Fréttablaðið - 27.10.2006, Qupperneq 69
FÖSTUDAGUR 27. október 2006 33
AF NETINU
UMRÆÐAN
Hvalveiðar
Er Einar K. Guðfinns-son, sjávarútvegs-
ráðherra, rétti maður-
inn í það starf sem hann
gegnir?
Það var ekki búið að
ganga frá vinnslustað
afurðanna þegar haldið
var til veiða, það var
ekki búið að kanna hvort einhver
markaður væri fyrir hvalkjöt, það
var ekki búið að vinna forvinnuna
fyrir þann ímyndarlega skaða sem
Íslendingar eru nú að ganga í
gegnum á heimsvísu. Það virðist
sem ekkert kynningarstarf hafi
verið unnið áður en þessi ákvörð-
un var tekin. Og nú sér maður
sjávarútvegsráðherra lýsa yfir
hryggð sinni yfir vanþekkingu
Breta og Ástrala í málinu og hvað
þessar þjóðir komi nú illa út. Eins
og einhver sé að hlusta. Það er
bara ein þjóð sem kemur illa út í
þessu máli.
Ríkisstjórnin hefur að vísu sent
Jónínu Bjartmarz út til fundar við
umhverfisráðherra Norðurland-
anna til þess að sannfæra þá um
málstað Íslendinga. Það er gott til
þess að vita að einhver ráðherr-
anna með eldheita sannfæringu í
málinu sé nú að rétta hlut Íslend-
inga í þessu persónulega klúðri
Einars K. Guðfinnssonar sem er á
landsögulegan mælikvarða. Þetta
er sennilega eitt mesta klúður
Íslandssögunnar.
Því miður virðist það vera svo
að ríkisstjórnin hafi talið að ef
haldið yrði til veiða þá myndi þjóð-
in þjappa sér á bakvið hana og
styðja hana í stríði hins litla við öll
stórveldi heimsins. Og hætta að
tala um hleranir.
Það eru sennilega flestir Íslend-
ingar sammála um rétt okkar til
þess að stunda hvalveiðar. Það
þýðir ekki að allir Íslendingar séu
þeirrar skoðunar að við eigum að
veiða hval. Heimspressan hefur
gripið þetta mál á lofti og ríkis-
stjórnir hvaðanæva í heiminum
fjalla um málið á mjög neikvæðan
hátt. Enda er það illa unnið. Við
erum að veiða hval, vegna þess að
við megum veiða hval. Það eru
engin efnisleg rök sem mæla með
því.
Hin mjög svo undar-
lega þráhyggja Halldórs
Ásgrímssonar að gera
Íslendinga að fulltrúum í
Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna hefur nú verið
í framkvæmd í utanríkis-
ráðuneytinu síðustu ár.
Nú virðist ríkisstjórnin
hafa hætt við að fara þá
leið án þess þó að gefa
það sérstaklega út. Ríkis-
stjórnin stórskaðaði
möguleika sína á því að ná þessu
markmiði með því að taka upp hval-
veiðar. Nú á þjóðin heimtingu á því
að ríkisstjórnin leggi á borðið
nákvæmar tölur yfir þá fjármuni
sem settir hafa verið í þá umsókn
Íslendinga. Hvað er búið að henda
miklu af peningum landsmanna út
um gluggann með þessari ótrúlegu
þægni sjávarútvegsráðherra við
Kristján Loftsson?
Ólíklegt verður að teljast að
þessi skynsemismaður verði kall-
aður til þess aftur að stýra ráðu-
neyti á Íslandi. Einar K. Guðfinns-
son verður nú að draga inn háfinn
og hrista af sér lúsina; veiðiferðin
er búin.
Höfundur er í framboði í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi.
Veiðiferðin er búin
UMRÆÐAN
Flatur skattur
Lækkun skatta er eitt af þeim viðfangsefnum sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
hvað ötulastur við á undanförnum
árum. Sumum finnst þó ekki nægi-
lega mikið gert fyrir hinn almenna
launþega, þar sem misjafn er
skattur á launatekjur annars
vegar og fjármagnstekjur hins
vegar. Ég vildi gjarnan sjá skatt-
kerfið okkar mun einfaldara og
gegnsærra og umfram allt skoða í
fullri alvöru að flatur skattur yrði
settur á allar tekjur hvernig sem
þeirra er aflað. Það má færa fyrir
því ýmis rök að það yrði beinlínis
arðbært fyrir ríkið sem og sam-
félagið í heild á margvíslegan
hátt.
Í dag er alveg viðurkennt að
stórt neðanjarðarhagkerfi þrífst
hér á Íslandi og þá á ég við þar
sem verið er að greiða laun á
svörtu og af þeim launum eru ekki
greiddir skattar, sem þýðir að
ríkið missir af tekjum og þar með
við sjálf. Hugsanlega verulegum
tekjum þegar upp er staðið. Ef
skattur væri lækkaður og hafður
flatur á allar tekjur má ætla að
upp kæmi mikill hluti af þessu
neðanjarðarhagkerfi
sem skilaði sér í aukn-
um tekjum til ríkis-
sjóðs. Þetta mundi líka
leiða til þess að hver
launþegi hefði meira á
milli handanna og á
móti þyrfti þá hugsan-
lega að vinna minna ef
hann kýs svo og gæti
varið meiri tíma með
fjölskyldunni. Þeir
sem hins vegar vildu
vinna meira gætu það og væru að
greiða jafnmikinn skatt en fengju
ekki skerðingu vegna aukinnar
vinnu, þ.e. fólk hefði meira val-
frelsi. Meiri peningar væru í
umferð hjá almenningi og því
mætti ætla að meiri hagnaður
yrði hjá fyrirtækjum og allt skil-
ar þetta sér á endanum í ríkis-
kassann. Þetta þýddi svo almennt
betri lífsskilyrði og þá væntan-
lega betri líðan og þar með minnk-
aði álagið á heilbrigðiskerfið. Það
er jú þekkt að mikið vinnuálag og
vanlíðan hefur ýmsa sjúkdóma í
för með sér, sem eru dýrir fyrir
heilbrigðiskerfið.
Það má því segja að lækkunin
sem ríkið væri að fórna tekjulega
séð kæmi til baka á margvíslegan
hátt aftur inn í hagkerfið og ekki
ljóst nema að það yrði meira frem-
ur en minna. Eflaust eru
ennþá fleiri sjónarhorn
á þessu málefni og helst
hallast ég að því að
ennþá fleiri jákvæð
áhrif yrðu af þessu
fremur en neikvæð.
Nú má segja að hag-
kerfi okkar standi á
tímamótum eftir veru-
legar breytingar á undan-
förnum árum. Vinstri
flokkar kalla það ójöfn-
uð og finna því allt til foráttu.
Hagkerfið er orðið opnara, fólk
hefur meira valfrelsi og mun
fleiri tækifæri fyrir þá sem vilja
nýta þau. Það er því í höndum
næstu ríkisstjórnar að taka þess-
ar breytingar á næsta þrep og
bæta enn betur og styrkja vel-
ferðarkerfið. Það eina sem skiptir
máli er aðferðafræðin sem notuð
er til þess að ná breytingunum
fram. Annars vegar getur hún fal-
ist í því að jafna út samfélagið
með tilheyrandi hækkun skatta,
en hins vegar lækkun skatta og
það að fólki er gefið valfrelsi til
þess að skapa sín eigin lífskjör og
lífsgæði.
Höfundur er landfræðingur og
býður sig fram í 7.-8.sætið á lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Skattalækkun hefði víðtæk áhrif
RÓBERT MARSHALL VILBORG G. HANSEN
Einar K. Guðfinnsson verður
nú að draga inn háfinn og
hrista af sér lúsina; veiðiferðin
er búin.
Grænir skattar og Chelsea-
traktorar
Egill Helgason skrifar frá Bretlandi.
Kannski eru loftslagsbreytingar aðal-
málið? Í nýrri skýrslu, sem er samin
af fyrrum aðalhagfræðingi Alþjóða-
bankans, segir að hlýnun jarðar muni
valda heimskreppu. Hún verði svo
djúp að jafnast á við það sem gerðist
1929 og í tveimur heimstyrjöldum.
Hér í Bretlandi er Íhaldsflokkurinn
meira að segja að verða meðvitaður
um þetta. David Cameron lætur taka
myndir af sér á hjóli. Hann er með
sólarrafstöð á þakinu hjá sér. Flokkur
hans veltir fyrir sér hugmyndum um
að leggja á „græna skatta”. Hann
hefur ekki lagst á móti tillögum um
að leggja sérstök gjöld á það sem
kallast „Chelsea-traktorar” - það eru
jeppar sem eru vinsæl ökutæki meðal
ríka fólksins sem býr í Chelsea.
Í skýrslunni er þó smá vonarneisti.
Þar segir að það þurfi ekki endilega
að vera svo kvalafullt fyrir jarðarbúa
að takast á við þetta. Að vísu þarf að
leggja ofboðslega peninga nýja orku-
gjafa - en um leið gæti ný tækni haft
för með sér ný tækifæri og vöxt.
Hvort sem það kemur loftslagsbreyt-
ingum við eða ekki þá er ótrúlega
gott veður hérna í London í október-
lok. Það er svo hlýtt að enn er hægt
að sitja fyrir utan kaffihúsin, peysan
sem ég kom með hingað hefur verið
öldungis óþörf.
Silfur Egils er á visir.is undir skoð-
anir.