eldað var
eftir handa Clinton-hjónunum,
Hussein Jórdaníukonungi og
fleiri tignum gestum sem hafa
heimsótt landið eru í Mat-
reiðslubók íslenska lýðveldis-
ins sem gefin er út af Sögum
ehf.
Feðgarnir Elías Eyjólfsson og Eyj-
ólfur Elíasson sáu oft um að skipu-
leggja málsverði og móttökur
fyrir hin ýmsu ráðuneyti um ára-
bil. Matreiðslubók íslenska lýð-
veldisins, sem nú er að koma út,
hefur að geyma úrval þeirra
hátíðamálsverða sem þeir hafa
eldað og borið fram við þessi til-
efni.
Þótt Elías hafi verið í forsvari
er þeir stóðu í veisluhöldum fyrir
ríkið þá er það Eyjólfur sem skrif-
ar bókina. Hann þakkar reyndar
starfsstúlku hjá þeim feðgum,
Erlu Sveinbjörnsdóttur það að
efnið var til. „Erla hélt til haga
öllum matseðlunum okkar. Ég var
svoddan skussi að ég safnaði þessu
ekki en hún tók það upp á sitt ein-
dæmi að setja matseðlana í möppu.
Hún er ein af þessum traustu
konum,“ segir hann með hlýju í
röddinni.
Flestar veislurnar voru haldn-
ar í ráðherrabústöðunum, annað-
hvort við tjörnina eða á Þingvöll-
um, að sögn Eyjólfs. „Við gerðum
þrjár til fjórar tillögur að matseðl-
um sem var svo valið úr. Yfirleitt
var það ráðherra eða ráðherrafrú-
in sem hafði úrslitavaldið.“ Hann
segir réttina oft hafa verið árs-
tíðatengda. „Ef góð humartíð stóð
yfir þá elduðum við humar og á
haustin varð villibráð fyrir valinu.
Svo reyndum við að taka mið af
því hvaða þjóðhöfðingi var í heim-
sókn. Ef hann var Asíubúi sneidd-
um við hjá mjólkurvörum og
drógum úr kartöflunum. Eitthvað
sem þeir eru ekki vanir að borða
og fer kannski ekki vel í þeirra
maga.“
Spurður um óhöpp eða eftir-
minnileg atvik í matargerðinni
svarar Eyjólfur:
„Ég man ekki eftir neinu klúðri
en auðvitað var oft stress. Það
mátti ekkert gleymast þegar farið
var á Þingvöll því þar var engu
hægt að redda á stundinni og betra
að ætla sér nægan tíma. Einu sinni
vorum við á leið þangað með
hádegisveislu og skrældum kart-
öflurnar á leiðinni í sendiferða-
bílnum til að ná öllu í tæka tíð. Það
varð að nýta hverja mínútu.“
Ein spurning að lokum. Hittu
þeir hina tignu gesti?
„Já, já. Það var oft komið inn í
eldhús að þakka fyrir góðan mat.“
gun@frettabladid.is
Oft komið í eldhúsið að
þakka fyrir góðan mat
Bókin er gefin út af Sögum ehf.
Eyjólfur með möppuna góðu sem geymir hátíðamatseðlana frá þeim árum sem
hann og faðir hans elduðu fyrir íslenska ríkið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kvöldverður Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra til heiðurs dr. Dlamini
Zuma, utanríkisráðherra Suður-Afríku í Ráð-
herrabústaðnum mánudaginn 23. september
2002.
Forréttur
Skötuselur og humar á salatbeði með balsamikolíu.
600g skötuselur
10 humarhalar, þyngd 7-9 libs.
1 pakki frisée-salat
1 pakki eikarlauf
1 pakki lollo rosso-salat
Skötuselurinn er skorinn í tíu 60g steikur og steikt-
ur á pönnu.
Kryddað með salti og pipar. Humarhalarnir eru
teknir úr skelinni og sporðurinn skilinn eftir. Grill-
aðir í ofni með hvítlaukssmjörinu á hæsta mögulega
hita í 3 mín.
Frise, lollo rosso og eikarlauf sett undir skötusel-
inn og humarinn þar ofan á.
Grænmetisstrimlar (100g blaðlaukur, 100g papr-
ika) steikt á pönnu við mikinn hita í olíu.
Sett ofan á og í kring eftir smekk.
Hvítlaukssmjör
200 g smjör
3 hvítlauksgeirar
1/2 dl ólífuolía
1/2 búnt steinselja
Salt, pipar og sítróna eftir smekk.
Öllu blandað saman og maukað í matvinnsluvél.
Balsamikolía
1/2 dl kornolía
1/4 dl balsamik edik
Hrist vel saman rétt áður en borið er fram og sett
yfir salatið.
Úr matreiðslubók íslenska lýðveldisins
�������������������
�����������������
������������������������������������������
������������������������������������������������
����������� ��
���������
�����������������������������
F
A
B
R
IK
A
N
Jói
Fel
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja í það ef Fréttablaðið
kemur einhverntímann ekki.
550 5600
Ekkert blað?
- mest lesið