Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 79
FÖSTUDAGUR 27. október 2006 43
Þorlákur Morthens myndlistar-
maður hefur verið í útrás um
nokkurt skeið. Hann hefur bæði
haft aðsetur í Kaupmannahöfn og
Berlín. Í hádeginu á morgun opnar
hann sýningu í galleríi í hinu
fræga húsi Óslóar, Kampen.
Kampen er talið fyrirmyndin
að Kardimommubæ Torbjörns
Egner. Galleri Kampen er til húsa
í byggingu sem líklega þjónaði
sem vagnahús séra Bastizens sem
var fyrirmynd Bastiens bæjarfóg-
eta í barnaleikritinu alkunna. Tor-
björn Egner ólst upp á Kampen,
sem stendur á hæð rétt utan við
gömlu Ósló, og gerði þessum ein-
staka bæjarhluta skil með þeim
hætti sem seint gleymist.
Mun þetta vera í annað sinn
sem Íslendingur sýnir í þessu
virta galleríi en þar hefur áður
sýnt Erlingur Jónsson, högg-
myndalistamaður og prófessor við
Norsku myndlistarakademíuna.
Sýninguna sagði Tolli eiga sér
langan aðdraganda: þetta eru 38
olíuverk og expressjónismi mest-
an part segir hann – fjöll og jöklar.
„Það verður að mála þá áður en
þeir hverfa. Hér er mynd af Gísl-
jökli tveggja ára. Þegar ég leit á
hann í sumar var hann horfinn.“
Tolli hefur vinnustofu á Grá-
bræðratorgi í Kaupmannahöfn:
„Það er langt heim og betra að fá
fólk til sín þangað. Þessi kynslóð
sem núna ræður, þetta vítamín-
lausa fólk, ferðast milli landa eins
og ekkert sé, kemur til mín og
lítur á verkin. Þetta er sölusýn-
ing. Hér hafa margir frægir sýnt
og frúin sem hefur rekið Kampen
er fræg.“ Heimsfræg spyr blaða-
maður. „Það eru allir heimsfræg-
ir á sínum tíðahring,“ svarar
Tolli.
Sýning Tolla opnar á morgun og
hangir uppi í Kampen til loka nóv-
ember. - pbb
Tolli í Kardimommubæ
TOLLI - Þorlákur Kristinsson Morthens sýnir feykistór málverk í Ósló. Hér er hann á
sýningu sinni hér heima í fyrra. FRÉTTBLAÐIÐ/VILHELM
�������������������������
��������������
��������������
�������������
�������������
���������������
������
�
��
��
��
�
�
��
��
��
��
��
�
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI