Fréttablaðið - 27.10.2006, Side 86
50 27. október 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Húsvíkingurinn Guðlaugur Arnarsson gekk á dögunum í raðir þýska
stórliðsins Gummersbach. Alfreð Gíslason, þjálfari Gummersbach,
fékk Guðlaug lánaðan frá Fylki fram að áramótum og hans hlutverk
er að leysa af hólmi landa sinn Sverre Jakobsson sem getur ekki
leikið fyrr en um jólin vegna meiðsla. Guðlaugur átti að vera í liði
Gummersbach gegn Sandefjord um síðustu helgi en fékk ekki leik-
heimild í tíma þannig að hann horfði á leikinn úr stúkunni. Þar sem
nú er landsleikjafrí verður fyrsti leikur hans með félaginu ekki fyrr
en í næstu viku og vill svo skemmtilega til að þá mætir Gummers-
bach liði Fram ytra en Guðlaugur lék lengi með Fram og var fyrirliði
liðsins.
„Það verður mjög skrýtin tilfinning að mæta Fram hér í Þýska-
landi. Að sama skapi er tilhlökkunin mikil og ég er staðráðinn í að
hafa gaman af þessu,“ sagði Guðlaugur léttur við Fréttablaðið en
hann er búinn að koma sér ágætlega fyrir í Þýskalandi og ekki versn-
aði ástandið þegar unnusta hans og sonur komu til hans.
„Lífið hér er mjög fínt en vissulega nokkur viðbrigði að vera að
æfa allan daginn. Það kom mér reyndar skemmtilega á óvart að
sumar æfingarnar sem voru á minni fyrstu æfingu eru mjög svipaðar
og Siggi [Sveins, þjálfari Fylkis] er
með. Stærsti munurinn er þó hrað-
inn en hann er mikið mun meiri
hér ytra og maður má aldrei slaka á
klónni, þá er búið að taka mann í
bólinu,“ sagði Guðlaugur, sem
gerir ráð fyrir því að vinna
fyrir kaupinu sínu í
Þýskalandi enda mun
Gummersbach spila
fjórtán leiki á þeim
stutta tíma sem
hann verður í her-
búðum félagsins.
„Það er bara
gaman að hafa
mikið álag enda er
ég kominn hingað
til að spila.“
GUÐLAUGUR ARNARSSON HANDKNATTLEIKSKAPPI: ÁNÆGÐUR MEÐ LÍFIÐ Í ÞÝSKALANDI
Verður gaman að mæta Fram
HANDBOLTI Það er ekki enn ljóst
hvað verður gert í axlarmeiðslum
landsliðsfyrirliðans Ólafs Stef-
ánssonar. Vinstri öxlin hefur
verið að plaga Ólaf síðustu ár og
hafa meiðslin versnað til muna
síðustu mánuði og ástandið hefur
verið það slæmt í vetur að Ólafur
hefur nánast ekkert leikið með
félagi sínu, Ciudad Real.
Læknar í Madríd fundu ekki
hvað væri að plaga hann og því
var hann sendur til Íslands í skoð-
un og myndatöku hjá Brynjólfi
Jónssyni, lækni landsliðsins.
Ólafur fór síðan með niðurstöð-
urnar úr skoðun Brynjólfs út
aftur enda ákveður félagið fram-
haldið.
„Þeir vilja að ég hvíli áfram og
verður engin niðurstaða tekin
með framhaldið fyrr en eftir ein-
hverja daga. Ég mun halda áfram
að æfa en mun ekkert kasta. Það
verður svo látið reyna á öxlina í
kjölfarið og ef þessi hvíld skilar
ekki einhverju verður tekin
ákvörðun með framhaldið. Það er
því í raun óbreytt staða hjá mér,“
sagði Ólafur við Fréttablaðið í
gær.
„Þeir finna í raun ekkert alvar-
legt að mér og segja að það sé
eðlilegt að ég sé með slit í öxlinni
þar sem ég er íþróttamaður sem
er sífellt að kasta tuðru. Það er
bólga á tveim stöðum í öxlinni og
þeir virðast ekki hafa miklar
áhyggjur af þessu. Þeir vilja ekki
sprauta eða neitt núna og treysta
í staðinn á að hvíldin lækni
meiðslin. Læknarnir hér telja
samt að það þurfi ekki að gera
neitt róttækt fyrr en eftir tíma-
bilið,“ sagði Ólafur nokkuð bjart-
sýnn enda er HM ekki enn í hættu
hjá honum þó hann sé ekki slopp-
inn. - hbg
Engar stórar ákvarðanir teknar að svo stöddu með Ólaf Stefánsson landsliðsfyrirliða:
Óbreytt staða hjá Ólafi sem hvílir áfram
SVEKKJANDI Ekki er enn ljóst hvað verður gert vegna axlarmeiðsla Ólafs Stefáns-
sonar. Hann verður látinn hvíla aðeins lengur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STYRKIR Í gær var skrifað undir
samninga sem kveða á um
fjármögnun sérsambanda ÍSÍ
fyrir árin 2007-2009. Samkvæmt
samkomulaginu sem ritað var
undir skuldbindur menntamála-
ráðuneytið sig til að veita ÍSÍ
styrkveitingu á fjárlögum 2007-
2009 sem renni til sérsamband-
anna.
Upphæð styrksins í ár var 30
milljónir en á því næsta verður
hann 40 milljónir, upphæðin fer í
60 milljónir árið 2008 og hækkar
aftur í 70 milljónir árið 2009.
Þessi styrkveiting er
nýbreytni þar sem sérsambönd
ÍSÍ hafa hingað til fengið mjög
takmarkaða styrki frá hinu
opinbera. - hbg
Sérsambönd ÍSÍ:
Fá milljóna-
styrki frá ríkinu
FÓTBOLTI Viggo Jensen hefur verið
rekinn úr starfi þjálfara hjá
danska úrvalsdeildarliðinu
Silkeborg. Með liðinu leika þrír
Íslendingar; þeir Bjarni Ólafur
Eiríksson, Hólmar Örn Rúnarsson
og Hörður Sveinsson.
Jensen hefur verið hjá
Silkeborg samanlagt í nær tíu ár
en félagið tapaði í gær sínum
sjöunda heimaleik í röð á
tímabilinu og það var kornið sem
fyllti mælinn. Peter Knudsen,
aðstoðarþjálfari Jensen, tekur við
stjórn félagsins til bráðabrigða.
- dsd
Íslendingalið í Danmörku:
Silkeborg rekur
þjálfarann
HÖRÐUR SVEINSSON Silkeborg hefur nú
rekið þjálfara sinn en ekkert gengur hjá
liðinu þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/MIDTJYLLANDS AVIS
KÖRFUBOLTI Ricard Casas var á
dögunum rekinn sem þjálfari
Pamesa Valencia, en með því liði
leikur Jón Arnór Stefánsson.
Félagið hefur nú ráðið gríska
þjálfarann Fotis Katsikaris í hans
stað.
„Það eru margir góðir
leikmenn hjá félaginu og það
fyrsta sem við þurfum að gera er
að laga hugarfar leikmanna og
endurvekja hungrið hjá leik-
mönnum. Allir sem leika gegn
Pamesa eiga að fá á tilfinninguna
að við séum erfiðir að leggja að
velli og erum stolt lið,“ sagði
Katsikaris, nýr þjálfari Jóns
Arnórs hjá Pamesa Valencia. - dsd
Pamesa Valencia:
Jón Arnór fékk
nýjan þjálfara
> Gunnar og Björn Viðar í Víking
Gunnar Kristjánsson gekk frá tveggja ára samningi
við Víking nú fyrr í vikunni og í gær bættist Björn
Viðar Ásbjörnsson í leikmannahóp Víkinga. Gunnar
er uppalinn KR-ingur en Björn
hefur alla tíð leikið með Fylki.
Þá framlengdu þeir Ingvar Þór
Kale, Arnar Jón Sigurgeirssn
og Jökull Elísabetarson
samninga sína, þeir tveir
síðastnefndu um tvö ár
en Ingvar um þrjú ár.
FÓTBOLTI Viktor Bjarki Arnarsson,
leikmaður ársins í Landsbanka-
deild karla, er að öllu óbreyttu á
leið til norska úrvalsdeildarliðsins
Lilleström. Komist var að sam-
komulagi við Víking í gærkvöldi
en verðið er samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins 12-15 milljónir
króna, eftir því hversu mikið
Viktor Bjarki spilar með liðinu.
Hann mun á næstu dögum
halda til Noregs þar sem hann
gengst undir læknisskoðun og
semur við félagið um kaup og
kjör.
„Þetta er að vissu leyti mikill
léttir fyrir mig,“ sagði Viktor
Bjarki við Fréttablaðið í gær.
„Þetta ferli hefur tekið langan
tíma miðað við það sem maður
bjóst við fyrirfram. Ég á ekki von
á því að framhaldið verði eins erf-
itt enda hef ég sem betur fer aldrei
lent í slæmum meiðslum á mínum
ferli.“
Þetta er í annað sinn sem Viktor
Bjarki heldur í atvinnumennsk-
una en 16 ára gamall samdi hann
við hollenska liðið FC Utrecht auk
þess sem hann lék eina leiktíð með
Top Oss þar í landi.
„Mér líst mjög vel á Lilleström.
Þetta er flottur klúbbur, mjög fag-
mannlegur og fólkið í kringum
hann er almennilegt. Heimavöllur-
inn er einnig mjög flottur.“
Lilleström var lengi vel í topp-
baráttunni í sumar en fataðist
flugið undir lok tímabilsins og
keppir nú um Evrópusæti.
„Það er gaman að hugsa til þess
að þetta er félag sem er ekkert í
neinu miðjumoði. Það er alltaf við
toppinn. Því hef ég ekki kynnst
hingað til og því vonandi að við
verðum í toppbaráttunni næsta
sumar líka.“
Viktor sneri heim úr atvinnu-
mennskunni árið 2004 og lék þá
leiktíð með Víkingum en liðið féll
úr úrvalsdeildinni um haustið. Þá
var hann lánaður til Fylkis þar
sem hann náði sér vel á strik og
var besti maður liðsins það tíma-
bil. Hann sneri svo aftur í Víkina
og hélt uppteknum hætti. Hann
spilaði stórt hlutverk í því að liðið
hélt sæti sínu í deildinni og var
svo valinn leikmaður ársins af
leikmönnum og þjálfurum deildar-
innar á lokahófi Knattspyrnu-
sambands Íslands fyrr í mánuð-
inum.
Viktor verður ellefti íslenski
atvinnumaðurinn í norsku knatt-
spyrnunni en auk þess hafa marg-
ir Íslendingar leikið með Lille-
ström í gegnum tíðina; nú síðast
Gylfi Einarsson, fyrrum Fylkis-
maður og leikmaður Leeds.
„Það eru margir Íslendingar í
nágrenninnu, svo sem Stefán
Gíslason, Indriði Sigurðsson og
Veigar Páll Gunnarsson. Það verð-
ur hægt að detta inn í kaffi til
þeirra,“ sagði Viktor Bjarki en
Lilleström er bær sem er um 20
mínútum frá Osló. Hann vonast
vitanlega til að atvinnumannafer-
ill hans sem er nú að hefjast á
nýjan leik verði langur á farsæll.
„Ég mun alla vega gera mitt
besta og vona það besta. Enda veit
maður aldrei hvenær þessu
lýkur.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
Víkingur og Lilleström náðu sam-
komulagi um Viktor Bjarka í gær
Viktor Bjarki Arnarsson er á leið til norska úrvalsdeildarliðsins Lilleström. Seint í gærkvöldi náðu Víking-
ur og Lilleström saman um kaupverð sem er talið vera á bilinu 12-15 milljónir króna.
VIKTOR BJARKI
Kveður hér áhorfendur Víkinga eftir
síðasta leik hans með félaginu í bili.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR