Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 44
Nafn Celebs mælir með
Best
Kaiser Chiefs
Hafnarhúsið iðaði af
spenningi fyrir tónleika
hljómsveitarinnar Kaiser
Chiefs. Klárlega eitt
stærsta nafnið á
hátíðinni þó þeir hafi
ekki breikað big time.
The Cribbs spiluðu á
undan og áttu fína
spretti. En þegar Keisararnir mættu á sviðið sá maður
að þar voru alvöru rokkstjörnur á ferð. Talið var í fyrsta
lagið og þarna var eitthvað að gerast. Næst var
slagarinn „Everyday I love you Less and Less“ og
fólkið kannaðist greinilega við melódíuna. Þessu var
síðan fylgt eftir með frábærri sviðsframkomu og
framúrskarandi lögum. Vonandi að þeir mæti aftur til
landsins fljótlega. Klárlega það besta í ár.
Verst
Biggi í Maus
Röðin á klósettið lengdist jafnt og þétt eftir því sem
leið á tónleikana. Biggi mætti alveg arfaslakur með
eitthvað sem átti að vera sjóðheitt frá London. Á
sviðinu stóð hann í hlýrabol og raulaði
hundleiðinleg lög á meðan flestir litu á
klukkuna. Eins mikið og Sirkus fílar Maus
féll Biggi í áliti. Hann er ekki góður
söngvari. Hann sleppur alveg með
Mausurum því þar syngur hann
góðar melódíur undir
kraftmiklum tónum sveitar-
innar. Einhver hafði á
orði að Biggi væri svo
slakur að bjórinn hefðir
orðið flatur. Klárlega
mestu vonbrigði
hátíðarinnar.
„Ég lét reyndar
loka mig inni í klefa
til að ná þessari
tilfinningu, að vera
á bak við lás og
slá, sem er
óhugnanleg
reynsla.“
Theódór Júlíusson sem lék Elliða í Mýrinni við
Fréttablaðið
„Geir ætti að líta sér
miklu, miklu nær. Þeir,
sem vilja vinna Birni
Bjarnasyni grand standa
háskalega nærri
formanninum sjálfum.“
Össur Skarphéðinsson á
heimasíðu sinni
„Ég get ekki ímyndað mér
sælli dag en þann sem ég
verð látinn laus.“
Aron Pálmi í kvöldfréttum
Rúv
Best og verst á Airwaves
Að sjálfur Andrés Magnússon hefði brotið um
hina umdeildu forsíðu sem skartaði Birgi
Ármannssyni framan á Blaðinu fyrir skömmu.
Andrési var nýverið sagt upp störfum
á Blaðinu. Sumir segja vegna þess
að hann þyki of „pólitískur“ / Að
Birtingur, hinn nýi Fróði, sé að
flytja upp á Lyngháls í næstu viku /
Að Einar Oddur
Kristjánsson þingmaður sé
tengdapabbi Illuga Gunnarsson-
ar / Að Bubbi Morthens heiti
Dylan á MSN-inu / Að Katrín Anna
formaður femínistafélagsins hafi
neitað að láta farða sig fyrir
Kastljósþáttinn í vikunni / Að hest-
urinn sem Reynir Traustason er
á í Ísafoldarauglýsingunni sé
Kátur, hestur Unnar Birnu
Vilhjálmsdóttur / Að fyrrum
Sirkusritstjórinn Sólmundur Hólm sé byrjaður að
blogga á ný. Ætlar strákurinn að
vera með alvarlegt blogg og
bloggar einungis um alvarlega
hluti / Að Matthías Guðmunds-
son fyrrum leikmaður Vals í
knattspyrnu sé eini leikmaðurinn í
deildinni sem ekki á íþróttatösku / Að X-ið 977
undirbúi Ásgeir Kolbeins „look alike“ keppni / Að
Björn Bjarnason muni taka þátt í
guitar-hero keppni í þættinum
Capone á XFM / Að þátturinn
Tekinn í næstu viku með Bubba
Morthens sé sá besti hingað til/
Ég var að heyra ...
Þetta heyrðist
í vikunni ...
4
SIRKUS
AIRWAVES 2006
Finnur fimur á bassann
Fréttamanninum Finni Beck er greinilega
margt til lista lagt. Oftast birtist hann
okkur á skjánum með einhverja snilldar-
fréttina en um síðustu helgi sýndi hann
aðra hlið á sér. Þar kom hann fram með
hljómsveitinni Red Barnet. Og
skrifaði um upplifunina á
bloggið sitt.
„Ég var með svo mikinn
sviðsskrekk að ég hefði frekar viljað vera
á leið í beina útsendingu án sambands
við útsendingarstjórn með Ástþór
Magnússon sem viðmælanda, vopnaðan
tómatsósubrúsa!“ skrifar
Finnur sem þótti
standa sig vel
vopnaður
bassanum.
„Þetta gekk
þó vel í
heildina þó
smá mistök af
minni hálfu hafi
læðst með. Ekkert sem
ekki getur talist eðlilegt eftir allan þennan
tíma. Fréttamannsfíflið var þarna í hópi
hörkuspilara, Einar á gítar, Hannes á
trommunum, Þóra Björk og Hrefna Hlín,
systur Halla, í bakröddum. Stebbi var á
hljómborðinu en sést ekki á myndinni.“
Red Barnett kom fram á sunnudags-
kvöldinu og þótti koma nokkuð á óvart,
enda ekki mikið heyrst í sveitinni til
þessa.
„Þetta var ótrúlega gaman og ég er
mínum gamla vini þakklátur að fá að hafa
plokkað bassann með honum í þessu.
Allir sem ég hef rætt við töluðu um
hversu flott og grípandi lögin væru.
Næsta verkefni er að halda stærri
tónleika, með lengra prógrammi og gefa
lögin síðan út á disk.“
„Ég var með svo mikinn
sviðsskrekk að ég hefði frekar viljað
vera á leið í beina útsendingu án sam-
bands við útsendingarstjórn
með Ástþór Magnússon sem
viðmælanda, vopnaðan
tómatsósubrúsa!“
Red Barnet Finnur tekur sig
nokkuð vel út á bassanum.
Finnur Beck Er flottur á
skjánum en enn flottari á bassanum.
Ást Það voru fleiri ástfangnir á Airwaves.
Við drekkum Jameson Ívar Örn á
tónleikum Dr. Mister.
Fjör Það voru allir í stuði á Airwaves.
Fatahönnuðurinn Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir var í miklu
stuði á á Airwaves tónlistarhátíðinni um síðustu helgi. Þar
voru hún og kærasti hennar, listamaðurinn Frosti Gringo,
ástfangin og kysstust látlaust allt kvöldið. Þetta var á
tónleikum Dr. Mister og Mr. Handsome sem voru í miklu
stuði.
Ástfangin Hrafnhildur og Frosti kysstust allt kvöldið.
Ásfangin á Airwaves
Stemming Guðni Mr. Handsome var í miklu stuði á Airwaves.