Fréttablaðið - 27.10.2006, Page 40
[ ]
Hlaupabóla er smitsjúkdómur
sem berst fyrst og fremst milli
barna. Fullorðnir geta líka
fengið hlaupabólu, en þeir sem
eru búnir að fá hana einu sinni
fá hana ekki aftur.
Katrín Davíðsdóttir barnalæknir
segir að hlaupabóla sé mjög smit-
andi og þegar eitt tilfelli komi upp
sé mjög líklegt að fleiri komi upp
í kringum það. „Einkenni geta hins
vegar verið nokkurn tíma að koma
fram eða allt að tvær til þjár
vikur,“ segir hún.
Katrín segir að yfirleitt byrji
bólurnar að koma fram á búk og
andliti og síðan á útlimum. „Ból-
urnar breiðast út um allt á tiltölu-
lega stuttum tíma. Dæmigert fyrir
hlaupabólu er að hún getur komið
alls staðar fram og bólur geta
myndast í hársverði og inni í nefi,
þvagrás og eyrum. Útbrotunum
fylgir oft mikill kláði. Hlaupabólu
getur líka fylgt hiti en yfirleitt er
það ekki mikill hiti.“
Nokkra daga getur tekið fyrir
öll útbrotin að koma fram. „Annað
sem er dæmigert fyrir hlaupabólu
er að hægt er að sjá alveg ný
útbrot við hliðina á eldri útbrot-
um. Sjúkdómurinn er hins vegar
ekkert búinn þó að öll útbrotin séu
komin fram og þetta getur tekið
sjö til tíu daga allt í allt. Venjan er
að halda börnunum inni á meðan
útbrotin eru ný og ennþá vessandi
og þá er smithættan mest, en sjúk-
dómurinn getur líka verið smit-
andi einum til tveimur dögum
áður en útbrotin byrja.“
Þeir sem hafa fengið hlaupa-
bólu einu sinni fá hana venjulega
ekki aftur þar sem þeir mynda
mótefni gegn henni. „Betra er að
fá hlaupabólu sem barn en fullorð-
inn þar sem fullorðnir verða yfir-
leitt veikari og ef ófrísk kona fær
hlaupabólu getur það haft alvar-
leg áhrif á fóstrið. Oftast er
hlaupabóla vægur sjúkdómur en
þó eru þekktir fylgikvillar eins og
húðsýkingar, lungnabólga, sýking-
ar í augum og jafnvel heilabólga.
Því er mikilvægt að fara varlega
og leyfa börnunum að jafna sig vel
áður en farið er með þau út aftur,“
segir Katrín. emilia@frettabladid.is
Betra að fá hlaupabólu sem barn en fullorðinn
Katrín Davíðsdóttir barnalæknir segir að betra sé að fá hlaupabólu sem barn en fullorðinn. FRETTABLAÐIÐ/GVA
Reykingar eru heilsuspillandi og lífshættulegar. Til er fullt af
bókum með ráðum handa þeim sem vilja hætta að reykja.
Útbrot byrja venjulega að koma fram á
búk og andliti og breiðast síðan út um
allan líkamann á stuttum tíma.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES