Fréttablaðið - 27.10.2006, Page 74
27. október 2006 FÖSTUDAGUR38
menning@frettabladid.is
!
Á laugardag verða vinnubúðir
leikara Leikfélags Reykjavíkur
opnaðar. Þar hafa leikarar
undanfarnar vikur verið að
kanna aðferðir sinar í túlkun
og persónusköpun. Þau kalla
verkefnið Dogma og völdu
sér Sólarferð Guðmundar
Steinssonar sem stökkpall í
vinnu sinni. Leikararnir hafa
kastað á milli sín hugmyndum
að úrlausnum og leikaðferðum,
án tilkomu leikstjóra eða útlits-
hönnuða. Þeir hafa velt fyrir sér
ábyrgð leikarans í vinnuferl-
inu og prófað mismunandi
vinnaðferðir og er ætlunin að
leyfa öllu leikhúsáhugafólki að
sjá útkomuna. Þátttakendur
Dogma eru að þessu sinni
átta leikarar. Sýningar Dogma
á Sólarferð eru næstu þrjá
laugardaga kl. 17 á þriðju hæð
Borgarleikhússins.
Sólarferð var eitt vinsælasta
verk Guðmundar ásamt Stundar-
friði. Hann hafði góða þekkingu
á framferði landa sinna í sólar-
ferðum, var farastjóri um árabil í
slíkum ferðum. Fróðlegt verður
að sjá hvernig leikararnir taka á
persónum hans sem eru orðnar
þrjátíu ára gamlar og hvernig
þær ríma.
Sólarferð í skini tilrauna
GUÐMUNDUR STEINSSON LEIK-
SKÁLD (1925-1996) Sólarferð og
Stundarfriður voru með vinsæl-
ustu sýningum Þjóðleikhússins
á síðustu öld en mörg verka
hans hafa aldrei komist á svið.
Annað kvöld verður fjör í Salnum
í Kópavogi. Þá koma fram heim-
komnir útlagar úr íslenskri ein-
söngvarastétt sem deila lífi sínum
milli fósturlandsins og erlendra
óperuhúsa, auk einnar söngkonu
sem komin er heim og hefur hasl-
að sér völl norðan fjalla.
Tónleikarnir eru í Tíbrár-
röðinni og efnisskráin er óhemju
fjölbreytt. Sótt er í verk eftir
meistarana: Beethoven, Mozart,
Rossini, Bizet, Gluck, Wagner og
Verdi.
Söngvararnir eru: Auður
Gunnarsdóttir, sópransöngkona,
Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzo-
sópran, Gunnar Guðbjörnsson
tenór og Bjarni Thor.
Söngvararnir syngja aríur,
dúetta, tríó og kvartetta úr ýmsum
þekktustu óperum sögunnar svo
sem Fidelio, Töfraflautunni, Cosi
fan tutte, Carmen, Orfeus, Hol-
lendingnum fljúgandi, Tann-
häuser, Valdi örlaganna og Rigól-
etto.
Undirleikari með hópnum er
hinn kunni Jónas Ingimundarson.
Tónleikarnir eru einstakt tæki-
færi fyrir aðdáendur sterkustu
sönglaga óperubókmenntanna að
heyra fjóra söngvara takast á við
þekktar perlur. - pbb
Raddir fagrar mjög
SÖNGVARARNIR VIÐ ÆFINGU Í SALNUM Í KÓPAVOGI ÞAR SEM TÓNLEIKARNIR VERÐA
Á MORGUN Efri röð frá vinstri: Bjarni Thor, Sigríður, Auður og Gunnar. Fremst Jónas Ingi-
mundarson. Efnisskráin er sett saman úr nokkrum af perlum óperutónmenntanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
> Ekki missa af
síðustu sýningarhelgi í
Suðsuðvestur í Reykjanes-
bæ. Þar sýnir Guðrún Hrönn
Ragnarsdóttur ljósmyndir og
vídeóverk.
Opnunartími Suðsuðvesturs er
um helgar frá kl. 14-17.30.
Sýningarlokum hjá Valgerði
Hauksdóttur í Hafnarborg. Á
mánudag 2. október er síðasti
sýningardagur í neðri sölum
Hafnarborgar en þar eru
hugmyndir og aðferðir er liggja
að baki myndsköpun hennar
kynntar. Sýning hennar á
nýjum verkum í Aðalsal er
framlengd til mánudagsins 6.
nóvember.
20:00
KiraKira tónlistarkona er með
hljóðinnsetningu á turninum í gamla
Reykjavíkurapóteki í Austurstræti.
Þar verður svífandi segulbandaflóki
með sjálflýsandi augu og syngur
mörgum röddum. Hann er settur
saman úr mörgum segulböndum og
búnti af helíumblöðrum. Kórverk
fyrir augnablikið.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir á
laugardaginn leikritið Herra Kol-
bert eftir David Gieselmann.
Verkið fékk góðar viðtökur þegar
það var frumsýnt í Royal Court
leikhúsinu í London árið 2000 og
hefur síðan verið sett upp hjá
framsæknum leikhúsum víða um
Evrópu. Leikstjórinn Jón Páll Eyj-
ólfsson segir beitta og tímabæra
samfélagsádeilu fólgna í verkinu
sem reynir bæði á leikara og
áhorfendur.
„Herra Kolbert er gaman-
spennutryllir ef sú skilgreining er
til,“ segir Jón Páll. „Verkið gerist
á einni kvöldstund. Sambýlingarn-
ir Ralf og Sara hafa boðið kunn-
ingjum sínum í mat en þetta er
frekar óvenjulegt matarboð þar
sem það er strax augljóst að gest-
gjafarnir eru ekki allir þar sem
þeir eru séðir. Ákveðin atburðarás
fer því af stað með miklum hama-
gangi og er hröð og svakaleg á
köflum.“
Gróteskar lífgunartilraunir tilfinn-
inga
Jón Páll segir doða og tómarúm í
sálartetri nútímamannsins vera
grunntóninn í verkinu. „Ralf og
Sara eru vel stæð, komin með sín
próf og gráður, rétt parkett og
hámarksskerpu á plasmaskjánum.
Allt dótið er komið en þau finna
ekki til. Spennan í lífi þeirra er
engin og þau ákveða því að búa til
ákveðnar kringumstæður til þess
að upplifa hana. Aðferðir þeirra til
þess að ná fram þessum hughrif-
um eru svo býsna gróteskar.“
Tilfinningadoði persónanna og
öfgakennd viðbrögð þeirra við
firringunni drógu Jón Pál að verk-
inu sem hann telur eiga brýnt
erindi við fólk. „Ég tek verk aldrei
að mér nema ég geti svarað spurn-
ingunni um það afhverju ég ætti
að gera það og ekki síður hvaða
erindi það á í dag. Mér finnst verk-
ið tala sterkt til okkar þar sem við
erum stödd í heimi ofbeldis og
doða. Það er orðið veikleiki að
vera mannlegur og í heimi Ralfs
og Söru ertu dauðans matur ef þú
sýnir hluttekningu. Ef þú glatar
kúlinu ertu einskis virði.“
Tómarúm fyllt með hryllingi
Jón Páll kynnti sér þá sérstöku
vísindagrein drápsfræði, eða „kill-
ology“ þegar hann bjó sig undir að
takast á við Herra Kolbert. „Í
þeim stöðvum sem fóstra frum-
hvatir okkar, að éta, drekka og
ríða, leynist einnig nokkurs konar
vírusvörn sem kemur í veg fyrir
það að við drepum annað fólk ef
við erum ekki siðblindingjar eða
geðsjúklingar. Það er innbyggt í
okkur að eiga erfitt með að drepa
og því er reynt að endurskilyrða
til dæmis lögregu og hermenn
þannig að viðbrögð þeirra verði
sjálfvirk og banvæn.“
Jón Páll nefnir sem dæmi að í
borgarastríðinu í Bandaríkjunum
reyndist allt að 70% hermanna
nánast ómögulegt að bana and-
stæðingum sínum þegar þeir
mættu honum augliti til auglits. „Í
Írak er þessi tala komin niður í
17%. Þessir strákar þar eru bara í
tölvuleik. Það er búið að breyta
óvinum í dýr með skilgreining-
unni „við“ og „hinir“. Þeir nota svo
nætursjónauka og eru bara að
skjóta á grænar flyksur en ekki
fólk. Við erum sjálf dofin og sjáum
fórnarlömbin ekki síður illa í frétt-
um og bregður ekki. Við höfum í
staðinn búið okkur til tilbúin gildi
og öðlumst lífsfyllingu með að
sanka að okkur alls konar dóti. En
hvað gerist þegar allt dótið er
komið og gatið er enn til staðar?
Ralf og Sara gera hræðilega hluti
þetta kvöld til þess að verða mann-
eskjur. Húmorinn í verkinu er ein-
kennilegur. Hann kitlar, slær
okkur utan undir og gengur næst-
um því fram af manni. Við förum
bara eftir forskriftinni og allur
þessi hryllingur er skrifaður inn í
verkið. Það eina sem við gerum er
að fara með þetta alla leið.“
Ungir leikarar taka áhættu
Herra Kolbert reynir mikið á leik-
arana að sögn Jóns Páls. „Það er
klisja að segja þetta en verkið er
svolítið eins og Ólympíuleikarnir.
Það er stöðug spenna og áreiti á
sviðinu og það mæðir mikið á leik-
urnum í hamaganginum sem er
ekkert skrípó.“
Leikararnir Edda Björg Eyj-
ólfsdóttir, Gísli Pétur Hinriksson,
Guðjón Davíð Karlsson, Ólafur
Steinn Ingunnarson og Unnur Ösp
Stefánsdóttir hafa því staðið í
ströngu undanfarið en Jón Páll
segir allt tilbúið og að allir séu
klárir fyrir frumsýninguna.
„Þetta eru flottir krakkar og
það er mikill kraftur í þeim en það
þarf hugrekki til að bendla sig við
þetta verk. Það gengur svolítið
langt á köflum og gengur nærri
bæði leikurum og áhorfendum.
Við vitum hins vegar hvers vegna
við erum að gera þetta þannig að
þetta verður ekkert mál.“
thorarinn@frettabladid.is
Sá sem glatar kúlinu
er einskis virði
SVAKALEGT KVÖLDVERÐARBOÐ Matargestir Söru og Ralfs eiga ekki von á góðu þar sem gestgjafarnir eru tilfinningadauðir og eru
tilbúnir að ganga langt og nota grótesk meðul til þess að finna til á ný.
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
CROUCHING TIGER,
HIDDEN DRAGON
FRUMSÝND 27. OKTÓBER
SENDU SMS JA JLV Á 19
00
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ B
ÍÓMIÐA!
VINNINGAR ERU BÍÓMI
ÐAR,
DVD MYNDIR OG MARG
T FLEIRA