Fréttablaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 82
27. október 2006 FÖSTUDAGUR46
Marilyn sagði það fyrir löngu og við höfum alltaf vitað
það; demantar eru bestu vinir stelpnanna. Strax í æsku
kemur það fram hjá mörgum stelpum að þær hafa sér-
lega gaman af öllu sem glitrar. Ég á meira að segja eina
frænku sem var svo hrikalega glysgjörn að hún tíndi
allt upp af götunni sem gaf frá sér minnsta glampa
eins og glerbrot og nammibréf. Mér fannst einmitt
eyrnalokkarnir hennar systur minnar sko langflott-
astir sem voru með skrilljón „demöntum“ á og
slefaði yfir skartgripaskríninu hennar. Strax á unga
aldri var stefnan sett á að eignast eitt slíkt sjálf.
Nei, ég er nú aðeins að ýkja þetta með
glysgirnina en það er samt alveg svakalega
fyndið hvernig hún þróast frá blautu barns-
beini. Það er reyndar ekki svo fjarri lagi
sem ég var að segja um litlar stelpur. Málið
er að dellan hverfur sennilega aldrei, hún
þróast bara yfir í aðra mynd. Reyndar eru
þær sumar sem snúa blaðinu við svona um
menntaskólaaldurinn og fara að skrifa ljóð og prjóna.
Margar þeirra koma svo aftur eftir háskólann en aðrar
snúa aldrei aftur á vit efnishyggjunnar.
Ég fór nú bara að velta þessu fyrir mér þegar einn
vinurinn kom til mín um daginn og sagði við
mig: „Sérðu þessa, hún á rosalega ríkan kall og
sagan segir að hún sé bara með honum af
þeirri ástæðu.“ Ég skoðaði hana vandlega eins
og konu sæmir og sá mjög fljótlega að hún
kostaði nokkrar milljónir heillin sú arna. Fötin,
taskan, skartið og kápan sem skvísan var í bar
allt saman merki þess að hafa kostað allnokkrar
vinnustundirnar. Ég var reyndar ekki hissa þegar
hann sagði mér þetta og verð að viðurkenna
að ég get hreinlega ekki skilið hvernig er hægt
að sætta sig við hvað sem er með því eina
skilyrði að hann gefi vel í skóinn eða veskið
öllu heldur.
Ég ætla samt ekki að hvítþvo mig af geð-
veiki efnishyggjunnar sem ansi margir virðast einmitt
vera haldnir. Ég skal alveg viðurkenna það að ég missi
alveg smá slef af og til yfir fallegum flíkum, heimilum og
skartgripum og langar oft alveg sjúklega í hluti sem er
einfaldlega ekki raunhæft að eignast aðeins kvartaldar-
gömul. En nokkuð er þó ljóst; ég slefa líka þegar ég
sé vel gerða menn og sennilega mun meira. Ég myndi
aldrei skipta á fögrum manni og stórum demantshring!
Þá kysi ég nú heldur manninn holdi gerðan!
Mér finnst alveg sjálfsagt að fólk safni að sér
fallegum hlutum og kunni að meta þá en mér finnst
hreinlega óskiljanlegt að velja þá framyfir þá nauðsyn í
samböndum, að ég tel, að hrífast af manninum sínum.
Skýrt dæmi um rangar forsendur fyrir sambandi! Ég tek
það fram að þetta eru sem betur fer ekki mörg dæmi
en þó finnst mér þetta endalausa efnishyggjukapphlaup
vera að taka á sig skýrari mynd og aukast. Ég vona bara
að fólk láti ekki blindast af glampanum og haldi áfram
að verða ástfangið af persónum en ekki peningum!
REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR SEGIR MARGA BLINDAST AF GLITURGLAMPA FREKAR EN ÁST
Besti vinur stelpnanna
Miðbærinn iðaði af mannlífi um
síðustu helgi þar sem tónlistar-
hátíðin Airwaves var haldin á
hinum ýmsum stöðum borgarinn-
ar. Flestir skörtuðu sínu fegursta
á meðan þeir dilluðu sér í takt við
tónlistin úr ýmsum áttum. Fata-
stíllinn og týpurnar voru í takt við
hinar ýmsu stefnur tónlistarinnar
og skemmtilegt var að sjá hvernig
tónlistarunnendur klæddu sig á
þessari tónlistarhátíð okkar
Íslendinga.
Skemmtileg
tíska á Airwaves
ÞÆGILEGT Þessi unga stúlka
var hress á Gauknum og
klæddist flottu rúskinnspilsi
og ökklastígvélum.
SÆTAR SYSTUR Þessar tvær létu ekki
kuldann og rokið á sig fá heldur voru
flottar í kjólum. Takið eftir pallíettu-
kjólnum og hefur hann örugglega
snúið mörgum hausum á ferð sinni um
bæinn.
ROKKARAR Elli, bassaleikari í Jeff Who?,
og Anna vinkona hans fylgdust spennt
með öllu sem fram fór á sviðinu en gáfu
sér þó tíma í myndatöku enda klædd
eins og rokkarar bæði tvö.
GLIMMER OG GLANS Flott klæddar
báðar tvær. Takið eftir beltinu við
kjólinn.
ALVEG MEÐ ÞETTA Plötusnúðurinn
Heimir fór ekki varhluta af tískuandan-
um sem sveif yfir Airwaves-hátíðinni
og var glæsilegur í glimmerjakka og
appelsínugulri hettupeysu.
Popparinn Justin Timberlake ætlar
í tónleikaferð um Evrópu sem hefst
í Belfast í apríl á næsta ári. Fyrst
mun hann þó fara í tónleikaferð um
Norður-Ameríku sem hefst í San
Diego 6. janúar.
Timberlake er að fylgja eftir
sinni nýjustu plötu, Futuresex/
Lovesounds, sem hefur þegar selst
í fjórum milljónum eintaka um
heim allan og fór beint í efsta sæti
hinna ýmsu vinsældalista.
Justin á ferð
og flugi
JUSTIN Justin Timberlake er að gera það
gott með sinni annarri sólóplötu.
Danska þjóðin ræður sér vart fyrir
kæti því það hefur endanlega verið
staðfest að Friðrik krónprins og
eiginkona hans Mary Donaldson
eiga von á nýjum erfingja. Dönsku
slúðurblöðin hafa velt þessu fyrir
sér í þó nokkurn tíma og Mary gaf
sögusögnunum byr undir báða
vængi þegar hún varð mjög vand-
ræðaleg við opnun tískuhúss í
Kaupmannahöfn þegar blaðamenn
gengu á hana með spurningum um
hugsanlega óléttu. Vangavelturnar
fóru af stað þegar Mary veiktist
skyndilega við hátíðlega athöfn
sem haldin var í tilefni af því að
keisaraynjan Dagmar var grafin
við hlið Alexander III í Skt. Péturs-
borg.
Aðeins er rúmt ár síðan prinsinn
Christian fæddist en í tilkynningu
frá talsmanni konungsfjölskyld-
unnar kemur fram að Mary ætli
eins og síðast að fæða barnið á ríkis-
spítalanum í Kaupmannahöfn. Þá
er enn fremur sagt að Mary muni
sinna sínum skyldum eins lengi og
hún getur. Þett eru væntanlega
mikil gleðitíðindi fyrir Margréti
Þórhildi Danadrottningu og nú er
að sjá hvort hjónakornin rifji ekki
upp tengsl Dana við Íslendinga sem
langafi Friðriks, Kristján X, hafði
mikið dálæti á og skíri barnið til
heiðurs þessari fyrrum nýlendu-
þjóð.
Enn fjölgar í Amalienborg
NÝR ERFINGI Á LEIÐINNI Mary Donaldson og Friðrik krónprins eiga von á nýjum
erfingja aðeins ári eftir að þeim fæddist sitt fyrsta barn.
HÁRLÆKNIRINN Jón Atli
var ekkert að skafa ofan
af hlutunum heldur
klæddist skemmtileg-
um tigerprint-buxum
frá rokkaramerkinu
Apríl 77 og í flottum
smókingjakka skreyttur
demöntum.
STJÁNI BLÁI Flottur
satínjakki sem
setur skemmtileg-
an svip á heildar-
útkomuna.